500 flutningaskip komast ekki leiðar sinnar

Þessa dag­ana sitja hund­ruð full­hlað­inna flutn­inga­skipa föst vítt og breitt um heim­inn. Afleið­ing­arnar eru þær að alls kyns varn­ingur kemst ekki á leið­ar­enda. Og jólin nálg­ast.

Flutningskerfi heimsins hefur raskast vegna kórónuveirufaraldursins. Það mun kom fram í hækkandi verðum til neytenda.
Flutn­ings­kerfi heims­ins hefur raskast vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Það mun kom fram í hækk­andi verðum til neyt­enda. Mynd: Pexels

Á upp­lýs­inga­síðu flutn­inga- og grein­inga­fyr­ir­tæk­is­ins VesselsValue er að finna margs­konar upp­lýs­ingar varð­andi vöru­flutn­inga og skipa­ferðir um öll heims­ins höf. Upp­lýs­ing­arnar sem þar má nálg­ast sýna, svo ekki verður um villst, þau gríð­ar­legu áhrif sem kór­ónu­veiran hefur haft á vöru­flutn­inga landa og heims­álfa á milli. Á vef­síðu Vessels Value kemur fram að núna lóni um það bil 500 full­hlaðin gáma­flutn­inga­skip úti fyrir höfnum víðs­vegar í heim­inum. Flest eru þessi skip mjög stór og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Vessels Value eru næstum 300 millj­ónir 20 feta (kall­aðir stand­ard) gáma um borð í þessum skipum, eða bíða á hafn­ar­bökkum víðs­vegar í heim­inum. Og skip­unum, sem hvorki kemst lönd né strönd, fjölgar með degi hverjum. Sem dæmi um það má nefna að í síð­ustu viku fjölg­aði skipum sem bíða fyrir utan Ningbo-Zhoushan, eina stærstu inn- og útflutn­ings­höfn Kína um 48%.

Hvað er í öllum þessum gámum?

Svarið við þess­ari spurn­ingu er ein­falt: allt milli him­ins og jarðar. Leikföng, bíla­vara­hlutir, fatn­aður, hús­gögn, mat­vörur, reið­hjól, prent­ara­blek, göngu­skór, raf­tæki, snyrti­vörur o.s.frv.

Kórónuplágan breytti neyslunni

Þegar kór­ónu­veiran braust út brugð­ust fram­leið­endur og eig­endur versl­ana við. Dregið var úr fram­leiðsl­unni og versl­anir drógu úr inn­kaupum, til að minnka lag­er­inn. Þetta mat reynd­ist hins­vegar rangt. Neysla og inn­kaup almenn­ings jókst. Ferðalög lögð­ust að mestu leyti af en sala á bús­á­höldum, inn­rétt­ingum, máln­ingu, hrein­læt­is­tækjum, hús­gögnum og fatn­aði jókst. Skýrasta dæmið hér á Íslandi var lík­lega stór­aukin sala á „pallatimbri“. Margir gripu í tómt í timb­ur­versl­unum þegar ráð­ast átti í fram­kvæmdir. Sala á „heitum“ pottum marg­fald­að­ist sömu­leiðis.

Erfitt að bregðast við

Þegar verk­smiðju­eig­endur og versl­un­ar­menn átt­uðu sig á því að þeir hefðu mis­reiknað sig reyndu þeir að bregð­ast við. Það hefur ekki reynst auð­velt. Stór hluti alls kyns neyslu­varn­ings sem fluttur er til Evrópu og Banda­ríkj­anna er fram­leiddur í Asíu og fluttur þaðan sjó­leiðis. Í mörgum Asíu­löndum herjar kór­ónu­veiran enn og það hefur orðið til þess að mörg fram­leiðslu­fyr­ir­tæki geta ekki starfað með eðli­legum hætti. Vegna veirunnar hafa margar hafnir í Asíu verið lok­aðar og það orsakar flösku­háls í flutn­ing­unum.

[adspot]

Fleira kemur til

Þótt kór­ónu­veiran hafi sett stórt strik í „vöru­streym­is­reikn­ing­inn“ kemur fleira til. Í Taívan er stærsta verk­smiðja tölvukubba (microchips) í heim­inum. Fyrr á þessu ári herj­uðu þar miklir þurrkar og það olli því að verk­smiðjan gat engan veg­inn annað eft­ir­spurn­inni. Þetta hefur haft mjög mikil áhrif, meðal ann­ars í bíla­iðn­að­inum. Bíla­verk­smiðjur í Evrópu, Asíu og Banda­ríkj­unum reiða sig á kubbana frá Taívan og þegar þeir eru ekki fáan­legir er fátt til ráða. „Tölvu­bún­aður af ýmsu tagi stjórnar í raun öllu sem ger­ist, sama hvað er“ sagði aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri sam­taka danskra iðn­fyr­ir­tækja í við­tali við danska sjón­varpið fyrir nokkrum dögum. Hann sagð­ist jafn­framt telja að ástandið verði ekki komið í eðli­legt horf fyrr en um mitt næsta ár, kannski síðar.

Sýnir hve framleiðslu- og flutningskeðjan er viðkvæm

Mörgum er eflaust í fersku minni þegar flutn­inga­skipið Ever Given sat fast í Súez skurð­inum í Egypta­landi í mars á þessu ári, með um 20 þús­und gáma inn­an­borðs, á leið til Hollands. Strandið varð til þess að fjöld­inn allur af skipum komst ekki leiðar sinnar en sex sól­ar­hringar liðu áður en tókst að losa Ever Given og opna skurð­inn fyrir umferð á ný.

Þessi atburður opn­aði augu margra fyrir því hve hag­kerfi heims­ins er í raun við­kvæmt og má við litlu. Afleið­ingar kór­ónu­plág­unnar hafa svo leitt þetta enn betur í ljós á síð­ustu vikum og mán­uðum. Um það bil 70% af öllum vörum sem fram­leiddar eru í heim­inum eru fluttar með gámum frá fram­leiðslu­stað til neyt­enda. Og að treysta á við­kvæmt flutn­inga­kerfi getur haft margs­konar erf­ið­leika í för með sér. Meðal þeirra fyr­ir­tækja sem kór­ónu­veiran hefur haft mikil áhrif á er IKEA. Peter Langskov vöru­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í Danmörku sagði í við­tali við DR, að venju­lega kæmu dag­lega um það bil 45 flutn­inga­bílar með vörur í versl­anir IKEA í Danmörku, núna er eru þeir iðu­lega 35 og stundum færri. IKEA hafi brugðið á það ráð að flytja vörur frá Asíu með lest og hafi keypt tóma gáma og sé að und­ir­búa að leigja gáma­skip til vöru­flutn­inga. Peter Langskov telur aug­ljóst að verð á flestum ef ekki öllum vörum muni hækka. Venjuleg vöru­lest getur flutt 40 – 42 gáma, skip er auð­vitað lengur á leið­inni en það getur flutt 10 þús­und gáma eða jafn­vel helm­ingi fleiri.

Verð hefur hækkað og mun hækka enn meira

Peter Langskov sagði í áður­nefndu við­tali aug­ljóst að verð á flestum ef ekki öllum vörum muni hækka. Kaupmenn og for­svars­menn fyr­ir­tækja tóku allir undir þetta í við­tölum við blaða­menn dag­blað­anna Politi­ken og Berl­ingske og nefndu sem dæmi að kostn­að­ur­inn við að flytja gám frá Asíu til Evrópu hafi fjór­fald­ast að und­an­förnu. Hann bæt­ist ofan á verð­hækk­anir frá fram­leið­endum.

Gætu þurft að endurskoða jólagjafalistann

Nú nálg­ast sá tími sem versl­un­ar­eig­endur nefna gjarna jóla­ver­tíð­ina. Flestir þeirra hafa fyrir löngu gengið frá pönt­unum á jóla­varn­ingnum. En það er ekki nóg að panta, það þarf líka að fá vör­urnar heim og koma þeim í hill­urnar. Einn danskur kaup­maður sagð­ist eiga 30 þús­und jóla­álfa (nisse) á hafn­ar­bakk­anum í einni stærstu höfn Kína. „Við höfum borgað heil­mikið til að fá þá flutta hingað heim, en það eru alltaf ein­hverjir sem bjóða betur, svo við vitum ekk­ert hvað verður. Það er nefni­lega eins­konar verð­stríð í gangi, allir vilja fá sínar vörur fluttar og það hleypir flutn­ings­kostn­að­inum upp.“ Margir kaup­menn eru búnir að láta prenta jóla­gjafa­bæk­ling­inn þótt þeir séu engan veg­inn vissir um að allt sem þar má sjá verði yfir­leitt í boði. Blaða­maður Berl­ingske gerði sér ferð í nokkrar versl­anir sem selja íþrótta- og úti­vi­starfatnað. Hann spurði um hlaupa­skó frá Adidas eða Nike, hvor­ugir feng­ust í hans stærð. Sömu sögu var að segja af íþrótta­buxum, þær feng­ust ekki. Blaða­mað­ur­inn gat ekki heldur fengið dekk sem pass­aði á reið­hjólið. Í einni bús­á­halda­verslun vildi hann kaupa pott af til­tek­inni stærð og gerð, rauðan. „Rauðan“ sagði starfs­mað­ur­inn „hann eigum við ekki til en við eigum grænan“. Hann vildi blaða­mað­ur­inn ekki.

Áður en jóla­ver­tíð kaup­manna hefst gengur yfir önnur ver­tíð, eins­konar und­an­fari. Það er Black Friday. Síðasti föstu­dagur nóv­em­ber­mán­aðar ár hvert, ber í ár uppá 26. nóv­em­ber. Black Friday er oft tal­inn marka upp­haf jóla­versl­un­ar­innar, með alls kyns til­boðum. Nafnið er dregið af því að bók­halds­tölur versl­ana breyt­ast úr rauðum (halla­rekstri) í hagnað. Þótt margir kaup­menn von­ist eftir mik­illi sölu hafa þeir jafn­framt áhyggjur af að erfitt geti reynst að útvega vörur fyrir jólin. Af þessum sökum verða ein­hverjir hugs­an­lega að breyta jóla­gjafalist­anum, Jói frændi fær kannski raf­magns­t­ann­bursta en ekki skeggsnyrti­tækið sem til stóð að gefa honum.

Kannski rétt að líta sér nær

Fyrir nokkrum árum las skrif­ari þessa pistils við­tal við Lars Larsen (1948 – 2019). Lars þessi var einn rík­asti maður Dan­merkur. Dyne Larsen, eins og hann var iðu­lega kall­aður, var stofn­andi og eig­andi JYSK, sem áður hét Jysk sen­getøjsla­ger (Rúm­fatalager­inn). Í þessu við­tali var Lars Larsen tíð­rætt um þá þver­sögn, eins og hann komst að orði, að flytja hús­gögn, og reyndar flestar vörur, yfir hálfan hnött­inn. Það hlyti að breyt­ast. Hann nefndi líka að það tæki langan tíma að flytja vörur frá Asíu­löndum til Evrópu „í dag vill fólk fá hlut­ina sem fyrst, helst í dag. Og af því að versl­anir og heildsalar vilja hafa sem minnstan lager kæmi sér betur ef fram­leið­and­inn væri ekki hinum megin á hnett­inum“.

Undir þessi orð geta lík­lega margir tekið í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár