Hótel á hafsbotni, þjófnaður Boney M, Mads, Lambda-afbrigðið og 500 flutningaskip

Þótt ýmis afbrigði kór­ónu­veirunnar og afleið­ingar hennar á aðflutn­ings­kerfi hefðu vakið áhuga les­enda Kjarnans sökktu þeir sér líka í umfjall­anir um stolin lög og fræga leik­ara. Hér eru mest lesnu frétta­skýr­ingar af erlendum vett­vangi á árinu.

5. boney M og stolnu lögin

Þegar söng­hóp­ur­inn Boney M sló í gegn seint á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar með lög­unum „Brown Girl in the Ring“ og „Rivers of Babylon“ grun­aði engan að í kjöl­farið fylgdu mála­ferli sem stæðu í ára­tugi. Það varð þó raunin. Annað lagið reynd­ist leikur sem krakkar á Jamaíku hefðu kunnað ára­tugum sam­an. Og hitt ára­tuga gam­all söngur Rastafara­trú­ar­hreyf­ing­ar­innar, ætt­aður frá Afr­íku og Jamaíka.

Fjallað var um þessa 20 ára deilu í Kjarn­anum í jan­úar. Þar kom meðal ann­ars fram að dóm­ar­inn í mál­inu hafi verið dökk­hærður þegar mála­rekst­ur­inn hófst en grá­hærður þegar honum lauk.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

4. Frægastur danskra leikara

Upp úr 10. nóv­em­ber árið 1965 átti Bente Christiansen von á sér. Hún bjó í Kaup­manna­höfn, ásamt manni sínum Henn­ing Mikk­el­sen og árs­gömlum syni þeirra hjóna, Lars. Barnið sem Bente bar undir belti var ekk­ert að flýta sér í heim­inn og það var ekki fyrr en 22. nóv­em­ber sem til tíð­inda dró. Þá skaust hann í heim­inn dreng­ur­inn sem síðar fékk nafnið Mads.

Hann lærði ball­ett og var atvinnu­dans­ari í ára­tug. Þrítugur að aldri lauk hann leik­ara­námi og er í dag frægastur allra danskra leik­ara.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

3. Hótelið á hafsbotni

Á hafs­botn­inum úti fyrir ströndum Dan­merkur leyn­ist margt, kaf­arar kalla það gósen­land. Fjöldi skipa liggur á hafs­botni á þessum svæð­um, sum þeirra frá síð­ustu öld en önnur hafa legið á hafs­botni öldum sam­an. Vitað er hvar mörg þess­ara skipa liggja en önn­ur, einkum frá fyrri öld­um, hefur ekki tek­ist að finna. Þegar köf­urum tekst að finna eitt­hvað sér­lega merki­legt kom­ast fréttir af slíku ævin­lega í fjöl­miðla. Og þær ber­ast enn þá af og til.

[adspot]Í ára­tugi hafa gengið sögur um að á hafs­botni norðan við Hels­ingja­borg í Svíþjóð liggi stærðar steypu­hlunkur sem átti að vera hluti eins þekktasta hót­els á Norð­ur­löndum. En skyldi þetta nú vera rétt?

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

2. Álfan þar sem Lambda-afbrigðið breiðist út

Í júlí var delta-afbrigði kór­ónu­veirunnar það sem var að gera mestan usla. En í sums staðar í heim­inum var það líka annað afbrigði, lambda, sem vís­inda­menn fylgd­ust grannt með.

Afbrigði þetta hafði verið nokk­urs konar kaf­bátur í far­aldr­inum og senni­lega van­greint, m.a. vegna lík­inda sinna við gamma- og beta-af­brigði kór­ónu­veirunn­ar. Lambda var talið elds­neytið sem m.a. hafði knúið aukn­ingu COVID-19 smita í Suð­ur­-Am­er­íku, Mið-Am­er­íku og á eyjum Kar­ab­íska hafs­ins síð­ustu vikur og þá sér­stak­lega í fátæk­ustu lönd­unum þar sem bólu­setn­ing­ar­hlut­fall var lágt.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

1. 500 flutningaskip komast ekki leiðar sinnar

Í októ­ber síð­ast­liðnum sátu hund­ruð full­hlað­inna flutn­inga­skipa föst vítt og breytt um heim­inn. Framundan var jóla­ver­tíðin og und­an­fari hennar, Black Friday.

Þótt margir kaup­menn hefðu von­ast eftir mik­illi sölu höfðu þeir jafn­framt áhyggjur af að erfitt gæti reynst að útvega vörur fyrir jól­in. Þar lék lyk­il­hlut­verk að um það bil 500 gáma­skip, löstuð með næstum 300 milljón 20 feta gámum, lón­uðu úti fyrir höfnum víðs­vegar í heim­inum.

Borgþór Arn­gríms­son útskýrði af hverju þetta ástand hafði skap­ast í frétta­skýr­ingu.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár