Fjósamaður, fjöllistakona og frú í framboði

Rúmlega 70 lög­fræð­ingar og lög­menn eru á lista fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar. Tæpur þriðj­ungur er í fram­boði fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Sjö fanga­verðir eiga sæti á listum og ein göldrótt tón­list­ar­kona. Tvær Stellur eru í fram­boði.

Kattakona, hornleikari, galdrakona, fuglaathugandi og knattspyrnukona eru meðal frambjóðenda í sveitarstjórnarkosningunum.
Katta­kona, horn­leik­ari, galdra­kona, fugla­at­hug­andi og knatt­spyrnu­kona eru meðal fram­bjóð­enda í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum. Mynd: Samsett mynd

Þau eru afar fjöl­breytt starfs­heitin og ann­ars konar titlar þess fólks sem er á fram­boðs­listum til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga sem fram fara í dag. Sem dæmi eru 249 fram­bjóð­endur kenn­arar, 213 bændur bjóða fram krafta sína og tíu tamn­inga­menn. 72 lög­fræð­ingar og lög­menn eru í kjöri og 23 hús­mæður. Sömu­leiðis eiga 23 núver­andi eða fyrr­ver­andi alþing­is­menn sæti á list­unum.

Aðeins einn horn­leik­ari er í fram­boði. Það er hann Helgi Þ. Svav­ars­son, sem er á lista Vinstri grænna á Akureyri. Það verður að telj­ast ólík­legt að hann nái kjöri. Það hefur ekk­ert með hornið hans að gera eða hvernig hann leikur á það heldur þá stað­reynd að hann skipar 17. sæti list­ans. En aðeins ell­efu sæti eru í boði í bæj­ar­stjórn­inni og munu þau skipt­ast á milli þeirra lista sem koma inn mönnum.

Einn fram­bjóð­andi titlar sig fjósam­ann og annar skilta­kall. Þá er ein fjöl­lista­kona í fram­boði og ein frú. Sjö fanga­verðir eru á lista og fimm ljós­mæður. Fugla­at­hug­andi skipar sæti á lista Vinstri grænna í Árborg og tveir plötu­snúðar bjóða sig fram – annar í Hvera­gerði og hinn í Hafn­ar­firði.

[adspot]

Mest er fjöl­breytnin eflaust á Katta­list­anum sem býður fram á Akureyri undir for­ystu Snorra Ásmunds­sonar lista­manns. Með honum á lista eru mark­þjálfi, tón­list­ar­maður, rit­höf­undur, lista­kona, hús­móðir, mál­ari og svo auð­vitað: Katta­kona.

Við­skeytið „stjóri“ er í starfs­heiti 672 fram­bjóð­enda. Mögulega eru hlut­falls­lega flestir stjórn­endur á Kjós­ar­list­anum. Sjö skipa list­ann, þar af þrír fram­kvæmda­stjórar, einn hót­el­stjóri og einn deild­ar­stjóri. Sá sjötti er lög­fræð­ingur og sá sjö­undi múr­ari.

Hlut­falls­lega er bændur flestir á Tjör­neslist­anum því helm­ingur þeirra sem bjóða sig fram stunda búskap. Tíu eru á list­anum og í hópnum eru tvær hús­mæður sem er einnig hátt hlut­fall þeirrar stéttar miðað við önnur fram­boð. Sjálf­kjörið verður í Tjör­nes­hreppi í þetta sinn því aðeins einn listi er í fram­boði.

Lögmenn og lög­fræð­ingar eru hlut­falls­lega flestir á listum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Tuttugu slíkir, af þeim 72 sem gefa kost á sér, skipa lista flokks­ins víðs­vegar um landið. Til sam­an­burðar þá eru aðeins þrír lög­fræð­ingar og lög­menn í fram­boði fyrir Vinstri græn.

Sextán læknar, þar af fjórir dýra­læknar, eru í kjöri. Mun fleiri hjúkr­un­ar­fræð­ingar eru á fram­boðs­list­unum eða 49. Þá eru fjöl­margir náms­menn í fram­boði eða sam­tals 232. Nám þeirra er alls konar. Einn stundar nám í hús­gagna­smíði, annar í búfræði og nokkrir eru í hjúkr­un­ar­fræði. Þá er nemi í lands­lags­arki­tektúr á lista í Bol­ung­ar­vík, flugnemi á lista í Garðabæ, þjóð­fræði­nemi í fram­boði fyrir Vinstri græn í Hafn­ar­firði og nemi í almanna­tengslum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík.

Rúmlega sex­tíu „konur“ eiga sæti á listum. Það er að segja mann­eskjur sem hafa orðið „kona“ í starfs­heiti sínu: Fjöl­lista­kona, afgreiðslu­kona, sjúkra­flutn­inga­kona, hágreiðslu­kona, fyrr­ver­andi alþing­is­kona, knatt­spyrnu­kona, söng­kona, verka­kona, lista­kona, lög­reglu­kona, gler­l­ista­kona, athafna­kona, stjórn­ar­kona, fisk­vinnslu­kona og leik­kona. Að ógleymdri afreks­konu í Crossfit. Sú er engin önnur en Katrín Tanja Dav­íðs­dóttir sem tvisvar hefur sigrað á heims­leik­unum í crossfit. Katrín skipar 16. sætið hjá sjálf­stæð­is­mönnum í Reykja­vík. Ein göldrótt tón­list­ar­kona er svo í fram­boði fyrir Pírata í Reykja­vík.

Fimm fram­bjóð­endur eru ein­hvers konar „stýrur“. Á list­unum er skóla­stýra, fram­kvæmda­stýra, kynn­ing­ar­stýra og sér­kennslu­stýra og auk þess ein bæj­ar­stýra en þann titil ber Íris Róberts­dóttir sem setið hefur við stjórn­ar­taumana í Vest­manna­eyjum síð­ustu fjögur árin.

„Stjór­arnir“ eru mun fleiri eða 672 tals­ins enda orðið algengt í starfs­heitum fólks af öllum kynjum. Einn við­burða­stjóri er í fram­boði og einn upp­lif­un­ar­stjóri. Svo eru 20 skip­stjórar á listum og auð­vitað fjöl­margir fram­kvæmda­stjórar auk teym­is­stjóra og skóla­stjóra svo dæmi séu nefnd.

559 „fræð­ingar“ bjóða fram krafta sína, þar af fjórir skóg­fræð­ingar og svo vill til að þeir eru flestir ofar­lega á þeim listum sem þeir bjóða sig fram fyrir.

Alls konar sérfræðingar í umhverfinu

Umhverf­is­málin hafa verið áber­andi í sam­fé­lags­um­ræð­unni og stjórn­málum síð­ustu ár. Lofts­lagsógnin vofir yfir og orku­skipti eru m.a. sú leið sem feta á út úr þeim vanda. Skiptar skoð­anir eru svo hvort virkja þurfi meira til orku­skipta og því víst að nátt­úru­vernd og orku­mál verða fyr­ir­ferð­ar­mikil í póli­tík­inni á næstu miss­erum, áfram sem hingað til. Þeir sem bera þekk­ingu á þessum mála­flokki í starfs­heiti sínu eru m.a. tveir sér­fræð­ingar hjá Umhverf­is­stofnun, annar er í fram­boði fyrir Vinstri græn á Akureyri og hinn fyrir Sam­fylk­ing­una í Reykja­vík. Þá er umhverf­is­verk­fræð­ingur á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Garðabæ og annar slíkur í fram­boði fyrir VG í Reykja­vík. Umhverfis- og auð­linda­fræð­ingur býður sig fram fyrir Sam­fylk­ing­una í Mos­fellsbæ og umhverfis- og orku­fræð­ingur fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Múla­þingi. Umhverf­is­skipu­lags­fræð­ingur er á lista Fram­sóknar í Árborg og vara­for­maður Ungra umhverf­is­sinna skipar 14. sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í sama sveit­ar­fé­lagi.

Fólk náttúrunnar

Náttúran sjálf er svo í starfstitli fimm fram­bjóð­enda. Nátt­úru­fræð­ingur er á Vopna­fjarð­ar­list­anum og annar slíkur er í fram­boði fyrir Vinstri græn í Múla­þingi. Náttúru- og land­fræð­ingur skipar annað sæti á lista VG í Fjarða­byggð og nátt­úru­landa­fræð­ingur fer fram fyrir Pírata í Akur­eyr­arbæ. Nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ingur er svo í kjöri fyrir Sam­fylk­ing­una í Kópavogi.

Svo má geta þess að tvær Stellur eru í fram­boði. Við­skipta­fræð­ing­ur­inn Stella Stef­áns­dóttir skipar 8. sæti á lista sjálf­stæð­is­manna í Garðabæ og Kolbrún Stella Ind­riða­þóttir, einnig við­skipta­fræð­ingur en líka bóndi, er á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Húna­þingi vestra.

Nöfn fram­boð­anna eru svo einnig skemmti­lega ólík og alls konar.

Byggða­list­inn, Bæj­ar­list­inn, Íbúa­list­inn, Nýtt afl og Ný sýn eru þeirra á meðal.

Í sveit­ar­stjórn­ar­mál­unum eru flokkslín­urnar oft ekki jafn skýrar og í land­spóli­tík­inni og bera nöfn lista þess glögg­lega merki: Framsókn og frjálsir, Framsókn og aðrir fram­fara­sinnar, Framsókn og félags­hyggju­fólk og listi Fram­sókn­ar­fé­lags Grinda­víkur. Í þessum svip­aða anda eru svo Fram­fara­list­inn, Fram­boðs­listi um fram­sýni og fyr­ir­hyggju og Listi fram­fara­sinna.

Þá bjóða VG og óháðir fram, Sjálf­stæð­is­menn og óháðir, Sjálf­stæð­is­menn og aðrir lýð­ræð­is­sinnar, Sam­fylk­ing og óháðir, Sam­fylk­ingin og annað félags­hyggju­fólk, Mið­flokk­ur­inn og óháðir, Mið­flokk­ur­inn og sjálf­stæðir og Píratar og óháðir.

Mörg fram­boð vilja kenna sig við sitt sveit­ar­fé­lag með ein­hverjum hætti og fara ýmsar leiðir að því:

Okkar Hvera­gerði, Saman í sveit, Vinir Kópavogs, Vinir Mos­fells­bæjar, Áfram Árborg, Stranda­banda­lagið, Strand­ar­list­inn, Strönd­ungur og Fyrir Heimaey eru dæmi þar um.

[adspot]

Frum­leg­heitin eru svo enn meiri hjá nokkrum fram­boðum:

Gerum þetta saman (Blönduós) Katta­list­inn (Akureyri), Máttur meyja og manna (Bol­ung­ar­vík), Rödd unga fólks­ins (Grinda­vík), Gróska, Allra (Mýr­dals­hreppur), Listi sam­fé­lags­ins, Umbót, Bein leið, Öflugt sam­fé­lag, Umhyggja – umhverfi – upp­bygg­ing og ekki má gleyma Kex fram­boði í Sveit­ar­fé­lag­inu Horna­firði. Slagorð þess nýja fram­boðs er: „Við viljum að allir íbúar hafi rödd, þess vegna er Kex við öll.“

Í dag verða kjörnar 64 sveit­ar­stjórnir. Í tveimur sveit­ar­fé­lögum kom aðeins fram einn fram­boðs­listi og fara því engar kosn­ingar þar fram því fram­bjóð­endur telj­ast sjálf­kjörnir. Í þrettán sveit­ar­fé­lögum kom ekki fram neinn fram­boðs­listi og þar verða því haldnar svo­kall­aðar óbundnar kosn­ingar, per­sónu­kjör. Allir með lög­heim­ili á staðnum og eru á kosn­inga­aldri eru fram­boði nema þeir skorist sér­stak­lega undan því og hafi til þess gildar ástæður. Í þeim sveit­ar­fé­lögum þar sem per­sónu­kjör fer fram eru yfir 3.000 manns því „í fram­boði“. Á þeim 179 listum sem boðnir voru fram á land­inu öllu eiga svo yfir 6.000 manns sæti. Það er því dágott hlut­fall íbúa lands­ins sem er í kjöri með einum eða öðrum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár