Bergþór sá eini sem hlaut sæti eftir endurtalningu sem samþykkti eigið kjörbréf

Þegar talið var aftur í Norð­vest­ur­kjör­dæmi leiddi það til þess að fimm fram­bjóð­endur misstu sæti sitt á þingi og fimm aðrir fengu slíkt sæti. Einungis einn þeirra sem komst inn kaus með því að end­ur­taln­ingin myndi standa.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Af þeim fimm þing­mönnum sem náðu inn á Alþingi eftir end­ur­taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi kaus ein­ungis einn, Bergþór Ólason frá Mið­flokki, með sam­þykkt á stað­fest­ingu á eigin kjör­bréfi í gær. Hinir fjórir sátu hjá.

Einn úr hópnum, Guð­brandur Ein­ars­son, nú þing­maður Við­reisnar, hafði gefið það út opin­ber­lega að hann ætl­aði að sam­þykkja nið­ur­stöðu end­ur­taln­ingar þegar kosið yrði um hana á þingi en sner­ist hugur og sat hjá.

Bergþór hafði ekki viljað gefa upp afstöðu sína fyrir gær­dag­inn, en hann er myndar ný tveggja manna þing­flokk með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Mið­flokks­ins.

Fimm út, fimm inn

Þegar nið­ur­staða end­ur­taln­ingar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, sem fór fram dag­inn eftir kosn­ing­arnar í sept­em­ber síð­ast­liðnum, lá fyrir misstu fimm fram­bjóð­endur jöfn­un­ar­þing­sæti sem þeim hafði verið úthlutað og fimm aðrir hlutu slíkt sæti.

[adspot]Guð­mundur Gunn­ars­son féll út sem jöfn­un­ar­maður Við­reisnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og í stað hans kom Berg­þór Óla­son inn fyrir Mið­flokk­inn. Karl Gauti Hjalta­son úr Mið­flokki féll út í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og í hans stað kom Gísli Rafn Ólafs­son frá Píröt­um. Í Reykja­vík norður féll Lenya Rún Taha Karim út sem jöfn­un­ar­maður Pírata og í hennar stað kom Jóhann Páll Jóhanns­son fyrir Sam­fylk­ing­una. Þá datt Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir út sem jöfn­un­ar­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík Suð­ur. Í hennar stað kom Orri Páll Jóhanns­son sem jöfn­un­ar­þing­maður Vinstri grænna. Í Suð­ur­kjör­dæmi datt Hólm­fríður Árna­dóttir út sem jöfn­un­ar­þing­maður Vinstri grænna og Guð­brandur Ein­ars­son kom inn í hennar stað sem jöfn­un­ar­þing­maður Við­reisn­ar.

Klauf sig frá þingflokki Pírata

Alþingi sam­þykkti í gær­kvöldi, með 42 atkvæðum gegn fimm, að stað­festa gildi kosn­ing­anna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Sextán þing­menn greiddu ekki atkvæði.

Svandís Svav­ars­dóttir, full­trúi Vinstri grænna í kjör­bréfa­nefnd og heil­brigð­is­ráð­herra, lagði fram til­lögu um upp­kosn­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Gísli Rafn Ósk­ars­son, þing­maður Pírata sem hlaut sæti á Alþingi eftir end­ur­taln­ingu, kaus gegn þeirri til­lögu en allir aðrir við­staddir þing­menn Pírata studdu hana.

Þá vakti einnig athygli að Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, studdi til­lögu Svan­dísar, sem var á end­anum felld, en kaus líka með til­lög­unni sem var á end­anum sam­þykkt og fól í sér að end­ur­taln­ingin var látin gilda.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, sem stýrir ráðu­neyt­inu sem fer með fram­kvæmd kosn­inga, kaus með því að nið­ur­staða end­ur­taln­ing­ar­innar yrði látin standa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár