Fyllti upp í tómið með fullvissunni um eitthvað æðra

Í Marra­kesh í Marokkó býr Birta Árdal Nóra Berg­steins­dóttir ásamt eig­in­manni og fjórum ungum dætrum. Hjónin eiga áhuga­verða sögu saman en þau giftu sig áður en þau byrj­uðu að vera saman. Áður en Birta flutti til Marokkó hafði hún reynt ýmis­legt til að fylla í „tómið í brjóst­inu“. Henni tókst það á end­anum með því að taka nýja trú og ger­ast múslimi.

Fyllti upp í tómið með fullvissunni um eitthvað æðra
Sam­hljómur Nýlega gaf Birta út lag með eigin texta sem er nokkuð per­sónu­legt. Hún var ekki viss um hvort hún ætti að deila því með öðrum en ákvað svo að gera það því í þeirri von að ein­hverjir finni sam­hljóm með henni í gegnum það.

Ísland og Marokkó eru því sem næst á sama tíma­belt­inu, það skeikar aðeins einni klukku­stund, en veð­ur­far land­anna gæti ekki verið mikið ólík­ara. Hér á Íslandi geisar stormur þegar Birta svarar sím­anum úti í garði hjá sér, í sól og háværum en ljúfum fugla­söng. Veðrið er ekki það eina sem er ólíkt á milli þess­ara tveggja heima­landa fjöl­skyld­unnar, sem auk Birtu sjálfar telja mann­inn hennar, Othman Karoune, og dætur fjórar, tvö sett af eins og fjög­urra ára gömlum afskap­lega fal­legum tví­burum. Eftir nokkuð ómeð­vit­aða leit að ein­hvers konar full­nægju í líf­inu, tíma­bili sem ein­kennd­ist öðru fremur af miklum ferða­lögum, fann Birta til­gang lífs síns í heima­landi manns­ins síns og tók eftir vand­lega ígrundun ákvörðun um að ger­ast múslimi.

Fjöl­skyldanFyrir nokkrum árum hefði Birta ekki getað ímyndað sér að árið 2020 yrði hún orðin múslimi, byggi í Marokkó og ætti fjórar dætur. …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár