110 prósent formaður

Að und­an­förnu hefur fátt vakið meiri athygli Dana en fréttir af skraut­legu einka­lífi danska verka­lýðs­for­k­ólfs­ins Per Christensen. Orða­til­tækið að leika tveim skjöldum er kannski nær­tæk­asta lýs­ingin.

Per Christensen var formaður verkalýðsfélagsins 3F er upp komst um hans tvöfalda líf.
Per Christensen var for­maður verka­lýðs­fé­lags­ins 3F er upp komst um hans tvö­falda líf. Mynd: EPA

110 pró­sent for­maður var yfir­skriftin á grein sem birt­ist í tíma­rit­inu Fag­bla­det 3F 16. júní árið 2017. Tilefnið var sex­tugs­af­mæli for­manns sam­tak­anna 3F. Fag­bla­det 3F kemur að jafn­aði út átta sinnum á ári, upp­lagið hverju sinni 270 þús­und ein­tök og dregur nafn sitt af sam­tök­unum 3F. Þessi sam­tök voru stofnuð árið 2005 þegar tvö stétt­ar­fé­lög sam­ein­uð­ust. 3F (Fagligt Fælles Forbund) eru ein fjöl­menn­ustu sam­tök launa­fólks í Danmörku og þar er jafnt að finna fag­lærða og ófag­lærða, sam­tals tæp­lega 270 þús­und manns. Innan 3F eru 64 félags­deildir um allt land. Fag­bla­det 3F hóf göngu sína sama ár og 3F sam­tökin voru stofnuð og hefur allt frá byrjun lagt höf­uð­á­herslu á mál­efni sem varða mál­efni launa­fólks og jafn­framt vand­aða rann­sókn­ar­blaða­mennsku.

Byrjaði snemma í verkalýðsmálum

Eins og áður hefur komið fram varð Per Christensen for­maður 3F sex­tugur árið 2017. Af því til­efni birti Fag­bla­det 3F langa lof­grein (orða­lag Berl­ingske) um for­mann­inn, hann hafði þá gegnt for­mennsk­unni í 4 ár.

Per Christensen er fæddur í Álaborg, tré­smiður að mennt. Eftir að námi lauk hóf hann störf hjá sem­ents­verk­smiðj­unni Aalborg Portland. Hann lét fljótt að sér kveða í sam­tökum starfs­manna og eftir fimm ára starf hjá sem­ents­verk­smiðj­unni var hann kos­inn trún­að­ar­maður á vinnu­staðnum. Nokkru síðar var hann kos­inn vara­for­maður félags starfs­fólks í sem­ents­iðn­að­inum í Álaborg.

[adspot]

Maður margra stjórna

Þegar sam­tökin 3F urðu til árið 2005 hóf Per Christensen, sem hafði þá um ára­bil setið í stjórn ann­ars aðild­ar­fé­lag­anna, störf á aðal­skrif­stofu sam­tak­anna í Kaup­manna­höfn. Árið 2013 var hann kos­inn for­maður 3F, var einn í fram­boði. For­mennsk­unni í 3F fylgdu ýmis ábyrgð­ar­störf, þar á meðal for­mennska í bank­anum Arbejdernes Lands­bank og líf­eyr­is­sjóðnum Pension Danmark, sem bæði hafa sterk tengsl við sam­tök launa­fólks. Þar að auki hefur Per Christensen setið í stjórn LO (danska alþýðu­sam­bands­ins) sem í dag heitir FH (Fag­bevægel­sens Hovedorganisation).

Enn­fremur situr hann í stjórn Kon­ung­lega leik­húss­ins, í stjórn Sund og Bælt, fyr­ir­tæk­is­ins sem ann­ast rekstur Eyr­ar­sunds- og Stóra­belt­is­brúnna og Fem­ern­teng­ing­ar­innar milli Dan­merkur og Þýska­lands. Per Christensen situr sömu­leiðis í stjórn Evida en það fyr­ir­tæki rekur gas­dreifi­kerfið í Danmörku. Stjórn­ar­setan í þessum þremur síð­ast­nefndu er launuð og á síð­asta ári fékk hann greitt jafn­gildi 11 millj­óna íslenskra króna fyrir þessi „auka­störf“.

110 prósent formaður

Í grein­inni sem birt­ist í Fag­bla­det 3F á afmæl­is­degi Per Christensen 16. júní 2017 undir yfir­skrift­inni 110 pró­sent for­maður var honum lýst sem ein­stak­lega dug­legum morg­un­hana. Hann færi á fætur við fyrsta hana­gal, eða jafn­vel fyrr, og byrji dag­inn á hlaupa­túr eða í æfinga­salnum í aðal­stöðvum 3F skammt frá aðal­járn­braut­ar­stöð­inni í Kaup­manna­höfn. Ekki nóg með að hann mæti fyrstur allra á morgn­ana, hann er líka sá sem fer síð­astur heim. Hann er líka mjög dug­legur að heim­sækja félags­deildir víða um land og hitta félags­menn. Með putt­ann á púls­inum eins og það var orðað í blað­inu.

Þótt 3F séu ópóli­tísk sam­tök launa­fólks hafa þau eigi að síður mikil póli­tísk áhrif og sterk tengsl við flokka jafn­að­ar­manna, Socialdemokraterne. Í áður­nefndri grein er farið mörgum orðum um þátt Per Christensen í því að efla tengsl verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar við þing­menn og hann hafi stýrt mörgum hags­muna­málum í höfn.

Í afmæl­is­grein­inni var ekki minnst einu orði á fjöl­skyldu­mál Per Christensen. Fram kom í grein­inni að hann hefði alla tíð haldið fjöl­skyldu sinni og einka­lífi fyrir utan kast­ljós fjöl­miðla. Fyrir skömmu kom í ljós að fyrir því voru ríkar ástæður.

Grein í dagblaðinu B.T.

Klukkan 19.30 föstu­dags­kvöldið 21. jan­úar sl. birt­ist á vef­síðu dag­blaðs­ins B.T. löng grein með yfir­skrift­inni „Fagboss levede vildt dobbelt­liv i årevis: Dannede par med flere kvinder, som intet vidste“. Sem kannski mætti þýða: Verka­lýðs­leið­togi lifði ótrú­legu tvö­földu lífi árum saman. Konur sem hann bjó með vissu ekk­ert.

Tveimur tímum áður en greinin sjálf birt­ist hafði Per Christensen skrifað á Facebook síðu sína útskýr­ingu (hans orða­lag) og ósk um fyr­ir­gefn­ingu þeirra kvenna, sem hann hefði svikið, og fjöl­skyldna þeirra. Góðvinur Per Christensen, Jan E. Jørg­en­sen þing­maður Venstre flokks­ins, skrif­aði sam­stundis að hann (Per) ætti umsvifa­laust að útvega sér lög­fræð­ing og stefna B.T. fyrir að snuðra um einka­líf hans. Slíkt varði við lög um frið­helgi einka­lífs­ins.

Svo las þing­mað­ur­inn grein­ina í B.T. og þá var engu lík­ara en hann hefði breyst í hinn þekkta álits­gjafa Ragnar Reykás „þegar ég skrif­aði Per Christensen á Facebook hafði ég ekki lesið grein­ina í B.T. Ég ætla ekki að verja Per Christensen, sem hefur hegðað sér eins og svín. En ef lögin um frið­helgi einka­lífs ná ein­ungis til fólks sem eng­inn þekkir og hefur áhuga á og myndi ekki skrifa um, þá eru þessi lög einskis virði“. Síðan heldur þing­mað­ur­inn áfram „svo er spurn­ingin hvort þetta varð­andi Per Christensen telj­ist einka­mál eða opin­bert mál“. Og bætir við að „sé það rétt, sem fram komi í grein­inni, að hann hafi notað íbúð 3F í eigin þágu sé málið opin­bert“. Fleiri þing­menn, og ýmsir aðrir, voru fljótir til að lýsa stuðn­ingi við Per Christensen en sneru svo við blað­inu eftir að hafa lesið grein­ina.

[adspot]

Margfaldur í roðinu

Áður­nefnd grein sem birt­ist á vef­síðu B.T föstu­dags­kvöldið 21. jan­úar sl. vakti mikla athygli, að ekki sé fastar að orði kveðið. Í þess­ari löngu blaða­grein var flett ofan af tvö­földu líf­erni Per Christensen og frá­sögnin er lyg­inni lík­ust. Verka­lýðs­leið­tog­inn hafði árum saman lifað tvö­földu lífi og að minnsta kosti tvisvar búið með tveimur konum á sama tíma. Öll dönsku dag­blöðin hafa í lið­inni viku fjallað um þetta ótrú­lega mál. Lang ítar­leg­ustu umfjöll­un­ina er að finna á síðum B.T. og Berl­ingske en blaða­menn beggja þess­ara blaða, sem eru í eigu sama útgef­anda, höfðu lengi unnið að und­ir­bún­ingi grein­ar­innar og í fram­hald­inu fleiri greinum sem birst hafa í lið­inni viku, um sama efni.

Skrifaði til stjórnar 3F

Per Christensen varð for­maður 3F árið 2013, en var áður hátt­settur starfs­maður sam­tak­anna. Árið 2008 tók hann upp sam­band við konu að nafni Laila Kild­es­gard, hana nafn­greinir Berl­ingske í sinni umfjöllun. Það sam­band stóð til 2014. Laila Kild­es­gaard, segir að á sama tíma hafi hann verið í sam­bandi með annarri konu. Þegar hún komst að því sleit hún sam­band­inu og skrif­aði til stjórn­ar­manna 3F og sagði frá sam­bandi sínu við Per Christensen og tvö­földu lífi hans Hún beindi því til stjórn­ar­manna hvort maður sem lifði svona lífi væri sá rétti til að vera í for­mennsku fyrir fjöl­mennum sam­tökum launa­fólks. Skömmu síðar hafði lög­maður 3F sam­band við kon­una og lét að því liggja að hún skyldi halda þessu fyrir sig.

Giftur og bjó samtímis með annarri

Árið 2016 gift­ist Per Christensen. Það kom hins­vegar ekki í veg fyrir að hann stofn­aði síðar til sam­bands við aðra konu. Þegar eig­in­konan og ,,hin konan“ komust, svo að segja á sama tíma síð­ast­liðið haust, að þessu tvö­falda líf­erni, skildi eig­in­konan við Per Christensen og ,,hin konan“ kastaði honum á dyr. Þær skrif­uðu í sam­ein­ingu bréf til stjórnar 3F og sögðu frá mál­inu. ,,Stjórnin verður að ákveða hvort hún vilji aðhaf­ast eitt­hvað en það er mik­il­vægt að stjórn­inni sé ljóst hvernig for­mað­ur­inn komi fram“. Á sama tíma end­ursendi Laila Kild­es­gaard tölvu­póst­inn sem hún hafði sent stjórn­inni árið 2014. Hún fékk það svar frá 3F að um einka­mál væri að ræða og ekki meira um það að segja.

Stjórnarfundur 22. desember og afsögn

Þegar kom fram í nóv­em­ber var Per Christensen ljóst að farið væri að ,,hitna undir honum“ og sömu­leiðis var stjórnin áhyggju­full. Málið kæmi örugg­lega upp á yfir­borðið, blaða­menn B.T. væru á fullu að vinna að því kom­ast til botns í kvenna­málum for­manns­ins og það væri ekki gott fyrir stjórn­ina að þegja þunnu hljóði. Ákveðið var að boða til fjar­fundar aðal­stjórnar 22. des­em­ber.

Á þessum fundi sagði Per Christensen frá tvö­földu líf­erni sínu. Að sögn eins stjórn­ar­manna var því lík­ast að for­mað­ur­inn væri að lesa eins konar til­kynn­ingu og stjórn­ar­mönnum gafst ekki færi á að spyrja hann spurn­inga. Í aðal­stjórn­inni sitja 88 en helm­ingur þeirra tók þátt í fund­inum. Einn fund­ar­manna sagði að sér hefði virst Per Christensen tala um hátt­erni sitt sem fram­hjá­hald fremur en tvö­falt líf­erni. Sami stjórn­ar­maður sagði að Per Christensen hefði virst sann­færður um að þetta mál myndi fljótt gleym­ast og hann gæti haldið áfram sem for­maður.

[adspot]

Ekki voru allir í stjórn­inni á þeirri skoðun og í tölvu­póstum milli stjórn­ar­manna var greini­legt að Per Christensen naut ekki trausts, og sömu sögu var að segja hjá 12 manna fram­kvæmda­stjórn.

Sl. þriðju­dag, 25, jan­úar til­kynnti Per Christensen afsögn sína. Það gerð­ist á stjórn­ar­fundi sem boðað hafði verið til í skyndi. Í ræðu sinni lagði hann áherslu á þann árangur sem hann hefði náð í störfum sínum og ásak­aði blöðin, bláu press­una eins og hann komst að orði, um að snuðra um einka­líf sitt. Hann til­kynnti svo afsögn sína og gekk á dyr.

Flókinn lygavefur

Í B.T. er mjög ítar­leg umfjöllun um hið tvö­falda líf Per Christensen. Birtir eru bútar úr við­tölum við þrjár þeirra kvenna sem hann bjó með. Í frá­sögnum þeirra kemur fram að lyga­vef­ur­inn hafa verið úthugs­aður og skipu­legur. Hann ferð­að­ist mikið vegna vinn­unnar og það átti þátt í því að auð­velda honum að leyna slóð­inni, hann sagði kannski annarri kon­unni að hann þyrfti að sækja ráð­stefnu á til­teknum stað en fór þá beina leið til hinnar kon­unnar. Og svo fram­vegis.

Í pistli sem þessum er engin leið að fara yfir þessa ótrú­legu sögu en hér er hægt að fræð­ast meira um hið tvö­falda líf Per Christensen og frá­sagnir kvenna sem B.T. ræddi við vegna umfjöll­unar blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár