Fyrstu tölur: Hildur í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins er í fyrsta sæti í próf­kjöri flokks­ins eftir fyrstu tölur. Talin hafa verið 1.935 atkvæði af 5.545.

Fyrstu tölur voru lesnar upp í Valhöll rétt í þessu í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar þann 14. maí næst­kom­andi.

Kjör­staðir lok­uðu klukkan 18 í dag og greiddu 5.545 atkvæði. Alls hafa verið talin 1.935 atkvæði.

Samkvæmt þessum fyrstu tölum er Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi flokks­ins í Reykja­vík í fyrsta sæti með 964 atkvæði. Í öðru sæti með 820 atkvæði í 1.-2. sæti er Ragn­hildur Alda Vil­hjálms­dóttir.

Í þriðja sæti með 715 atkvæði í 1.-3. sæti er Kjartan Magn­ús­son. Í fjórða sæti með 687 atkvæði í 1.-4. sæti er Marta Guð­jóns­dóttir.

Í fimmta sæti með 670 atkvæði í 1.-5. sæti er Friðjón R. Frið­jóns­son og í sjötta sæti með 645 atkvæði í 1.-6. sæti er Björn Gíslason.

Í sjö­unda sæti með 740 atkvæði í 1.-7. sæti er Helgi Áss Grét­ars­son. Í átt­unda sæti með 804 atkvæði í 1.-8. sæti er Sandra Hlíf Ocares. Í níunda sæti með 865 atkvæði í 1.-9. sæti er Birna Hafstein.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár