Kjósendur Samfylkingar síst ánægðir með frammistöðu síns formanns

Það var ekki bein fylgni milli árang­urs í síð­ustu kosn­ingum og þess hversu sáttir kjós­endur hvers flokks voru með frammi­stöðu for­manns hans í bar­átt­unni sem fram fór í aðdrag­anda þing­kosn­inga 2021.

Logi Einarsson er formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son er for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar voru þeir kjós­endur sem voru minnst ánægðir með frammi­stöðu for­manns þess flokks sem þeir studdu í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu. Alls sögð­ust 53,5 pró­sent þeirra að þeim hafi þótt Logi Ein­ars­son standa sig vel sam­kvæmt nýlegri könnun Maskínu, en Sam­fylk­ingin tap­aði 2,2 pró­sentu­stigum af fylgi milli kosn­inga og fékk 9,9 pró­sent atkvæða. Það skil­aði flokknum sex þing­mönnum, eða einum færri en hann fékk í kosn­ing­unum 2017.

Sá sem naut næst minnstrar hylli hjá eigin kjós­endum var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Alls sögð­ust 65,1 pró­sent kjós­enda þess flokks að þeir hefðu verið ánægðir með frammi­stöðu hans í aðdrag­anda kosn­inga. Mið­flokk­ur­inn beið afhroð í þeim og fékk 5,4 pró­sent atkvæða, sem er tæpur helm­ingur þess sem flokk­ur­inn fékk árið 2017. Alls náðu þrír þing­menn kjöri, en einn þeirra, Birgir Þór­ar­ins­son, skipti yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn tveimur vikum eftir kosn­ing­arnar og sagði for­ystu flokks­ins hafa unnið mark­visst gegn sér.

Sjö af hverjum tíu ánægðir með Halldóru og Þorgerði

Píratar eru ekki með eig­in­legan for­mann, en Halldóru Mogensen var falið það hlut­verk að leiða við­ræður um stjórn­ar­myndun eftir kosn­ingar ef Píratar kæmust í stöðu til að taka þátt slíkum við­ræðum. Hún kom einnig fram fyrir hönd flokks­ins í flestum þáttum sem for­menn ann­arra flokka komu fram. Alls sögð­ust 69,7 pró­sent kjós­enda Pírata hafa verið ánægðir með frammi­stöðu Halldóru í bar­átt­unni þrátt fyrir að Píratar hafi tapað smá­vægi­legu fylgi, fengið 8,6 pró­sent atkvæða og sama fjölda þing­manna og þeir fengu kjörna í kosn­ing­unum á undan, eða sex alls.

[adspot]Viðreisn var einn tveggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka sem bætti við sig fylgi í síð­ustu kosn­ingum, þegar flokk­ur­inn fékk 8,3 pró­sent atkvæða og fimm þing­menn kjörna. Það er einum fleiri en hann fékk 2017.

Alls sögð­ust 71,7 pró­sent kjós­enda Við­reisnar að þeir væru ánægðir með frammi­stöðu flokks­for­manns­ins, Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, í bar­átt­unni.

Þrír formenn geta verið nokkuð sáttir

Bjarni Bene­dikts­son leiðir stærsta flokk lands­ins, Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann tap­aði 0,9 pró­sentu­stigum milli kosn­inga og fékk 24,4 pró­sent atkvæða, sem er það næst minnsta sem hann hefur fengið í þing­kosn­ingum frá upp­hafi. Þing­manna­fjöld­inn hélst hins vegar óbreyttur, og er áfram 16.

Frammi­staða Bjarna í kosn­inga­bar­átt­unni virð­ist hafa almennt mælst vel fyrir hjá kjós­endum flokks hans og 83 pró­sent þeirra sögð­ust hann hafa staðið sig vel.

Þótt Sós­í­alista­flokkur Íslands hafi ekki náð inn manni í kosn­ing­unum fékk hann 4,1 pró­sent atkvæða. Einungis Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætti við sig meira fylgi. Flestir kjós­endur Sós­í­alista, alls 87,2 pró­sent, voru ánægðir með frammi­stöðu Gunnars Smára Egils­sonar, for­manns fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins, í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu.

Kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins geta eðli­lega verið sáttir með útkomu kosn­ing­anna 2021. Flokk­ur­inn var óum­deil­an­lega sig­ur­veg­ari þeirra, bætti við sig 9,6 pró­sentu­stigum, varð næst stærsti flokkur lands­ins á ný og fjölg­aði þing­mönnum sínum um fimm í 13. Hann var auk þess eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem tap­aði ekki fylgi á síð­asta kjör­tíma­bili og styrkti stöðu sína í end­ur­nýj­uðu stjórn­ar­sam­starfi veru­lega.

Það kemur því ekki á óvart að könnun Maskínu sýni að 88,6 pró­sent þeirra sem fannst bara best að kjósa Framsókn hafi verið ánægt með frammi­stöðu Sigurðar Inga Jóhanns­sonar í kosn­inga­bar­átt­unni.

Nánast algjör ánægja með frammistöðu Ingu og Katrínar

Hinn sig­ur­veg­ari kosn­inga­bar­átt­unnar var Flokkur fólks­ins, sem leiddur er af Ingu Sæland. Hann bætti við sig 1,9 pró­sentu­stigum og er nú með sex þing­menn. Það er sami þing­manna­styrkur og er hjá Sam­fylk­ingu og Pírötum og áhrif Flokks fólks­ins innan stjórn­ar­and­stöð­unnar því allt önnur og meiri nú en áður.

[links]Kjós­endur flokks­ins voru enda afar ánægðir með frammi­stöðu Ingu í kosn­inga­bar­átt­unni en 93,3 pró­sent þeirra sögðu hana hafa staðið sig vel.

Þeir kjós­endur sem voru ánægð­astir með frammi­stöðu síns for­manns, for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur, voru hins vegar kjós­endur Vinstri grænna. Alls sögð­ust 96,8 pró­sent þeirra að fannst Katrín hafa staðið sig vel í kosn­inga­bar­átt­unni. Einungis Mið­flokk­ur­inn tap­aði meira fylgi á milli kosn­inga en Vinstri græn sem fengu 12,6 pró­sent atkvæða og átta þing­menn kjörna, en fengu 16,9 pró­sent og ell­efu þing­menn árið 2017.

Þegar þátt­tak­endur í könn­un­inni voru spurðir heilt yfir hvaða for­maður hefði staðið sig best sögðu flestir að Sigurður Ingi hefði gert það, en Katrín var ekki langt undan. Fæstum fannst Sig­mundur Davíð hafa staðið sig vel og þar á eftir kom Logi Ein­ars­son.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu. Svar­endur voru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Könnunin fór fram dag­ana 15. til 28. des­em­ber 2021 og voru svar­endur 956 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár