Vilhjálmur Birgisson kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins

Komandi kjara­við­ræður á íslenskum vinnu­mark­aði verður stærsta verk­efni nýkjör­ins for­manns Starfs­greina­sam­bands Íslands að eigin mati. Vil­hjálmur Birg­is­son hafði betur gegn Þórarni G. Sverris­syni með tíu atkvæðum í for­manns­kjör­inu.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, er nýr formaður Starfsgreinasambandsins.
Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, er nýr for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, var kjör­inn for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins á þingi sam­bands­ins sem nú stendur yfir. Tekur hann við for­mennsk­unni af Birni Snæ­björns­syni sem hefur verið for­maður sam­bands­ins í tíu ár.

Vil­hjálmur hlaut 53,85 pró­sent atkvæða eða 70 af þeim 130 atkvæðum sem greidd voru. Mót­fram­bjóð­andi hann, Þórarinn G. Sverr­is­son, for­maður stétt­ar­fé­lags­ins Öldunnar, fékk 60 atkvæði, eða 46,15 pró­sent greiddra atkvæða.

Kjara­samn­ings­við­ræður eru stærsta verk­efnið fram undan að mati Vil­hjálms. Samn­ingar verða lausir í októ­ber. Í sam­tali við Vísi segir hann að það sé „sam­fé­lag­inu til ævar­andi skammar að lág­marks­laun dugi ekki fyrir nauð­synjum.“

[links]Tölu­verðar deilur hafa verið innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar und­an­farið. Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, hefur til að mynda full­yrt að til­laga Vil­hjálms og Ragn­ars Þórs Ing­ólfs­sonar for­manns VR, um að draga tíma­bundið úr mót­fram­lagi atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóði í upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, hefði kostað launa­fólk tíu millj­arða króna á hverjum árs­fjórð­ungi og skilað sam­svar­andi upp­hæð til atvinnu­rek­enda.

Bæði Vil­hjálmur og Ragnar Þór sögðu sig úr mið­stjórn ASÍ í vetr­ar­lok 2020 vegna deilna um hvað skyldi gera til að bregð­ast við áhrifum veiru­far­ald­urs­ins, en báðir voru þeir til­búnir að fall­ast á að að mót­fram­lög atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóði yrðu lækkuð úr 11,5 pró­sentum niður í 8 pró­sent, tíma­bund­ið.

Vil­hjálmur sagði í sagði í sam­tali við Vísi eftir að nið­ur­stöður for­manns­kjörs­ins lágu fyrir að bar­átta í verka­lýs­hreyf­ing­unni sé nauð­syn­leg. „Auðvitað þurfum við svo að ein­henda okkur í það, þegar við höfum kom­ist að nið­ur­stöðu um það hvaða leiðir við viljum fara, þurfum við að taka höndum saman og fara sem ein öflug stór heild með hags­muni verka­fólks að leið­ar­ljósi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár