Meintur nafnlaus kosningaáróður reyndist hafa ábyrgðarmann

Áhöld voru um hvort aug­lýs­ingar frá Betri borg sem birtar voru í Morg­un­blað­inu og Frétta­blað­inu í morgun væru nafn­laus kosn­inga­á­róður. Í ljós kom að nafn ábyrgð­ar­manns var rtiað með svo smáu letri að starfs­fólk stjórn­mála­flokka tók ekki eftir því.

Auglýsingar frá Betri borg voru birtar í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í morgun.
Aug­lýs­ingar frá Betri borg voru birtar í Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu í morgun. Mynd: Samsett

Starfs­fólk stjórn­mála­flokka sem bjóða fram í Reykja­vík ræddu það í dag hvort til­efni væri til að bregð­ast við aug­lýs­ingum sem voru birtar í Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu í morgun. Áhöld voru um hvort þar væru á ferð­inni nafn­lausar aug­lýs­ingar en slíkar aug­lýs­ingar brjóta í bága við lög. Aug­lýs­ing­arnar voru birtar undir merkjum Betri borgar, en við­mæl­endur Kjarnans vissu engin deili á Betri borg.

Við upp­haf árs árið 2019 tóku gildi lög sem ætlað var að sporna gegn nafn­lausum kosn­inga­á­róðri sem nokkuð hafði borið á í kosn­ingum árin á undan. Þar er kveðið á um að aug­lýs­ingar skuli vera merktar aug­lýsanda eða ábyrgð­ar­manni.

Þegar betur var að gáð kom í ljós að nafn ábyrgð­ar­manns var ritað með agn­arsmáu letri í hægra horn aug­lýs­ing­ar­innar og raunar svo smáu að erfitt er að lesa text­ann í prentút­gáfum blað­anna. Í aug­lýs­ing­unum sem um ræðir er kallað eftir minni spill­ingu, betri borg og að meiri­hlut­inn verði kos­inn í burtu.

Ábyrgð­ar­maður aug­lýs­ing­anna er Hilmar Páll Jóhann­es­son. Hann hefur átt í deilum við borg­ar­yf­ir­völd í þónokkurn tíma vegna hæð­ar­kóta á lóð sem Loft­kastal­inn ehf á í Gufunesi en Hilmar á fyr­ir­tækið ásamt konu sinni, Ingu Lóu Guð­jóns­dóttur. Deilur Loft­kast­al­ans og Reykja­vík­ur­borgar hafa staðið yfir í um þrjú ár. Í vik­unni kærði Inga Lóa borg­ar­stjóra, Dag B. Egg­erts­son, fyrir meint brot brot á sveita­stjórn­ar­lög­um, stjórn­sýslu­lög­um, hegn­ing­ar­lög­um og upp­lýs­inga­lög­um. Hún kærði einnig emb­ætt­is­menn­ina Björn Ax­els­son og Harra Ormars­son. [adspot]

Eftir að í ljós kom að aug­lýs­ingin væri merkt ábyrgð­ar­manni, var tekin sú ákvörðun hjá því starfs­fólki stjórn­mála­flokka sem Kjarninn hefur rætt við að aðhaf­ast ekk­ert, enda ekk­ert ólög­legt á ferð í aug­lýs­ingum Betri borgar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár