20 manna samkomutakmarkanir yfir jól og áramót

Rík­is­stjórnin hefur fall­ist á til­lögur sótt­varna­læknis um hertar sótt­varna­að­gerðir. 20 manna sam­komu­bann verður í gildi yfir jól og ára­mót. Aðgerð­irnar taka gildi á mið­nætti á morgun og gilda í þrjár vikur. Óákveðið er hvenær skóla­hald hefst á nýju ári.

Alls greindust 313 smit í gær og hafa aldrei verið fleiri. 286 smit greindust innanlands og 27 á landamærunum.
Alls greindust 313 smit í gær og hafa aldrei verið fleiri. 286 smit greindust inn­an­lands og 27 á landa­mær­unum. Mynd: Bára Huld Beck

„Við höfum auð­vitað veru­legar áhyggjur,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í hádeg­inu þegar hún ásamt Willum Þór Þórssyni heil­brigð­is­ráð­herra kynntu hertar sam­komu­tak­mark­anir að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í hádeg­inu.

20 manna sam­komu­bann tekur gildi á mið­nætti annað kvöld, og gildir næstu þrjár vikur eða til 13. jan­úar. Þá verða 200 manna hólf verða skil­greind á fjölda­sam­komum og þar verður nei­kvæðra hrað­prófa kraf­ist. Katrín segir þetta ekki skemmti­leg tíð­indi að flytja þjóð­inni í aðdrag­anda jóla. Mark­miðið sé samt sem áður að halda sam­fé­lag­inu gang­andi eins og kostur er. Reglur á landa­mærum verða óbreyttar til 15. jan­úar.

[adspot]286 smit greindust inn­an­lands í gær og hafa aldrei verið fleiri. 27 smit greindust á landa­mær­unum og heild­ar­fjöldi smita er því 313. 2.023 eru í ein­angrun, smit­aðir af veirunni, og 3.028 eru í sótt­kví.

Í minn­is­blað­inu sem sótt­varna­læknir skil­aði til heil­brigð­is­ráð­herra í gær er lagt til aðgrunn­skólar, fram­halds­skólar og háskólar hefji ekki starf­semi fyrr en 10 jan­úar. Ekki var fall­ist á þá til­lögu en Willum segir að ráð­herra skóla­mála muni ræða við skóla­stjórn­endur um skóla­hald að loknu jóla­fríi. Ekki hefur komið til tals að loka leik­skólum.

Sund­laugar og lík­ams­rækt­ar­stöðvar mega taka við helm­ingi færri gestum en vana­lega og afgreiðslu­tími veit­inga- og skemmti­staða verður styttur enn frekar. Þá verður tveggja metra nálægð­ar­regla tekin upp í stað eins metra reglu nú. Um átta mán­uðir eru síðan 20 manna sam­komu­tak­mark­anir voru síð­ast í gildi hér á landi.

Blanda af tveimur faröldrum

Thor Aspelund, pró­fessor í líf­töl­fræði við Háskóla Íslands, segir stöð­una ískyggi­lega í færslu á Facebook í morgun þar sem hann fjallar um vöxt far­ald­urs­ins. Thor talar um nýjan Covid-veru­leika þar sem tvö­föld­un­ar­tími ómíkron-afbrigð­is­ins sé nær því að vera tveir til þrír dagar, auk þess sem delta-afbrigðið sé enn að grein­ast og því sé um blöndu af tveimur far­öldrum að ræða.

12 sjúk­lingar liggja á Land­spít­ala með Covid-19 og er með­al­aldur þeirra 58 ár. Tveir eru á gjör­gæslu og annar þeirra í önd­un­ar­vél. 2.035 eru í eft­ir­liti á Covid göngu­deild spít­al­ans, þar af 718 börn. Frá því að fjórða bylgja far­ald­urs­ins hófst í lok júní hafa 235 lagst inn á Land­spít­ala.

57 prósent þjóðarinnar móttækileg fyrir alvarlegum veikindum af völdum ómíkron

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir í nýjum pistli á covid.is að ósk­hyggja megi ekki blinda sýn okkar þó að bólu­setn­ing gegn Covid-19 hafi vissu­lega skilað miklu í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn.

77 pró­sent lands­manna hafa fengið tvær bólu­setn­ingar og um 43% þrjá skammta eða svo­kall­aða örv­un­ar­bólu­setn­ingu. Þórólfur segir þessa góðu þátt­töku skila árangri en stað­reyndin sé samt sem áður sú að 57 pró­sent þjóð­ar­innar er mót­tæki­leg fyrir alvar­legum veik­indum af völdum ómíkron-afbrigð­is­ins þar sem nið­ur­stöðu rann­sókna sýna að vernd að völdum fyrri sýk­inga og vernd af bólu­setn­ingum eru hins vegar minni en gegn delta-afbrigð­inu.

„Við verðum að nýta okkur þær upp­lýs­ingar sem liggja fyrir um raun­veru­legan árangur bólu­setn­ing­anna og leggja þannig mat á þá hættu sem stafar af COVID-19. Sam­fé­lags­legum aðgerðum þarf jafn­framt að beita á hóf­legan og skyn­sam­legan máta til að vernda heil­brigði almenn­ings,“ segir Þórólfur í pistli sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár