Prestafélagið segir að Þjóðkirkjan yrði að bæta prestum tekjutap vegna aukaverkatillögu

Presta­fé­lagið leggst harð­lega gegn því að prestar hætti að inn­heimta fyrir auka­verk á borð við skírnir, útfarir og hjóna­vígslur. Þriggja mán­aða gam­all kjara­samn­ingur presta er úr gildi fall­inn, ef til­lagan verður sam­þykkt á kirkju­þingi, segir félagið.

Þingvallakirkja.
Þing­valla­kirkja. Mynd: Bára Huld Beck

Presta­fé­lag Íslands leggst harð­lega gegn til­lögu á kom­andi kirkju­þingi, sem felur í sér að stefnt verði að því að gjald­taka vegna svo­kall­aðra auka­verka presta verði afnumin. Þá er átt við þau gjöld sem prestar hafa tekið fyrir að veita þjón­ustu á borð við að skíra börn, jarða látna og fræða ferm­ing­ar­börn.

Í umsögn Presta­fé­lags­ins um málið, sem Ninna Sif Svav­ars­dóttir for­maður þess und­ir­ritar fyrir hönd stjórnar, segir að í nýlega und­ir­rit­uðum kjara­samn­ingi Presta­fé­lags­ins komi ótví­rætt fram heim­ild presta til að inn­heimta greiðslur vegna auka­verka.

„Það eru von­brigði að ein­ungis þremur mán­uðum seinna komi fram til­laga á kirkju­þingi þess efnis að ákvæði samn­ings­ins skuli felld úr gildi. PÍ lítur svo á að ef komi til þess sé allur kjara­samn­ing­ur­inn úr gildi fall­inn,“ segir í umsögn­inni um málið, sem er ein af fimm slíkum, en þegar var Kjarninn búinn að segja frá ákafri gagn­rýni þriggja presta á til­lög­una.

Ósmekklegt að „væna presta um skort á kristilegum kærleika“

Í umsögn Presta­fé­lags­ins segir einnig að það sé „í hæsta máta ósmekk­legt og ekki kirkju­þingi sæm­andi að væna presta um skort á kristi­legum kær­leika þegar þeir nýta sér skýrt grund­vall­aðan rétt sinn til þess að inn­heimta fyrir auka­verk,“ og að prestar gangi ekki hart fram í inn­heimtu vegna auka­verka gagn­vart efna­litlu fólki með umhyggju og kær­leik að leið­ar­ljósi.[links]

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni sem liggur fyrir kirkju­þingi segir um þetta atriði að vígð þjón­usta kirkj­unnar eigi ávallt að vera grund­völluð á kristi­legum kær­leika og sem mest án hind­r­ana fyrir fólk. „Það er tíma­skekkja og frá­hrind­andi ásýnd kirkju­legrar þjón­ustu að prestur sem þjónar fólki á gleði- og sorg­ar­stundum sendi við­kom­andi síðan reikn­ing vegna þjón­ustu sinn­ar. Þetta dregur mjög úr trú­verð­ug­leika kirkju­legrar þjón­ustu. Einkum er þetta slæm birt­ing­ar­mynd þegar um efna­lítið fólk er að ræða,“ segir í grein­ar­gerð til­lög­unnar.

Telja vegið að atvinnufrelsi sínu

Í umsögn Presta­fé­lags­ins segir að ef kirkju­þing vilji leggja af inn­heimtu greiðslna fyrir auka­verk og taka sér það hlut­verk að setja gjald­skrá vegna þókn­unar presta fyrir til­tekin prest­verk, sé það skerð­ing á samn­ings- og atvinnu­frelsi presta sem starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði. Slíkar skerð­ingar verði að vera studdar með skýrum hætti í lögum.

Segja að kirkjan yrði að taka upp vaktakerfi og vinnutímastjórnun

Presta­fé­lagið lítur svo á að aðeins prestar sjálfir geti ákveðið að leggja af greiðslur fyrir auka­verk sín. Ef kirkju­þing vilji leggja af slíka inn­heimtu sé ljóst að til þurfi að koma upp­bót fyrir það tekju­tap sem af því hlýst – til dæmis með auknum yfir­vinnu­greiðslum þar sem mikið af vinnu­fram­lagi presta fari fram utan hefð­bund­ins dag­vinnu­tíma.

[adspot]

Aukinn kostn­aður við þetta muni leiða til þess að kirkjan þurfi að fækka stöðu­gildum presta, sem myndi koma niður á þjón­ustu sem Þjóð­kirkjan veitir.

„Nú er stefnt að 36 stunda vinnu­viku presta. Þjóð­kirkjan þyrfti að svara því hvernig skírn­ar­at­höfnum í heima­húsum yrði háttað því óvíst er að prestar önn­uð­ust þær nema í vinnu­tíma það er í helgi­haldi sunnu­dags­ins. Nái þessi til­laga fram að ganga yrði því um veru­lega þjón­ustu­skerð­ingu að ræða í íslensku þjóð­kirkj­unni,“ segir í umsögn Presta­fé­lags­ins og því bætt við að ekki sé hægt að „fella niður auka­verka­greiðslur til presta öðru vísi en að koma á víð­tæku vakta­kerfi og vinnu­tíma­stjórnun í Þjóð­kirkj­unni þar sem mönnun til athafna og prests­verka er tryggð og prestum bætt tekju­tapið.“

Sóknarprestur í Fossvogi sammála tillögunni

Þrátt fyrir þessi hörðu mót­mæli frá Presta­fé­lag­inu og það sem fram hafði komið í þremur fyrri umsögnum sem bár­ust um málið virð­ist ekki vera algjör ein­hugur um afstöðu til máls­ins í presta­stétt. Þor­valdur Víðisson sókn­ar­prestur í Foss­vogspresta­kalli lýsir sig jákvæðan í garð til­lög­unnar í sinni umsögn um hana.

„Í ljósi þeirra miklu skipu­lags­breyt­inga sem kirkjan er að ganga í gegnum um þessar mundir, myndi það skjóta skökku við, ef ekki yrði leitað nýrra leiða til að tryggja sann­gjarna umbun til presta fyrir þá mik­il­vægu þjón­ustu sem felst í athöfnum kirkj­unnar og fræðslu, skírnum, ferm­ing­ar­fræðslu, hjóna­vígslum og útförum. Það er að mínu mati tíma­skekkja að halda slíkri gjald­skrá til streitu og styð ég þá grunn­hugsun sem að baki þessu máli kirkju­þings býr, að vinna skuli að nýjum til­lögum í þessu sam­bandi,“ segir í umsögn Þorvalds.

Hann lætur þess þó getið að núgild­andi kjara­samn­ingur á milli Presta­fé­lags­ins og kirkj­unnar bygg­ist m.a. á því að í gildi sé gjald­skrá vegna prests­þjón­ustu.

„Með þess­ari til­lögu um afnám gjald­skrár­innar hlýtur það því að verða verk­efni samn­inga­nefndar kirkju­þings og samn­inga­nefndar Presta­fé­lags Íslands að semja um heild­ar­kjör, á þeim nýja grund­velli, þar sem umbun vegna prests­þjón­ustu verði í fram­tíð­inni hluti af kjörum og kjara­samn­ingi,“ skrifar Þor­valdur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár