Hótelið á hafsbotni

Í ára­tugi hafa gengið sögur um að á hafs­botni norðan við Hels­ingja­borg í Svíþjóð liggi stærðar steypu­hlunkur sem átti að vera hluti eins þekktasta hót­els á Norð­ur­löndum. En skyldi þetta nú vera rétt?

Gæti verið að ein hæð úr SAS-hótelinu í Kaupmannahöfn leynist á hafsbotni?
Gæti verið að ein hæð úr SAS-hót­el­inu í Kaup­manna­höfn leyn­ist á hafs­botni? Mynd: Fred Romero

Ef Eiríki Fjalar hefði verið sagt að á hafs­botni í Kattegat lægi stein­steypt flykki, sem átti að vera heil hót­el­hæð, hefði hann lík­lega spurt hvort þetta væri ekki bara „skrök­u­lygi“. Og hann væri lík­lega ekki einn um þá skoðun.

Danmörk er lítið land, aðeins um 40 þús­und fer­kíló­metrar. Lögun lands­ins veldur því hins vegar að strand­lengjan er löng, rúm­lega 7 þús­und kíló­metrar. Til sam­an­burðar má nefna að þótt Ísland sé miklu stærra (104 þús­und fer­kíló­metrar) er strand­lengjan styttri en sú danska, rétt um 6 þús­und kíló­metrar.

Á hafs­botn­inum úti fyrir ströndum Dan­merkur leyn­ist margt, kaf­arar kalla það gósen­land. Fjöldi skipa liggur á hafs­botni á þessum svæðum, sum þeirra frá síð­ustu öld en önnur hafa legið á hafs­botni öldum saman. Vitað er hvar mörg þess­ara skipa liggja en önnur, einkum frá fyrri öldum, hefur ekki tek­ist að finna. Þegar köf­urum tekst að finna eitt­hvað sér­lega merki­legt kom­ast fréttir af slíku ævin­lega í fjöl­miðla. Og þær ber­ast enn þá af og til.

Printz Friderich

Haustið 2018 greindu danskir fjöl­miðlar (og margir aðrir) frá merkum forn­leifa­fundi. Þá hafði hópi kaf­ara tek­ist að finna skips­flak, sem þeir höfðu leitað um ára­bil. Þessi merki fundur var danska her­skipið Printz Friderich. Skipið strand­aði á grynn­ingum skammt frá eyj­unni Læsø á Kattegat í lok sept­em­ber árið 1780. Um borð voru 667 menn, 7 lét­ust en hinum 660 tókst að bjarga. Skipinu, sem var rúm­lega 50 metra langt og búið 70 fall­byssum, varð hins vegar ekki bjargað og það sökk í hafið.

Hér má sjá mynd­band af flak­inu og fundi þess frá kaf­ara­hópnum Und­ervands­gruppen.

For­svars­maður hóps­ins sem fann flakið sagði í við­tali að þeir hefðu kafað að minnsta kosti 200 sinnum áður en flakið fannst. „Við vissum að það væri ein­hvers staðar á þessum slóðum og vorum stað­ráðnir í að gef­ast ekki upp. Tæknin, og þol­in­mæðin, sáu til þess að við fundum skipið.“

Ekki bara skip

Eins og áður sagði hafa danskir frí­stunda- og atvinnu­kaf­arar árum saman vitað um skips­flök og margt annað sem leyn­ist á hafs­botni undan ströndum Dan­merkur. Margir þess­ara staða eru fastir við­komu­staðir sem allir kaf­arar þekkja og heim­sækja reglu­lega. Einn þess­ara staða er skammt fyrir norðan Hels­ingja­borg í Svíþjóð. Þar er það ekki skips­flak sem liggur á hafs­botni heldur nokkuð sem kaf­arar kalla „hót­elið. Þetta er stærðar steypuflykki, veggir með „dyra­opum“ og „glugga­opum“. Er eig­in­lega eins og stærðar hæð í húsi, en vantar bæði gólf og loft. „Hótelið“ liggur á nokk­urra metra dýpi um tvö hund­ruð metra frá strönd Sví­þjóðar.

SAS hótelið

Fyrir ára­tugum komst sú saga á kreik að þetta sem þarna lægi á hafs­botni væri hvorki meira né minna en ein hæð sem hefði með réttu átt að fara í SAS hót­elið við Vester­brogade í Kaup­manna­höfn.

SAS hót­elið er af mörgum talin í hópi merk­ustu bygg­inga í Danmörku, og eitt af höf­uð­verkum Arne Jacobsen eins kunn­asta arki­tekts Dana.

Bygging hót­els­ins hófst árið 1956 og það var tekið í notkun árið 1960. Húsið er 70 metrar á hæð, hæð­irnar eru 22. Arne Jacobsen teikn­aði ekki bara húsið sjálft, hann teikn­aði líka allar inn­rétt­ingar, hús­gögn, hnífa­pör, ljós o.s.frv. sér­stak­lega fyrir hót­elið. Þar á meðal eru stól­arnir Eggið og Svan­ur­inn, sem Íslend­ingar þekkja vel og prýða í dag tug- eða hund­ruð þús­unda heim­ila og opin­berra bygg­inga víða um heim. Eitt her­bergi, númer 606, er enn eins og það var upp­haf­lega en önnur her­bergi hafa tekið ýmsum breyt­ingum í áranna rás. Það er til marks um sess hót­els­ins í dönsku þjóð­arsál­inni að þegar neðsti hluti bygg­ing­ar­innar var mál­aður fyrir nokkrum árum urðu tals­verðar deilur um græna lit­inn. Hann væri, sögðu gagn­rýnendur, ekki nákvæm­lega eins og hann var áður og hafði verið frá upp­hafi. Ritari þessa pistils bjó á þessum tíma í Kaup­manna­höfn og sá vart, eða ekki, mun­inn á nýja litnum og þeim gamla.

Hvernig gæti heil hótelhæð endað í Kattegat?

Nú má spyrja hvernig gæti staðið á því að hluti þess sem átti að vera SAS hót­elið hafi endað í Kattegat. Samkvæmt sög­unni um „hót­elið“ voru hæða­ein­ing­arnar steyptar á Norður-Jótlandi og dregnar á þar til gerðum flekum til Kaup­manna­hafnar. Ein­hverju sinni gerði slæmt veður og fyrir norðan Hels­ingja­eyri slitn­aði flek­inn frá drátt­ar­skip­inu, rak drjúgan spöl og sökk svo. Blaða­maður dag­blaðs­ins Politi­ken ákvað að „kafa“ niður í þessa sögu og reyna að kom­ast að sann­leik­anum. Blaða­mað­ur­inn sagð­ist hafa fengið bréf frá manni sem sjálfur hafði verið kaf­ari og hafði fyrir 25 árum heyrt sög­una af „hót­el­inu“ og lang­aði að vita hvort hún væri sönn. Blaða­mað­ur­inn hafði sam­band við klúbb kaf­ara í Kaup­manna­höfn. Þar kann­að­ist sá sem varð fyrir svörum ekki við sög­una um „hót­elið“ en benti blaða­mann­inum á til­tekna heima­síðu, vragguiden.dk, þar sem hann gæti leitað. Og viti menn, þar er sagt frá „hót­el­inu“ stað­setn­ing­unni lýst og þeir sem hafa keypt aðgang að síð­unni geta skoðað myndir sem kaf­arar hafa tekið. Á vef­síð­unni er hins vegar ekki að finna neinar ótví­ræðar sann­anir fyrir því að steypuklump­ur­inn á hafs­botni hafi átt að enda sem hæð í SAS hót­el­inu.

Blaða­mað­ur­inn hafði sam­band við marga sem hann taldi að gætu kann­ast við sög­una, og kannski stað­fest hvort hún væri sönn. Flestum þótti sagan góð. Einn ráð­lagði blaða­mann­inum að láta sög­una njóta vafans, en hann vildi reyna að kom­ast að sann­leik­anum. Sonur fyrsta hót­el­stjór­ans kann­að­ist ekki við sög­una og taldi sig vita að burð­ar­virki hót­els­ins, og inn­veggir, hefðu verið steyptir á staðnum en ytra byrðið er fyrst og fremst gler og ál.

En svo heyrði blaða­mað­ur­inn aðra sögu um „hót­elið“.

Danspallur við sænskan veitingastað

Í grúski sínu við leit­ina að sann­leik­anum um „hót­elið“ heyrði blaða­maður Politi­ken aðra sögu. Hún var á þá leið að „hót­elið“ hefði verið und­ir­staða palls sem eig­andi veit­inga­stað­ar­ins Para­peten við norð­ur­hluta hafn­ar­innar í Hels­ingja­borg lét útbúa skömmu eftir 1950. Á pall­inum hefðu verið haldnar skemmt­anir en svo hefði eig­and­inn ákveðið að selja pall­inn og þá hefði eig­andi hót­els við strönd­ina skammt fyrir norðan Hels­ingja­borg keypt hann. Áður en komið var á leið­ar­enda sökk pall­ur­inn og situr þar enn. Skammt frá hót­eli nýja eig­and­ans sem var í Laröd.

Ekkert hótel við ströndina

Blaða­mann­inum þótti ofan­greind saga ekki verri en hver önnur en fékk hana ekki til að ganga upp.

Hvernig sem leitað var fann blaða­maður Politi­ken engar upp­lýs­ingar um hótel á áður­nefndu svæði. Eini gisti­stað­ur­inn á þessum slóðum á sjötta ára­tug síð­ustu aldar var far­fugla­heim­ili, nokkra kíló­metra inni í landi. Fremur ólík­legt að eig­endur þess hefðu keypt fljót­andi dans­pall taldi blaða­mað­ur­inn. Einn við­mæl­enda taldi sig hafa lesið um nýtt aðsetur dans­palls­ins í Hels­ing­borg Dagblad en þá umfjöllun gat blaða­mað­ur­inn ekki fundið, þrátt fyrir mikla leit.

Hvað er upp og niður í þessari sögu?

Blaða­maður Politi­ken endar umfjöllun sína á því að segja að sér hafi ekki tek­ist að upp­lýsa sann­leik­ann um „hót­elið“. Hann viti ein­fald­lega ekki hvort „hót­elið“ hafi í raun átt að vera hluti SAS hót­els­ins í Kaup­manna­höfn eða hvort það hafi verið dans­pallur við Hels­ingja­borg.

Blaða­mað­ur­inn endar á því að biðja þá les­endur sem kunni að vita eitt­hvað um málið að hafa sam­band við sig.

Eiríkur Fjalar hefði lík­lega sogið upp í nefið eftir að hafa heyrt þessar tvær sögur og full­yrt að báðar væru „skrök­u­lygi“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár