Pólitískar staðhæfingar stundum taldar til „falsfrétta“ og „rangra upplýsinga“

„Konan þarna í Viðreisn,“ sagði einn þátt­tak­andi í spurn­inga­könnun ein­fald­lega, er hann var beð­inn um að nefna „fals­frétt“ eða „rangar upp­lýs­ingar“ sem hann hefði séð fyrir kosn­ingar. Innan við helm­ingur sagð­ist hafa séð „fals­frétt“ í aðdrag­anda kosn­inga.

„Falsfréttir“ eru hugtak sem hefur rutt sér til rúms á undanförnum árum. Fólk virðist þó setja margt ólíkt undir þann hatt.
„Fals­fréttir“ eru hug­tak sem hefur rutt sér til rúms á und­an­förnum árum. Fólk virð­ist þó setja margt ólíkt undir þann hatt. Mynd: Pexels

Rúm 53 pró­sent þátt­tak­enda í skoð­ana­könnun, sem Fjöl­miðla­nefnd lét Maskínu fram­kvæma eftir alþing­is­kosn­ing­arnar í sept­em­ber, sögð­ust ekki hafa tekið eftir því að „fals­fréttum“ eða „röngum upp­lýs­ingum“ hefði verið beitt til þess að hafa áhrif á nið­ur­stöður kosn­ing­anna í aðdrag­anda þeirra.

Aðrir þátt­tak­endur sögð­ust hafa orðið varir við það, en þó í mis­miklum mæli. 11 pró­sent sögð­ust hafa séð slíkt efni að minnsta einu sinni á dag. Afar lágt hlut­fall þeirra sem tóku þátt í könn­un­inni taldi þó að rangar eða mis­vísandi upp­lýs­ingar hefðu haft áhrif á þeirra eigin kosn­inga­hegðun.

Heil 90 pró­sent þátt­tak­enda töldu hins vegar að fals­fréttir eða upp­lýs­inga­óreiða hafi haft ein­hver áhrif á nið­ur­stöður kosn­ing­anna, en ein­ungis rúm 15 pró­sent sögð­ust telja áhrifin hafa verið mikil.

Þetta kemur fram í skýrslu Fjöl­miðla­nefndar um fals­fréttir og upp­lýs­inga­óreiðu í aðdrag­anda kosn­ing­anna, sem gefin var út í dag, en þar er einnig dregið fram að fólk leggur ólíkan skiln­ing í hvað heyrir til fals­frétta eða rangra upp­lýs­inga.

Ljóst er að ein­hverjir telja „póli­tískar stað­hæf­ingar sem þeir voru ósam­mála til rangra upp­lýs­inga eða fals­frétta“, eins og sjá má af til­vitn­unum úr opinni spurn­ingu sem lögð var fyrir þátt­tak­endur í könn­un­inni.

„Ásmundur Einar Daðason er ekki Guð,“ sagði einn, „Blaðrið í Gunnari Smára,“ sagði annar. „Píratar á Twitter“ voru líka nefndir til sög­unnar og sömu­leiðis „Konan þarna í Viðreisn,“ sam­kvæmt sam­an­tekt Fjöl­miðla­nefndar á því sem fólk nefndi sem dæmi um fals­fréttir eða rangar upp­lýs­ingar í aðdrag­anda kosn­inga.

Í skýrslu Fjöl­miðla­nefndar má ann­ars lesa að kjós­endur rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja voru ólík­leg­astir til að telja hafa orðið varir við fals­fréttir eða rangar upp­lýs­ingar í aðdrag­anda kosn­inga. Hæst var hlut­fallið á meðal kjós­enda Vinstri grænna, en rúm 70 pró­sent þeirra sögð­ust ekki hafa orðið varir við neinar fals­fréttir eða rangar upp­lýs­ingar.

Á hinum enda skal­ans hvað þetta varðar voru kjós­endur Við­reisnar og Sós­í­alista­flokks­ins, en ein­ungis 36 pró­sent kjós­enda Við­reisnar og 37 pró­sent kjós­enda Sós­í­alista­flokks­ins tóku ekki eftir neinum fals­fréttum eða röngum upp­lýs­ingum sem þeir töldu að haft gæti áhrif á nið­ur­stöður kosn­ing­anna.

Þetta hlut­fall var svo 41,7 pró­sent hjá kjós­endum Sam­fylk­ingar og 43,5 pró­sent hjá kjós­endum Pírata, en kjós­endur ann­arra flokka sögð­ust að meiri­hluta ekki hafa tekið eftir neinum fals­fréttum eða röngum upp­lýs­ingum síð­ustu 30 dag­ana fyrir kosn­ingar.

Stuðn­ings­menn Flokks fólks­ins, Pírata og Mið­flokks­ins voru hins vegar lík­leg­astir til að segj­ast hafa tekið eftir fals­fréttum eða röngum upp­lýs­ingum oft á dag, eða um eða yfir fimmt­ungur þeirra kjós­enda flokk­anna sem tóku þátt í könn­un­inni.

Facebook helsta uppsprettan

Þeir þátt­tak­endur sem á annað borð urðu varir við ein­hverjar fals­fréttir eða rangar upp­lýs­ingar sögð­ust flestir hafa séð þær á Facebook, eða 72,2 pró­sent. Af hefð­bundnum fjöl­miðlum sögð­ust rúm 32 pró­sent hafa séð fals­fréttir eða rangar upp­lýs­ingar í aðdrag­anda alþing­is­kosn­inga á rit­stýrðum net­miðlum, tæp 27 pró­sent í sjón­varpi og rúm 26 pró­sent í rit­stýrðum prent­miðlum. Tæp 23 pró­sent sögð­ust svo hafa heyrt fals­fréttir eða rangar upp­lýs­ingar í útvarp­inu, rúm 15 pró­sent á Instagram og tæp 15 pró­sent á Twitter.

[adspot]

Þátt­tak­endur í könn­un­inni voru einnig spurðir að því hverjir þeir teldu að bæri ábyrgð á fals­frétt­unum eða röngu upp­lýs­ing­unum sem þeir hefðu séð. Rúmur helm­ingur þeirra sem töldu sig hafa séð fals­fréttir eða rangar upp­lýs­ingar töldu ein­hvern ákveð­inn stjórn­mála­flokk hafa borið ábyrgð á þeim, en rúm 29 pró­sent ein­hvern íslenskan fjöl­miðil. Um 25 pró­sent nefndu svo að ákveð­inn stjórn­mála­maður bæri ábyrgð á fals­frétt­inni, eða röngu upp­lýs­ing­unum.

Stuðn­ings­menn Mið­flokks­ins skáru sig úr í svörum við þessa spurn­ingu, en þvert á kjós­endur ann­arra flokka taldi hærra hlut­fall þeirra að ákveð­inn íslenskur fjöl­mið­ill bæri ábyrgð á fals­frétt­unum eða röngu upp­lýs­ing­unum sem þeir hefðu séð, fremur en ein­hver stjórn­mála­flokkur.

Þeir sem sögð­ust hafa kosið Mið­flokk­inn voru einnig þeir einu sem í ein­hverjum mæli nefndu að ein­hver ákveð­inn erlendur aðili hefði borið ábyrgð á fals­frétt­unum eða röngu upp­lýs­ing­unum sem þeir sáu, eða 16,7 pró­sent þeirra. Á meðal kjós­enda ann­arra flokka nefndi varla nokkur þátt­tak­andi erlenda aðila, í svari við þess­ari spurn­ingu.

Kjósendur Vinstri grænna treysta fjölmiðlum best fyrir kosningar

Í könn­unni var spurt út í traust til fjöl­miðla og hvort fólk treysti þeim til að færa sér réttar upp­lýs­ingar og hlut­læga umfjöllun í tengslum við kosn­ingar. Heilt yfir voru rúm 41 pró­sent þáttak­enda sam­mála því, en rúm 33 pró­sent voru ósam­mála.

Traustið til fjöl­miðla var mest hjá þeim sem sögð­ust hafa kosið Vinstri græn, en 60 pró­sent þeirra sögð­ust sam­mála því að fjöl­miðlum væru treystandi fyrir því að færa fram réttar upp­lýs­ingar og hlut­læga umfjöllun í aðdrag­anda kosn­inga.

Stuðn­ings­fólk Við­reisnar var næst lík­leg­ast til að vera sam­mála því að fjöl­miðlum væri treystandi fyrir þessu grund­vall­ar­hlut­verki sínu. Innan við helm­ingur kjós­enda ann­arra flokka sögð­ust sam­mála því að svo væri, en margir þátt­tak­endur svör­uðu reyndar „hvorki né“.

Einungis kjós­endur Sós­í­alista­flokks­ins voru að meiri­hluta ósam­mála því að fjöl­miðlum væri treystandi fyrir því að færa fram réttar upp­lýs­ingar og hlut­læga umfjöllun í tengslum við kosn­ingar. Kjós­endur sama flokks voru einnig lang­mest ósam­mála þeirri full­yrð­ingu að fjöl­miðlar veittu stjórn­mála­flokkum jafnan aðgang að umfjöllun og settu rétt mál á dag­skrá í aðdrag­anda kosn­inga, en 80 pró­sent stuðn­ings­fólks Sós­í­alista­flokks­ins var ósam­mála því.

Hátt hlut­fall stjórn­ar­and­stæð­inga var almennt ósam­mála hinu sama, ef miðað er við stuðn­ings­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, eða um 65 pró­sent kjós­enda Mið­flokks­ins, 57 pró­sent kjós­enda Pírata og 51 pró­sent kjós­enda bæði Flokks fólks­ins og Við­reisnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár