Álfan þar sem lambda-afbrigðið breiðist út

Víðast hvar í heim­inum er það delta-afbrigði kór­ónu­veirunnar sem er að gera mestan usla. En í Suður-Ameríku er það líka annað afbrigði, lambda, sem vís­inda­menn fylgj­ast grannt með.

Heilbrigðisstarfsmenn í Perú fá far með litlu leigubílunum upp í fjöllin með bóluefni í farteskinu.
Heil­brigð­is­starfs­menn í Perú fá far með litlu leigu­bíl­unum upp í fjöllin með bólu­efni í fartesk­inu. Mynd: EPA

Í heims­hlut­anum þar sem gamma-afbrigðið skæða átti upp­tök sín er nú barist við nýjasta afbrigðið sem Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin hefur undir smá­sjánni: Lambda. Afbrigði þetta hefur verið nokk­urs konar kaf­bátur í far­aldr­inum og senni­lega van­greint, m.a. vegna lík­inda sinna við gamma- og beta-afbrigði kór­ónu­veirunnar. Lambda er talið elds­neytið sem m.a. hefur knúið aukn­ingu COVID-19 smita í Suður-Ameríku, Mið-Ameríku og á eyjum Kar­ab­íska hafs­ins síð­ustu vikur og þá sér­stak­lega í fátæk­ustu lönd­unum þar sem bólu­setn­ing­ar­hlut­fall er lágt.

Kjarninn ætlar á næstu dögum að birta frétta­skýr­ingar um stöðu far­ald­urs­ins í hverri heims­álfu fyrir sig. Sú fyrsta fjall­aði um Norður-Ameríku og hér verður fjallað um Suður-Ameríku, eða öllu heldur rómönsku Ameríku, svæði sem nær bæði yfir Suður- og Mið-Ameríku.

[adspot]

Þó að aðeins átta pró­sent jarð­ar­búa búi í Rómönsku Ameríku hafa þar greinst yfir 20 pró­sent allra smita í heims­far­aldr­inum og 32 pró­sent allra dauðs­falla orðið þar. Þrátt fyrir þessar nöt­ur­legu stað­reyndir hefur aðeins einn af hverjum tíu íbúum svæð­is­ins verið bólu­settur og í nokkrum löndum, t.d. í Hondúras og Gvatemala í Mið-Ameríku, er hlut­fallið innan við eitt pró­sent.

[links]Dauðs­föllum og inn­lögnum á sjúkra­hús fór fækk­andi í sum­ar­byrjun. Í júní hófst ný bylgja. Dregið hefur úr henni í nokkrum löndum álf­unnar er smitum er hins vegar að fjölga í öðrum. Óttast er að sam­hliða því eigi fleiri eftir að veikj­ast alvar­lega sér­stak­lega í ljósi þess að fleiri sýk­ingar eru farnar að grein­ast í löndum þar sem hlut­fall bólu­setn­inga er sér­lega lágt.

Lambda-afbrigðið greind­ist fyrst í Perú snemma í ágúst á síð­asta ári en í des­em­ber var það búið að breyt­ast enn frekar og fá sína ein­kenn­is­stafi innan vís­ind­anna, C.37. Það hefur síðan þá greinst í um þrjá­tíu löndum, þar af sjö í Suður-Ameríku, og er það nýjasta sem WHO flokkar sem „athygl­is­vert” (e. vari­ant of inter­est). Veiru­af­brigði fá aðeins þann stimpil þegar stökk­breyt­ingar eru miklar og þau þegar valdið hóp­sýk­ingum eða sam­fé­lags­smiti.

Afgerandi afbrigði í Perú

Lambda fór á var­úð­ar­lista WHO um miðjan júní eftir að það tók að grein­ast í auknum mæli á mörgum stöðum sam­tímis. Í Perú eru rúm­lega 90 pró­sent nýrra smita af völdum þess. Sömu­leiðis þriðja hvert smit í Chile. Það er svo einnig að breið­ast út í Argent­ínu, Brasilíu, Kólumbíu, Ekvador og Mexíkó.

Enn er ekki hægt að segja með vissu hversu smit­andi lambda-afbrigðið er miðað við þau sem hingað til hafa greinst en veiru­fræð­ingar eru þó á því að delta-afbrigðið, sem er að breið­ast hrað­ast út í heim­inum þessa stund­ina, hafi vinn­ing­inn. „Það er mögu­legt að [lambda-afbrigðið] sé meira smit­andi en flest önnur en við höfum ekki enn nægi­legar upp­lýs­ingar til að bera það saman við gamma- og delta-afbrigðin,“ segir Jairo Mendez-Rico, smit­sjúk­dóma­sér­fræð­ingur hjá WHO.

„Ég er sann­færður um að við eigum eftir að sjá alvar­legt ástand blossa aftur upp í Suður-Ameríku á næstu vikum,“ segir Alfonso Rodriguez-Morales, far­alds­fræð­ingur og vara­for­seti smit­sjúk­dóma­stofn­unar Kólumbíu.

Vangreint

Lambda-afbrigðið var ekki ofar­lega á var­úð­ar­listum sér­fræð­inga framan af þar sem það var van­greint vegna skyld­leika síns við gamma-afbrigðið – afbrigði sem fyrst greind­ist í Brasilíu í fyrra og olli skæðri bylgju þar í landi og víðar. Í Perú, svo dæmi sé tekið, er almennt beitt aðferðum sem ekki geta greint á milli beta-, gamma- og lambda-afbrigð­anna. Dýr tækja­bún­aður til ítar­legra rað­grein­inga er ein­fald­lega ekki til staðar.

[adspot]

Lambda er ekki „nándar nærri“ jafn var­huga­vert og delta-afbrigðið, að mati banda­ríska smit­sjúk­dóma­sér­fræð­ings­ins S. Wesley Long. Á sjúkra­hús­inu sem hann starfar í Houston greind­ist fyrsti sjúk­ling­ur­inn með lambda-afbrigðið í síð­ustu viku. „Sama hvaða stafur í gríska staf­róf­inu er næstur, bólu­efni eru enn okkar besta vörn,“ segir Long.

Bylgjur rísa og hníga

Þegar horft er á heild­ar­fjölda greindra smita í Suður- og Mið-Ameríku hefur þeim fækkað síðan í júní er þau voru í hæstu hæðum frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Þessi þriðja bylgja far­ald­urs­ins reis hæst í Kólumbíu í síð­ustu viku júní­mán­aðar. Þrátt fyrir að dregið hafi úr greindum til­fellum er fjöldi smita enn mjög mik­ill sam­an­borið við önnur lönd. Brugðist var við með því að efla skimun og dreif­ingu bólu­efna. Í síð­ustu viku voru smitin um 38 pró­sent færri en í vik­unni áður. Engu að síður er enn að grein­ast yfir 16 þús­und til­felli á dag.

Brasilía er það land Suður-Ameríku sem orðið hefur hvað verst úti í far­aldr­inum til þessa. Þar hafa um 19,4 millj­ónir smita greinst. „Allt sem þú ættir ekki að gera – það hefur Brasilía gert,“ segir Pedro Hallal, far­alds­fræð­ing­ur­inn sem rann­sakað hefur COVID-19 í Brasilíu. Hann segir í við­tali á BBC að ný afbrigði, lágt bólu­setn­ing­ar­hlut­fall og fals­fréttir hafa orðið til þess að far­ald­ur­inn hefur nær hvergi í heim­inum orðið jafn skæður og þar. Í síð­ustu viku voru 25 pró­sent færri til­felli greind í land­inu en í vik­unni á undan. Enn eru þó að grein­ast yfir 30 þús­und til­felli á dag.

Líkt og í Kólumbíu og Brasilíu er loks tekið að draga úr smitum í Argent­ínu eftir júní-bylgj­una miklu. Í síð­ustu viku voru yfir 13 þús­und ný til­felli á degi hverjum. Yfir 100 þús­und Argent­ínu­menn hafa lát­ist vegna COVID-19.

Uppsveifla eftir afléttingar

Í Mexíkó er delta-afbrigðið að ná yfir­hönd­inni og þar hefur smitum fjölgað hratt síð­ustu daga. Á milli vikna fjölg­aði til­fellum um 96 pró­sent og fyr­ir­huguð aflétt­ing tak­mark­ana á ferða­lögum yfir landa­mærin að Banda­ríkj­unum er í upp­námi. Yfir 15 þús­und smit voru skráð í Mexíkó á mið­viku­dag og 400 dauðs­föll.

Á Kúbu er svipað uppi á ten­ingnum og þar má segja að fyrsta eig­in­lega bylgjan standi yfir. Mánuðum saman hafði með hörðum aðgerðum tek­ist að halda veirunni í skefjum. Eftir að þeim var aflétt nýverið hóf delta-afbrigðið að dreifast þar um og álag á heil­brigð­is­kerfið, sem var veikt fyrir, er orðið mikið. Til­fellum fjölg­aði um 88 pró­sent á milli vikna, sam­kvæmt gögnum New York Times. Í heild hafa um 300 þús­und greinst með veiruna á Kúbu og um þriðj­ungur þeirra nú í júlí.

Hvergi í heim­inum hafa hlut­falls­lega jafn­margir dáið úr COVID-19 en í Perú. Talið er að veiran hafi fellt um 0,54 pró­sent þjóð­ar­innar. Líklegt er talið að lambda-afbrigðið hafi valdið annarri bylgju far­ald­urs­ins sem varð í land­inu í mars og apríl. Um 12,5 pró­sent íbú­anna eru full­bólu­sett.

Í nágranna­rík­inu Chile hafa um 58 pró­sent þjóð­ar­innar verið bólu­sett, flestir með hinu kín­verska bólu­efni CoronaVac. Ljóst þykir að vörnin sem það veitir er langt undir vænt­ingum. Sam­komu­tak­mörk­unum var aflétt þegar bólu­setn­ingar voru vel á veg komnar. Það var gert of snemma í ljósi þess að ný og meira smit­andi afbrigði eru á kreiki, að mati per­úska veiru­sér­fræð­ings­ins Pablo Tsukayama, sem fyrstur greindi lambda-afbrigðið.

Ólga eykur hættuna

Fleira en hæga­gangur í bólu­setn­ingum vekur ugg hvað far­ald­ur­inn í Suður-Ameríku snertir. Í Kólumbíu og Brasilíu sem og á eyj­unum Kúbu og Haítí er mikil póli­tísk ólga og mót­mæli og óeirðir hafa átt sér stað. Það hefur gert heil­brigð­is­starfs­fólki erfitt fyrir að sinna störfum sínum, m.a. bólu­setn­ingum.

„Vaxandi ofbeldi, óstöð­ug­leiki og yfir­full skýli [heim­il­is­lausra] gætu orðið næstu suðu­pottar COVID-smita,“ sagði Carissa Etienne, yfir­maður Suður-Amer­íku­deildar WHO við sjón­varps­stöð­ina CNBC nýverið. „Tak­mörkuð aðföng og ofbeldi eru líka að hindra heil­brigð­is­starfs­menn í að sinna sjúk­lingum af öryggi. Í sumum til­fellum gætu svo sjúk­lingar verið að forð­ast að leita sér aðstoðar af örygg­is­á­stæðum.“

Fjöl­margir vís­inda­menn hafa sagt að far­aldri kór­ónu­veirunnar ljúki ekki fyrr en að minnsta kosti 80 pró­sent jarð­ar­búa hafi verið bólu­sett. Þangað til munu stökk­breytt afbrigði á borð við gamma, delta og lambda halda áfram að koma fram á sjón­ar­sviðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár