Meirihlutinn í Hafnarfirði fallinn og Samfylkingin tvöfaldar fjölda bæjarfulltrúa

Mikil spenna er í sveit­ar­stjórn­ar­málum í Hafn­ar­firði. Sitjandi meiri­hluti bætir við sig einu pró­sentu­stigi af fylgi en fellur samt. Sam­fylk­ingin bætir miklu við sig frá 2018 og flestir bæj­ar­búar vilja sjá odd­vita hennar sem bæj­ar­stjóra.

Guðmundur Árni Stefánsson.
Guð­mundur Árni Stef­áns­son. Mynd: Facebook-síða Guðmundar Árna Stefánssonar.

Meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks í Hafn­ar­firði, þriðja stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, er fall­inn sam­kvæmt könnun sem Prósent gerði og birt er í Frétta­blað­inu í dag.

Þar kemur fram að Sam­fylk­ingin mælist nú með 31 pró­sent fylgi, en hún fékk 20,1 pró­sent atkvæða í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018. Þessi fylg­is­aukn­ing skilar flokknum að óbreyttu fjórum bæj­ar­full­trúum í stað þeirra tveggja sem hann hefur í dag.

Sem stendur mynda Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur meiri­hluta í Hafn­ar­firði. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með sama fylgi og hann fékk upp úr köss­unum fyrir fjórum árum, eða 34 pró­sent, og yrði áfram stærsti flokk­ur­inn í Hafn­ar­firði. Hann myndi hins vegar tapa einum bæj­ar­full­trúa og fá fjóra þar sem meira magn atkvæða fellur niður dautt í kom­andi kosn­ingum, sam­kvæmt könnun Prósents. Við það fellur meiri­hluti Sjálf­stæð­is­manna og Fram­sóknar, en Framsókn mælist nú með níu pró­sent fylgi eftir að hafa fengið átta pró­sent árið 2018, og er áfram með einn bæj­ar­full­trúa.

[adspot]Aðrir sem ná manni inn í ell­efu manna bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar sam­kvæmt könn­un­inni eru Viðreisn og Píratar, sem bæði mæl­ast með sjö pró­sent fylgi, og fá fyrir vikið sitt hvorn bæj­ar­full­trú­ann.

Þrjú fram­boð mæl­ast ekki með mann inni: Vinstri græn, Bæj­ar­list­inn og Mið­flokk­ur­inn. Sam­an­lagt fylgi þeirra mælist um 13 pró­sent, sem eru þá atkvæði sem að óbreyttu falla niður dauð. Tvö síð­ast­nefndu eru með einn bæj­ar­full­trúa hvort í dag.

Guð­mundur Árni Stef­áns­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarð­ar, ákvað að snúa aftur í stjórn­mál fyrr á þessu ári til að leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um. Í stöð­u­­upp­­­færslu á Facebook þar sem hann til­kynnti um end­ur­komu sína sagð­ist hann stefna „óhikað að því að Sam­­fylk­ing vinni góðan sigur í bæj­­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ingum í maí og tvö­­faldi bæj­­­ar­­full­­trú­a­­tölu sína, þ.e. úr tveimur í fjóra. Og að afloknum kosn­­ingum geti Sam­­fylk­ingin í góðu sam­­starfi við aðra flokka tekið við for­ystu um stjórn bæj­­­ar­ins.

Samkvæmt könnun Prósents vilja flestir Hafn­firð­ingar, alls 34 pró­sent, sjá Guðmund Árna sem næsta bæj­ar­stjóra. Skammt undan kemur Rósa Guð­bjarts­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins og núver­andi bæj­ar­stjóri, með 32 pró­sent.

Könnunin var fram­kvæmd 3. til 10. maí, úrtakið var 680 manns og svar­hlut­fallið 50,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár