Velkomin í fjórðu bylgjuna: Skafl rís úr undirdjúpunum

Hóp­sýk­ingar hafa að und­an­förnu blossað upp á þeim svæðum í Banda­ríkj­unum þar sem bólu­setn­ing­ar­hlut­fallið er lágt. Vanmat á því sem er að ger­ast hér og hvar í land­inu gæti endað með enn einni bylgju far­ald­urs­ins.

Mun fjórða bylgjan springa út í Bandaríkjunum?
Mun fjórða bylgjan springa út í Banda­ríkj­unum? Mynd: EPA

Við höfum notað ýmsar vís­anir í nátt­úru­ham­farir til að lýsa heims­far­aldr­inum. Hann hefur farið um eins og eldur í sinu. Líkastur felli­byl. Storm­sveip. Skollið á með flóðum. Í öldum og bylgjum.

Í nýrri frétta­skýr­ingu Time er enn eitt orðið til að lýsa stöðu far­ald­urs­ins fengið að láni úr ham­fara­orða­bók­inni: Útsog. Straum­strengur undir yfir­borði sjávar sem virð­ist hættu­laus, lætur ekki mikið yfir sér, en getur reynst ban­vænn. Fólk áttar sig ekki á hætt­unni fyrr en um seinan. Við Íslend­ingar þekkjum þetta fyr­ir­bæri til dæmis úr nátt­úruperlunni Reyn­is­fjöru.

[links]Það má fara dýpra í mynd­lík­ing­una. Tala um að skjálftar eða skriður hafi átt sér stað í mik­illi fjar­lægð. Eldgos jafn­vel. Myndast hafi bylgjur á hafflet­inum sem eng­inn varð var við í fyrstu. En þegar þær koma að landi – okkar landi eða öðrum – rísa þær upp í gríð­ar­stóra skafla.

Hættan verður mest í slíkum aðstæðum þegar búið er að taka mæl­ana úr sam­bandi. Mælana sem áttu að vara okkur við. Við sofnum á verð­inum. Og einnig ef eng­inn hlustar á flóð­bylgju­við­vör­un­ina þegar aldan er við það að skella á land. Þegar bent er á að kút­ur­inn og kork­ur­inn sem okkur voru fengnir halda ekki jafn vel vatni og von­ast var til.

Hröð fjölgun smita af kór­ónu­veirunni hér á landi hefur komið mörgum í opna skjöldu. Við töldum okkur orðin nokkuð örugg í öldurót­inu með bólu­efni að vopni. Annað virð­ist vera að koma á dag­inn þótt enn eigi eftir að koma í ljós hversu stór og hversu alvar­leg bylgjan verður. Óvissa er enn og aftur framundan.

[adspot]

En við erum ekki ein. Skaflinn sem er að hell­ast yfir okkur úr djúp­inu er tek­inn að rísa víðar á jörð­inni. Og þótt margir segi komið gott af hömlum á dag­legt líf fólks eru aðrir, m.a. vís­inda­menn, á því aflétt­ingar allra tak­mark­ana séu enn ótíma­bærar. Geti reynst hættu­legar.

Kjarninn ætlar næstu daga að birta frétta­skýr­ingar um stöðu far­ald­urs kór­ónu­veirunnar innan hverrar heims­álfu fyrir sig. Í þeirri fyrstu verður sjónum beint að Norður-Ameríku, með áherslu á Banda­ríkin og Kanada.

Útsogið

Útsogið, sem notað er í skýru Time um far­ald­ur­inn í Banda­ríkj­unum, lýsir sér þannig að smáar hóp­sýk­ingar hófu að skjóta upp koll­inum í ríkjum þar sem bólu­setn­ing er hvað styst á veg komin. Þær blossuðu upp hver af annarri í sýslu eftir sýslu. Ríki eftir ríki. Byrjuðu í sunn­an­verðum mið­ríkj­unum en hafa svo liðið áfram, hægt og hljótt en örugg­lega, allt suður að Mexíkó-flóa. Ein og ein virt­ust þær nokkuð sak­leys­is­legar. Viðbúnar. Fyr­ir­sjá­an­legar eftir til­slak­anir aðgerða síð­ustu mán­uði. En þegar horft er á þær allar í einu blasir heldur dökk mynd við.

Talið er að þær séu flestar af völdum hins bráðsmit­andi delta-afbrigðis og í ljósi þess og hversu útbreiddar sýk­ing­arnar eru þegar orðnar eru mörg teikn komin á loft. Smit gætu farið um eins og logi yfir akur. Eins og bál sem upp koma skyndi­lega á mörgum stöðum í einu og verða svo að umfangs­miklu eld­hafi. Og óbólu­settir yrðu ekki þeir einu sem myndu sýkj­ast. Fjórða bylgja COVID-19 er í upp­sigl­ingu í Banda­ríkj­unum og hún mun koma mörgum að óvörum.

Víða í Banda­ríkj­unum hefur veru­lega verið dregið úr skimun vegna kór­ónu­veirunnar. Áherslan hefur verið lögð á bólu­setn­ingar. Þetta hefur gert það að verkum að þró­unin er ekki jafn aug­ljós og áður og heild­ar­myndin því heldur óskýr. Ónákvæm.

Jennifer Nuzzo, einn helsti far­alds­fræð­ingur Johns Hopkins-háskóla, segir að þótt vel sé haldið utan um fjölda alvar­legra tifella í Banda­ríkj­unum séu það „allir hinir“ sem hún hafi áhyggjur af. „Við verðum að snúa sjón­auk­anum að öðrum hlutum him­ins­ins.“

Veitir vörn en minni en vonast var til

Enn telja vís­inda­menn að bólu­efnin veiti vörn gegn veirunni, þrátt fyrir að öllum sé orðið ljóst að bólu­settir geti sýkst og smitað svo aðra. Það sem þeir eiga við er að bólu­efnin veiti góða vörn gegn alvar­legum veik­indum og þar af leið­andi dauða. Engu að síður telja þeir sem rætt er við í frétta­skýr­ingu Time margir hverjir fulla þörf á því að grípa einnig til ann­arra vopna – nú þegar fjórða bylgjan er farin að sýna krypp­una.

Í Los Angeles-sýslu í Kali­forníu hefur t.d. verið sett á grímu­skylda að nýju inn­an­dyra. Allir þurfa að bera grímu, ekki aðeins hinir óbólu­settu. Þetta er öfugt við til­mæli Smit­sjúk­dóma­stofn­unar Banda­ríkj­anna (CDC). En í sýsl­unni vilja menn hafa allan var­ann á. Fleiri eru lík­legar til að fylgja í kjöl­farið.

Fólk gerir það ekki síst til að hlífa óbólu­settum börnum sínum. Því líkt og á Íslandi eru lang­flest börn í Banda­ríkj­unum ekki enn bólu­sett. Og þrátt fyrir að þau veik­ist almennt minna af veirunni en þeir sem eldri eru myndi far­aldur á meðal þeirra alltaf hafa hættu í för með sér. Og skóla­starf hausts­ins verða í upp­námi.

Gjá á milli ríkja

Tæplega 400 millj­ónum skammta af bólu­efni hefur verið dreift um Banda­ríkin. Mikill meiri­hluti þeirra hefur þegar verið gef­inn fólki. Rétt tæpur helm­ingur íbú­anna er full­bólu­settur eða yfir 160 millj­ónir ein­stak­linga. Það er hins vegar tölu­verður munur á hlut­falls­töl­unum milli ríkja. Þannig eru rétt um 20 pró­sent íbúa í ákveðnum sýslum í t.d. Louisiana og Miss­issippi þegar bólu­sett. Í heild eru um 40 pró­sent íbúa þess fyrr­nefnda bólu­settir og aðeins 38 pró­sent þess síð­ar­nefnda. Norðar, t.d. í Vermont og Maine, er staðan allt önnur. 75 pró­sent íbúa Vermont eru bólu­settir og 68 pró­sent íbúa Maine.

Um 35 milljón til­felli af kór­ónu­veirunni hafa verið greind í Banda­ríkj­unum frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Yfir 250 þús­und ný til­felli hafa greinst þar á einni viku. Fyrir viku voru þar að grein­ast um 10-12 þús­und til­felli á dag. Í gær voru þau um 56 þús­und. Þá var til­kynnt um 416 dauðs­föll sem rakin eru til COVID-19. Að minnsta kosti 605 þús­und manns hafa lát­ist vegna sjúk­dóms­ins í Banda­ríkj­unum.

[adspot]

Í nágranna­rík­inu í norðri, Kanada, er staðan allt önnur og hefur verið að mestu frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Þar náð­ist sá árangur nýverið að hlut­falls­lega fleiri Kanada­menn en Banda­ríkja­menn voru bólu­settir. Bæði eru löndin komin fast að 50 pró­sent bólu­setn­ingu en þegar kemur til sam­keppn­innar og sam­an­burð­ar­ins sem oft getur verið harður á Kanada vinn­ing­inn í augna­blik­inu.

Bólu­setn­ing­ar­her­ferð Kanada­manna átti brös­ótta byrjun. Þeir settu mörg egg í körf­una, pönt­uðu bólu­efni frá fjölda fyr­ir­tækja. Mánuðum saman voru svo tafir í fram­leiðslu margra lyfja­fyr­ir­tækja að hafa áhrif sem og tafir í afhend­ingu á send­ingum. Á sama tíma tóku Banda­ríkja­menn, sem fram­leiða sjálfir mikið magn bólu­efnis, fram úr.

Um 1,4 milljón til­felli hafa verið stað­fest í Kanada í far­aldr­inum. Rúmlega 26 þús­und manns hafa lát­ist. Þar hafa líkt og víða þrjár bylgjur gengið yfir, sú síð­asta í apríl og maí. Til­fellum hefur ekki verið að fjölga milli vikna að und­an­förnu líkt og reyndin er hjá nágrönn­unum í Banda­ríkj­unum. Um 50 pró­sent íbú­anna eru full­bólu­settir og ríf­lega 70 hafa fengið að minnsta kosti annan skammt­inn. Líkt og í Banda­ríkj­unum er þó tölu­verður munur milli svæða innan hins víð­feðma lands. Í norð­ur­hluta Yukon og á Norð­vestur-svæð­unum er hlut­fallið hæst eða um 60 pró­sent. Við Atl­ants­hafið er það nokkuð lægra og á Nýfundna­landi er það til að mynda rétt yfir 30 pró­sent.

En það er ekki nóg að byrja bratt þegar kemur að bólu­setn­ingum. Þótt sú hafi verið raunin í Banda­ríkj­unum hefur nú veru­lega hægt á þeim þar og háleit mark­mið Joes Bidens for­seta um að 60-70 pró­sent íbú­anna yrðu bólu­sett snemm­sum­ars er löngu fokið út um glugg­ann. Bólu­setn­ingatregða er raun­veru­legt vanda­mál sem allt strandar nú á. Biden hefur brugð­ist við með því að hvetja til þess að sett verði upp aðstaða til bólu­setn­inga á vinnu­stöðum og að starfs­mönnum verði boð­inn frí­dagur gegn því að fara í bólu­setn­ingu.

Þetta er ekki góð staða í ljósi þess að hið bráðsmit­andi delta-afbrigði veirunnar er nú komið á mikið flug vest­an­hafs eins og svo sem á flestum stöðum í heim­inum. Afbrigðið sem „tekur yfir“ hvar sem það nær land­festu. Það er talin ástæða þess að dag­legur fjöldi smita hefur þre­fald­ast á rúm­lega tveimur vikum og hóp­sýk­ingar orðið í Texas, Arkansas og Missouri.

Ekki víst að landamærin verði opnuð

Stjórn­völd í bæði Banda­ríkj­unum og Kanada hafa farið var­lega í það að opna landa­mæri sín. Þannig eru ónauð­syn­leg ferða­lög bönnuð þangað þótt Banda­ríkja­menn sjálfir geti ferð­ast um víða, séu þeir bólu­settir og fari í PCR-próf ýmist rétt fyrir heim­komu eða strax og komið er heim. Justin Trudeau, for­sæt­is­ráð­herra Kanada, hefur boðað opnun landamæra fyrir bólu­setta milli Kanada og Banda­ríkj­anna um miðjan ágúst. Hann hefur líka sagst ætla að opna landa­mærin fyrir ferða­mönnum frá öllum löndum með sömu skil­yrðum í sept­em­ber. Þær fyr­ir­ætl­anir kunna að breyt­ast enda setti hann þann fyr­ir­vara að staðan yrði að vera orðin góð.

Allt virð­ist stefna í eina átt í Banda­ríkj­unum. Að fjórða bylgjan sé við það að bresta á, verði ekk­ert að gert. Reyndar er erfitt að tala um Banda­ríkin í heild í þessu sam­bandi – ekki frekar en í fyrri bylgjum. Djúp gjá hefur mynd­ast í bólu­setn­ingum milli ríkja – og milli sýsla innan þeirra. Smitum hefur fjölgað á svæðum þar sem hlut­fallið er lágt. Líkt og víð­ast ann­ars staðar hefur tak­mörk­unum á sam­komum og ferða­lögum fólks verið aflétt und­an­farnar vikur og mán­uði. Það var gert vegna bólu­setn­ing­anna. Þær voru björg­un­ar­hring­ur­inn.

„Að bera saman ríkin er ekki góður mæli­kvarði, við þurfum fínni greiðu til að sjá hvað er að ger­ast,“ segir far­alds­fræð­ing­ur­inn Jennifer Nuzzo við Time. Hún segir hóp­sýk­ing­arnar sem blossað hafa upp und­an­farnar vikur margar vera að eiga sér stað á dreif­býlli svæðum en áður. Horfa verði á smit­tölur og sjúkra­húsinn­lagnir stað­bundið – ekki á lands­vísu. Aðeins þannig sé hægt að öðl­ast yfir­sýn yfir stöð­una. Lyk­il­at­riðið sé svo að horfa á smit­tölur í takti við fjölda sýna sem tekin eru. Þeir sem eru nú að grein­ast er aðal­lega fólk sem hefur sýnt ein­hver ein­kenni sjúk­dóms­ins. Það eru þeir sem mæta í sýna­töku.

[adspot]

Lands­lagið er því allt annað nú en í fyrstu bylgj­unum. Margir eru áhyggju­lausir að njóta frels­is­ins sem fékkst með afnámi tak­mark­ana í kjöl­far útbreiddra bólu­setn­inga. „Við erum að haga okkur nákvæm­lega eins og við gerðum fyrir ári síðan,“ segir Murray Cote, pró­fessor við háskóla í Texas. Þar vísar hann í síð­asta sumar þegar til­fellum af kór­ónu­veirunni fór fækk­andi. Fólk pakk­aði grímunni niður og gleymdi sér í gleð­inni. Svo kom önnur bylgjan.

Núna er bólu­efni komið til sög­unnar. Það hefur róað marga. En getur verið að um svika­logn hafi verið að ræða?

Bóluefni veita ekki full­komna vörn. Og þau veita minni vörn gegn delta-afbrigð­inu en þeim fyrri sem við höfum feng­ist við. Kannski er vörnin því um 60 pró­sent, hafa vís­inda­menn jafn­vel áætlað, þótt eng­inn viti það enn með vissu. Það þýðir að fjórir af hverjum tíu gætu sýkst og mögu­lega veikst. Ef fjórða bylgjan skellur á þá mun það þýða fleiri sjúkra­húsinn­lagnir og fleiri dauðs­föll en orðið hafa á síð­ustu vikum. Og ekki má svo gleyma því að í Banda­ríkj­unum er aðeins um helm­ingur íbú­anna bólu­settur.

Bólu­setn­ingar Í Norður-Ameríku og Evrópu eru engu að síður marg­falt fleiri – sam­kvæmt öllum mæli­kvörðum – en t.d. í Afríku og Suður-Ameríku. Aðeins um eitt pró­sent íbúa fátæk­ustu landa heims hafa fengið að minnsta kosti annan skammt bólu­efnis. Þessi gjá bíður ekki aðeins hætt­unni heim á þessum svæðum. Hrika­legu mann­falli þar sem góð heil­brigð­is­þjón­usta er á fæstra færi. Hún ógnar allri heims­byggð­inni.

Delta-afbrigðið varð til á Indlandi þar sem fáir voru bólu­settir og gríð­ar­legur fjöldi smit­aður.

Nákvæm­lega sömu aðstæður eru enn uppi víða um heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár