Rugl, veiran, kerfið sem brást, hrunið og konan sem hefði átt að vera meira „kallinn“

Fjölmörg við­töl birt­ust á Kjarn­anum á árinu sem er að líða sem vöktu athygli víða. Þetta eru þau fimm sem voru mest lesin á árinu 2021.

5. Verðum að ganga í takt og „hætta þessu rugli“

Stórar spurn­ingar vakna þegar fjallað er um skóla án aðgrein­ingar og vanga­velt­urnar verða síðan enn stærri varð­andi aðra kima sam­fé­lags­ins. Formaður Kenn­ara­sam­bands Íslands sagði í við­tali við Kjarnann í júlí að nú væri komið að því að við Íslend­ingar spyrðum okkur hvernig við viljum haga okkar málum.

Viljum við vera aðgrein­andi í eðli okkar eða gyrða okkur í brók og takast á við erfið mál­efni?

Lestu við­talið í heild sinni hér.

4. „Ekkert furðulegt“ við að bólusettir smitist

Í júlí mætti veiran aftur, þrátt fyrir að allar tak­mark­anir inn­an­lands hefðu verið látnar falla niður nokkrum vikum áður og þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra lýst því yfir að við værum að „end­ur­heimta á ný það sam­fé­lag sem okkur er eðli­legt að búa í og sem við höfum þráð.“

Þrennt skýrði helst fjölgun smita á Íslandi, því landi heims sem er var hvað lengst komið í bólu­setn­ingum: Bólu­setn­ing minnk­aði líkur á smiti en kom ekki í veg fyrir það, aflétt­ing aðgerða og þar af leið­andi breytt hegðun fólks og í þriðja lagi land­nám hæf­asta afbrigðis veirunnar til þess tíma, delta-afbrigð­is­ins. „Lands­lagið breytt­ist mikið með delt­unni,“ sagði Arnar Pálsson erfða­fræð­ingur í við­tali við Kjarnann.

Lestu við­talið í heild sinni hér.

3. Flókið að fást við fólk sem lætur sannleikann ekki þvælast fyrir sér

Kerfið brást Helgu Björgu Ragn­ars­dóttur harð­lega eftir að hún upp­lifði stöðugt áreiti borg­ar­full­trúa í um tvö ár án þess að geta borið hönd fyrir höfuð sér.

[adspot]Í við­tali við Kjarnann í júní gagn­rýndi hún fjöl­miðlaum­fjöllun um málið en það hafði haft marg­vís­legar alvar­legar afleið­ingar á and­lega og lík­am­lega heilsu hennar þar sem hún var ein­ungis orðin „skugg­inn af sjálfri“ sér á tíma­bili. Nú kvað þó við annan tón – og sagð­ist Helga Björg vera búin að finna sína rödd og ætl­aði hún að svara fyrir sig hér eftir.

Lestu við­talið í heild sinni hér.

2. Tugir innherjasvikamála órannsökuð þegar Fjármálaeftirlitið hætti rannsóknum

Und­an­farin ár hefur Jared Bibler, sem starf­aði hjá Lands­bank­anum þar til skömmu fyrir hrun banka­kerf­is­ins í októ­ber 2008 og síðar sem rann­sak­andi hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu frá 2009-2011, verið að skrifa bók um reynslu sína af góð­ær­inu, hrun­inu og eft­ir­málum þess á Íslandi.

Hún kom út í Bret­landi í byrjun októ­ber og heitir Iceland’s Secret. Kjarninn ræddi við Jared í aðdrag­anda útgáfu hennar.

Lestu við­talið í heild sinni hér.

1. Mistökin sem ég gerði var að vera ekki meiri „kallinn“, að vera ekki meiri „stjórinn“

Sólveig Anna Jóns­dóttir hætti skyndi­lega sem for­maður Eflingar í lok októ­ber. Fyrsta við­talið við hana eftir þann atburð birt­ist í Kjarn­anum 6. nóv­em­ber. Þar sagði hún sig og sam­starfs­fólk sitt hafa náð ótrú­legum árangri í bar­áttu sinni fyrir bættum kjörum verka- og lág­launa­fólks en að starfs­fólk Eflingar hefði ekki skilið bar­átt­una. Krafa hefði verið uppi innan félags­ins um að aðflutt fólk aðlag­aði sig að því frekar en félagið að fólk­inu. Á end­anum hafi hópur óánægðra starfs­manna bolað henni í burtu. Græðgi og sjálftöku­stemn­ing væri í kringum Eflingu sem sé nokk­urs konar ríki í rík­inu.

Lestu við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár