Ekki á döfinni að taka upp nýlega samþykkt skipulag í miðbæ Kópavogs

Skoð­ana­könnun sem félagið Vinir Kópavogs lét gera sýnir að svipað mörgum líst illa og vel á sam­þykkt skipu­lag í miðbæ Kópavogs. Sama könnun sýndi að 17,4 pró­sent íbúa gætu hugsað sér að kjósa sér­fram­boð Vina Kópavogs í vor – og félagið skoðar nú málin.

Miðbæjarsvæðið í Kópavogi mun umbreytast með þeim áformum sem samþykkt hafa verið í bæjarstjórn. Skiptar skoðanir eru um ágæti skipulagsins.
Mið­bæj­ar­svæðið í Kópavogi mun umbreyt­ast með þeim áformum sem sam­þykkt hafa verið í bæj­ar­stjórn. Skiptar skoð­anir eru um ágæti skipu­lags­ins. Mynd: Kópavogur

Bæj­ar­yf­ir­völd í Kópavogi hafa ekki í hyggju að svo stöddu að end­ur­skoða þau upp­bygg­ing­ar­á­form á tveimur reitum í miðbæ Kópavogs, sem mætt hafa háværri and­stöðu hluta íbúa bæj­ar­ins á und­an­förnum miss­erum.

Helga Hauks­dóttir, for­maður skipu­lags­ráðs bæj­ar­ins og bæj­ar­full­trúi Fram­sóknar, segir þó við Kjarnann að henni lít­ist vel á það að ráð­ist verði í hug­mynda­sam­keppni um útfærslu ann­arra hluta mið­bæj­ar­svæð­is­ins.

Hún seg­ist skilja áhyggjur íbúa á mið­bæj­ar­svæð­inu sem hafa lýst yfir óánægju með áformin á Hamra­borg­ar­svæð­inu og vill ekki úti­loka að þau verði end­ur­skoðuð að ein­hverju leyti, þó að það sé ekki á döf­inni í dag.

Íbúa­hóp­ur­inn Vinir Kópavogs, sem stofn­aður var vegna and­stöðu við fyr­ir­huguð áform í mið­bænum í Kópavogi og raunar fleiri skipu­lags­á­form bæj­ar­ins líka, lét nýlega fram­kvæma skoð­ana­könnun, meðal ann­ars á afstöðu bæj­ar­búa til þess að að ráð­ast í hug­mynda­sam­keppni um mið­bæj­ar­svæðið.

Svipað mörgum líst illa og vel á samþykkt skipulag

Rúmlega 71 pró­sent þeirra íbúa sem svör­uðu könn­un­inni, sem fram­kvæmd var af Gallup, sögð­ust hlynnt því að ráð­ist yrði í hug­mynda­sam­keppni.

[adspot]

Vert er að taka fram að sú spurn­ing var almennt orðuð og felur yfir­lýstur stuðn­ingur við hug­mynda­sam­keppni um mið­bæ­inn því ekki í sér að fólk sé endi­lega að sam­sinna því að bær­inn ætti að hverfa frá sam­þykktu skipu­lagi á þeim tveimur reitum sem skipu­lag hefur nýlega verið sam­þykkt fyrir, Fann­borg­ar­reit og Trað­ar­reit vestur.

Hópurinn lét einnig Gallup spyrja bæj­ar­búa hvernig þeim lit­ist á upp­bygg­ing­ar­á­formin sem sam­þykkt hafa verið í mið­bænum og var nið­ur­staðan á þá leið að um tæp 38 pró­sent sögðu að þeim lit­ist illa á áformin, en rúmum 34 pró­sentum vel.

Um 28 pró­sent tóku svo ekki sér­staka afstöðu til þess álita­efnis, sam­kvæmt könnun Gallup. 385 manns svör­uðu könn­un­inni, sem fram­kvæmd var dag­ana 17. des­em­ber til 26. jan­úar.

Rúm 17 prósent gætu hugsað sér að kjósa Vini Kópavogs í vor

Í könn­un­inni sem Vinir Kópavogs létu Gallup fram­kvæma kom einnig fram að rúm 17 pró­sent bæj­ar­búa teldur lík­leg að þau myndu kjósa sér­fram­boð undir nafni Vina Kópavogs í kom­andi bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, en þessar nið­ur­stöður voru kynntar á fundi félags­ins sem hald­inn var í Smáranum í gær­kvöldi.

Stjórn Vina Kópavogs mun á næst­unni taka frek­ari afstöðu til þess hvort ráð­ist verði í slíkt sér­fram­boð eða ekki. Á fund­inum í gær­kvöldi kom fram til­laga þess efnis að Vinir Kópavogs myndu bjóða fram undir hatti Mið­flokks­ins, en hún var felld einum rómi og var það afstaða fund­ar­manna að ef félagið færi fram yrði það óháð flokkspóli­tískum línum.

Áhrifa Vina Kópavogs gæti þó gætt í bæj­ar­málapóli­tík­inni í Kópavogi í vor óháð því hvort ákveðið verður að fara í sér­fram­boð eða ekki, en einn virkur stofn­fé­lagi í sam­tök­unum, Hákon Gunn­ars­son, býður sig fram til þess að leiða Sam­fylk­ing­una í bænum.

Hann gefur kost á sér til þess að vera í 1.-2. sæti í for­vali flokks­ins í Kópavogi, sem hófst í dag. Í fram­boðs­yf­ir­lýs­ingu sinni sagði hann að það þyrfti ekki ein­ungis að vinda ofan af þeim ákvörð­unum sem teknar hefðu verið um þessi skipu­lags­mál, heldur þyrfti „alger­lega að kúvenda allri aðferða­fræði og stjórn­un­ar­háttum í stjórn og rekstri bæj­ar­fé­lags­ins.“

Mikil uppbygging samþykkt

Deiliskipu­lag Fann­borg­ar­reits og Trað­ar­reits vestur var sam­þykkt í bæj­ar­stjórn Kópavogs í des­em­ber. Það gerir ráð fyrir því að það verði ansi mörg ný hús byggð á þessum reitum. Til stendur að rífa gömlu bæj­ar­skrif­stof­urnar við Fannborg 2, 4 og 6, alls um 5300 fer­metra hús­næði, til þess að rýma fyrir nýbygg­ingum og einnig byggja upp á svæðum sem í dag að miklu leyti und­ir­lögð undir bíla­stæði.

Bíla­stæði eiga í stað­inn að fær­ast neð­an­jarðar og plássið sem verður til á að nýta undir þétta byggð undir íbúðir og atvinnu­starf­semi, auk opinna torg­svæða. Nýjar íbúðir á þessum reitum eiga að verða allt að 550 tals­ins, auk rýmis fyrir þjón­ustu- og atvinnu­starf­semi.

Afar mikilvægt svæði fyrir bæinn

Á vett­vangi bæj­ar­stjórnar Kópavogs er þessa dag­ana verið að fjalla um heild­ar­sýn fyrir mið­bæj­ar­svæði Kópavogs.

„Þró­un­ar­svæðið er mun stærra en þessir reitir og það er alls ekki loku fyrir það skotið að það verði haldin hug­mynda­sam­keppni um ein­hvern hluta af þessu mið­bæj­ar­svæði,“ segir Helga Hauks­dóttir for­maður skipu­lags­ráð við Kjarnann, en sjálfri líst henni vel á að ráð­ast í slíka vinnu.

Hún segir mið­bæj­ar­svæðið bæði stórt og afar mik­il­vægt fyrir bæinn. „Þarna verður kjarna­stöð Borg­ar­línu og það verður ofboðs­lega gott upp á almenn­ings­sam­göngur að vera þarna. Við erum að skoða hvernig útfærslan á Borg­ar­lín­unni verður á þessu svæði,“ segir Helga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár