Boney M og stolnu lögin

Þegar söng­hóp­ur­inn Boney M sló í gegn seint á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar með lög­unum „Brown Girl in the Ring“ og „Rivers of Babylon“ grun­aði engan að í kjöl­farið fylgdu mála­ferli sem stæðu í ára­tugi.

Söngflokkurinn Boney M naut mikilla vinsælda víða um heim undir lok áttunda áratugarins.
Söng­flokk­ur­inn Boney M naut mik­illa vin­sælda víða um heim undir lok átt­unda ára­tug­ar­ins.

Stofn­andi Boney M fædd­ist í Þýska­landi árið 1941, skírn­ar­nafn hans var Franz Reuther. Hann hafði frá unga aldri mik­inn áhuga á tón­list en taldi viss­ara að læra eitt­hvað sem hann gæti lifað af, eins og hann sagði síðar í við­tali, og lauk námi sem mat­reiðslu­maður.

Tón­listin átti þó hug hans allan og hann lagði kokka­húf­una á hill­una fljót­lega eftir að nám­inu lauk. Árið 1967 sendi hann frá sér, á smá­skífu, lagið „Will You Ever Be Mine“. Þá hafði hann tekið upp nafnið Frank Farian.

„Will You Ever Be Mine“ vakti litla athygli, en árið 1976 urðu straum­hvörf í lífi Frank Farian. Það ár kom út fyrsta smá­skífa söngsveitar sem Frank Farian hafði ákveðið að kalla Boney M. Á þess­ari smá­skífu var að finna lagið „Baby Do You Wanna Bump“ sem var umskrifun á lagi jama­íska söngv­ar­ans Prince Buster en hjá honum hét lagið „Al Capone“. Þetta var ekki í síð­asta skipti sem Frank Farian leit­aði í smiðju söngv­ara og tón­list­ar­manna frá eyjum í kar­ab­íska haf­inu. 

„Baby Do You Wanna Bump“ naut tals­verðra vin­sælda í Hollandi og Belgíu en þegar hol­lenska sjón­varpið óskaði eftir að söngsveitin flytti lagið í sjón­varp­inu þurfti Frank Farian að hafa hraðar hendur. Þetta sem hann hafði kallað söng­sveit var nefni­lega bara hann sjálfur, hann hafði sungið allar radd­irnar á plöt­unni. En honum tókst að hóa saman fjórum söngv­urum, þremur konum og einum karli, Boney M flokk­ur­inn var orð­inn til. Og kom fram í hol­lenska sjón­varp­inu. Þeir sem horfðu á þátt­inn vissu ekki að aðal­söngv­ar­inn sást ekki á skjánum, Frank Farian var nefni­lega ekki ánægður með söng karls­ins í hópnum, Bobby Farrell, og söng því sjálfur þótt Bobby Farrell hreyfði var­irnar. Bobby Farrell var hins vegar góður dans­ari og féll að því leyti vel inn í hóp­inn.

Í áður­nefndum sjón­varps­þætti flutti hóp­ur­inn meðal ann­ars lagið „Daddy Cool“. Í sept­em­ber 1976, skömmu eftir áður­nefndan hol­lenskan sjón­varps­þátt, kom Boney M fram í tón­list­ar­þætt­inum Der Musikla­den sem sýndur var í þýska sjón­varp­inu.

„Daddy Cool“ sló í gegn og komst hátt, og sums­staðar efst, á vin­sælda­lista útvarps- og sjón­varps­stöðva í Evrópu. Boney M var orðið nafn og fyrsta stóra“ plata sveit­ar­innar sem kom út sum­arið 1976 seld­ist ágæt­lega. Í umsögnum blaða frá þessum tíma má lesa að sviðs­fram­koma sveit­ar­innar sé mjög líf­leg og tón­listin gríp­andi. Söng­hæfi­leikar fjór­menn­ing­anna séu greini­lega mis­jafnir en aðal­söngv­ar­inn Liz Mitchell fær mjög góða dóma. Þess má geta að fjór­menn­ing­arnir í Boney M eiga allir rætur að rekja til eyja í kar­ab­íska haf­inu.

Nafnið sótt í ástralska sjónvarpsþætti

Frank Farian hafði lengi velti fyrir sér hvað söngsveitin sem hann hafði sett saman ætti að heita. Kvöld eitt kveikti hann, sem oftar, á sjón­varp­inu og þá var að ljúka einum þætti í ástr­al­skri þátta­röð. Það fyrsta sem hann sá þegar myndin birt­ist á skjánum (sem tók drjúga stund á þeim árum) var nafnið Boney, sem var heiti þátt­anna.

„Boney, Boney“ sagði Frank Farian við sjálfan sig, „Boney, Boney, Boney, Boney M“ og slökkti á sjón­varp­inu. Í við­tali mörgum árum síðar sagð­ist hann strax hafa verið viss um að Boney M væri rétta nafnið.

Rivers of Babylon og Brown Girl in the Ring

Í apríl 1978 sendi Boney M sveitin frá sér smá­skífu með tveimur lögum. Á þess­ari skífu voru tvö lög: „Rivers of Babylon“ og „Brown Girl in the Ring“. For­ráða­menn útgáfu­fyr­ir­tæk­is­ins voru hand­vissir um að lagið „Rivers of Babylon“ yrði sölu­lag plöt­unnar og settu það á A-hlið­ina. Fljót­lega kom í ljós að það var lagið á B-hlið­inni „Brown Girl in the Ring“ sem naut meiri vin­sælda og þá ákváðu útgef­end­urnir, í skyndi, að senda nýtt upp­lag (aðra pressun) á mark­að­inn og nú var „Brown Girl in the Ring“ komið á A-hlið­ina. Plötu­safn­arar og aðdá­endur Boney M kvört­uðu sumir hverjir, yfir því að þurfa að kaupa sömu plöt­una tvisvar, ef svo mætti segja.

Bæði lögin á þess­ari smá­skífu náðu miklum vin­sældum og voru vikum saman í efstu sætum vin­sælda­lista evr­ópskra útvarps­stöðva. Þetta sama ár sendi Boney M frá sér breið­skíf­una „Night­flight to Venus“. Á þeirri plötu voru 10 lög, þar á meðal bæði „Rivers of Babylon“ og „Brown Girl in the Ring“.

Árið 1978 var tví­mæla­laust hátind­ur­inn á ferli Boney M. Á næstu árum sendi sveitin frá sér nokkrar plötur en engin þeirra náði sama flugi og „Night­fligt to Venus“. Samtals hafa plötur sveit­ar­innar selst í tugum millj­óna ein­taka. Boney M er oft sögð eins­konar sam­nefn­ari diskó tíma­bils­ins, glimmer og stuð.

Saga sveit­ar­innar verður ekki frekar rakin hér en sumir fjór­menn­ing­anna hafa haldið áfram í tón­list­inni, allt til þessa dags. Sama er að segja um Frank Farian, mann­inn á bak­við sveit­ina.

Að eigna sér tónlist annarra

Fljót­lega eftir að smá­skífan með „Brown Girl in the Ring“ og „Rivers of Babylon“ kom á mark­að­inn fóru að heyr­ast raddir um að þessi tvö lög væru hreint ekki samin af Frank Farian. Þetta væru lög sem hann hefði tekið trausta­taki og gert að sínum, þau hefðu bæði orðið til á eyjum í kar­ab­íska haf­inu. „Brown Girl in the Ring“ væri leikur sem krakkar á Jamaíku hefðu kunnað ára­tugum saman. „Rivers of Babylon“ væri hins vegar ára­tuga gam­all söngur Rastafara­trú­ar­hreyf­ing­ar­innar, ætt­aður frá Afríku og Jamaíka. Bæði þessi lög hafa reyndar verið hljóð­rituð áður, en vin­sæld­irnar sem þau náðu í flutn­ingi Boney M urðu til þess að að beina athygl­inni að þeirri stað­reynd að tón­list­ar­menn, austan hafs og vestan, hafa árum saman tekið án heim­ildar lög, sem til hafa orðið í fátæk­ari löndum, og gert að sínum.

Um þetta eru mýmörg dæmi, þar á meðal suð­ur­a­fríska lagið „Mbube“, samið 1939, höf­undur þess Solomon Linda. Fáir kann­ast kannski við þetta nafn, en því betur við „The Lion Sleeps Tonight“, sem Disney fyr­ir­tækið not­aði í kvik­mynd­inni The Lion King. Eftir löng og kostn­að­ar­söm rétt­ar­höld greiddi Disney fyr­ir­tækið erf­ingjum Solomon Linda skaða­bætur.

20 ára deila

Árið 1974, fjórum árum áður en Boney M sendi frá sér smá­skíf­una með met­sölu­lög­unum tveimur „Brown Girl in the Ring“ og „Rivers of Babylon“ hafði fyrr­nefnda lagið komið út á plötu söngv­ar­ans Malcolm Magaron. Þar var höf­und­ur­inn sagður Peter Herbolzheimer, þýskur tón­list­ar­maður og hljóm­sveit­ar­stjóri.

Hann var ósáttur við að Frank Farian skyldi eigna sér lagið og í kjöl­farið tóku við rétt­ar­höld, sem stóðu yfir í um það bil 20 ár. Þýskir fjöl­miðlar sögðu að þegar dóm­ar­inn, Wolfgang Neuschild, hefði fengið málið í sínar hendur hefði hann verið dökk­hærður en orð­inn grá­hærður þegar því lauk. Dómarinn lýsti því yfir þegar mála­ferlin hófust að hann væri vita lag­laus, en þegar mál­inu lauk nefndi hann sér­stak­lega að sitt slaka tón­eyra væri ekki ástæða þess hve langan tíma málið tók. Sér­kenni­legt þótti að hvorki stefn­and­inn né hinn stefndi höfðu samið lagið sem deilt var um og í raun veit eng­inn hver er höf­undur lags­ins. En mál­inu lauk með ein­hvers konar sátt, en inni­hald þeirrar sáttar hefur ekki verið gert opin­bert.

Rétt­ar­höldin vegna „Brown Girl in the Ring“ vöktu athygli á þeirri stað­reynd að höf­undar frá fátækum löndum eiga erfitt með að leita réttar síns gagn­vart fjár­sterkum útgáfu­fyr­ir­tækjum.

Mörg fleiri mál

Í Þýska­landi eru nú í gangi nokkur mál sem varða lög sem tón­list­ar­menn hafa tekið „trausta­taki“. Í Danmörku eru í gangi nokkur slík mál og mörg fleiri væri hægt að nefna.

Ekki er hægt að slá botn í þennan pistil án þess að nefna Jóhann Helgason. Hann hefur um nokk­urra ára skeið átt í mála­ferlum gegn erlendu fjár­sterku erlendu fyr­ir­tæki, Uni­ver­sal Music og norska laga­höf­und­inum Rolf Løvland. Þau snú­ast um lagið „Söknuð“. Ekki sér fyrir end­ann á því máli en þar á Davíð sann­ar­lega í höggi við Golíat.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár