Skýr sýn fyrir Reykjavík

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir segir að í kosn­ingum sé ekki síst kosið um traust. Traust og ábyrgð hald­ist í hendur þegar kjörnir full­trúar fara með sam­eig­in­lega hags­muni borg­ar­búa og fjár­muni þeirra.

Viðreisn hefur frá stofnun flokks­ins talað fyrir því að almanna­hags­munir séu leið­ar­stef í allri hug­mynda­fræði og vinnu­brögðum. Við nálg­umst málin frá miðj­unni og erum rödd frjáls­lyndis, jafn­réttis og ábyrgðar í fjár­málum. Það þarf fólk í borg­ar­stjórn Reykja­víkur sem setur almanna­hags­muni í fyrsta sæti.

Skýr sýn um þjónustu borgarbúa

Það er ábyrgð okkar sem kjör­inna full­trúa að fara vel með almannafé og sýna ábyrgð í rekstri. Þannig höfum við nálg­ast fjár­mál Reykja­vík­ur­borgar. Árang­ur­inn er sá að skulda­hlut­fall borg­ar­sjóðs er það lægsta af öllum sveit­ar­fé­lög­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Til þess að geta boðið borg­ar­búum góða þjón­ustu þarf að sýna ábyrgð í fjár­málum. Aðeins þannig getum við byggt upp og veitt fyr­ir­taks vel­ferð­ar­þjón­ustu til borg­ar­búa og styrkt inn­viði í þágu borg­ar­búa.

Það er okkar trú að borgin eigi að hvetja til heil­brigðrar sam­keppni þar sem hún getur en halda að sér höndum varð­andi verk­efni sem einka­fram­takið getur sinnt. Við viljum ekki fjölga starfs­fólki borg­ar­innar nema í grunn­þjón­ustu í þágu borg­ar­búa. Til dæmis til að fjölga leik­skólum, auka við heima­þjón­ustu eldra fólks og til að styðja fatlað fólk við athafnir dag­legs lífs. Við viljum halla­lausan rekstur borg­ar­sjóðs og við höfum sett okkur skýr og raun­hæf mark­mið þar um. Borgin bæði getur og þarf að vera góður kaup­andi til að ná þessu mark­miði. Borgin þarf þess vegna að gera kröfur sem kaup­andi, bæði um gæði og um verð. Það getur Reykja­vík í krafti stærðar sinnar. Liður í því er að beita sam­ræmdum inn­kaupum borg­ar­innar til að tryggja hag­stæð­asta verð.

Skýr sýn um rekstur borgar

Við viljum sér­stak­lega styðja við nýsköpun og þróun með því að Reykja­vík kaupi þjón­ustu af fyr­ir­tækjum sem sér­hæfa sig í staf­rænum lausnum. Við erum á því að það eigi að grípa þau tæki­færi sem fel­ast í auknu sam­starfi við sjálf­stætt starf­andi aðila sem starfa að vel­ferð­ar­málum, t.d. nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki í vel­ferð­ar­tækni, hjúkr­un­ar­heim­ili og vinnu­staði fatl­aðs fólks. Og við ætlum að halda áfram að ein­falda kerfið með því að taka stór skref í staf­rænni þjón­ustu.

Við lof­uðum því að lækka fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði og stóðum við það á því kjör­tíma­bili sem er að líða. Á því næsta ætlum við að lækka fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði enn meira. Við viljum halda áfram að styðja við fyr­ir­tækin í borg­inni og viljum ekki að Reykja­vík­ur­borg sé í sam­keppn­is­rekstri og keppi þannig við fyr­ir­tækin í borg­inni.

Skýr sýn um hagsmuni barna

For­eldrar eiga að hafa raun­veru­legt val­frelsi um skóla barna þeirra. Þess vegna teljum við að það eigi að vera frítt í alla grunn­skóla óháð því hvort þeir eru reknir á vegum borg­ar­innar eða eru sjálf­stætt starf­andi. Við viljum auka fag­legt frelsi kenn­ara og skóla. Þannig getum við bæði stuðlað að ein­stak­lings­bundnu námi og fært þjón­ustu við börn nær þeim. Við viljum að fimm ára börn fái frítt í leik­skóla vegna þess að við vitum að hluti þeirra er ekki á leik­skóla, að stærstum hluta frá tekju­lægri heim­ilum. Börn koma betur und­ir­búin í skóla, þegar þau koma úr leik­skóla og það er því jafn­rétt­is­mál fyrir börnin að fá þetta ár í leik­skóla. Við teljum að sjálf­stætt starf­andi leik­skólar séu lyk­ill­inn að því að brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla­göngu.

Reykjavík sem dafnar

Und­an­farin þrjú ár hefur átt sér stað met­upp­bygg­ing íbúða í Reykja­vík. Tölurnar tala þar sínu máli. Við vitum hins vegar að það þarf að gera meira og halda áfram. Við viljum skipu­leggja lóðir fyrir 2.000 íbúðir á ári. Við viljum jafn­framt að Reykja­vík stuðli að því að það verði bæði fljót­legra og ódýr­ara að byggja í Reykja­vík. Þess vegna viljum við að farið sé að ráð­legg­ingum OECD til að ein­falda umgjörð bygg­inga­mála. Við viljum halda áfram að þétta byggð. Við viljum líka reisa ný hverfi í Skerja­firði, Ártúns­höfða, á Keldum. Síðast en ekki síst: Við viljum að í Vatns­mýri komi blönduð byggð í stað flug­vallar.

Þess vegna á að kjósa Viðreisn

Í kosn­ingum er ekki síst kosið um traust. Traust og ábyrgð helst í hendur þegar kjörnir full­trúar fara með sam­eig­in­lega hags­muni borg­ar­búa og fjár­muni þeirra. Fólk sem vinnur í þágu allra borg­ar­búa á að bera virð­ingu fyrir því að það er að vinna í umboði fólks og bera virð­ingu fyrir fjár­munum sem þeim er treyst fyrir. Í Reykja­vík skiptir þess vegna máli að kjósa fólk sem stendur fyrir skýra hug­mynda­fræði og ákveðin vinnu­brögð. Fólk sem getur sagt skýrum orðum fyrir hvað það stendur. Und­an­farið kjör­tíma­bil höfum við starfað í meiri­hluta nokk­urra flokka. Þar höfum við talað fyrir okkar stefnu­málum og náð mörgum þeirra fram en vita­skuld ekki öllum. Ég er stolt af því að borg­ar­full­trúar Við­reisnar hafa verið rödd skyn­samrar með­ferðar á fjár­munum borg­ar­búa, skýrrar hug­mynda­fræði í skipu­lags­málum í þágu borg­ar­búa, verið rödd nýsköp­unar, fyr­ir­tækja og atvinnu­lífs­ins. Talað fyrir jafn­rétti og frjáls­lyndi. Það skiptir máli að kjósa fólk sem hefur skýra sýn fyrir Reykja­vík. Það er af þess­ari ástæðu sem kjósa á Viðreisn í Reykja­vík.

Höfundur er odd­viti Við­reisnar í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár