Prestar ósáttir við tillögu um að hætta að rukka fyrir hjónavígslur, skírnir og útfarir

Lagt hefur verið til að hætt verði að rukka fyrir auka­verk presta. Það þyki frá­hrind­andi að prestur sem þjónar fólki á gleði- og sorg­ar­stundum sendi við­kom­andi síðan reikn­ing. Einkum sé þetta „slæm birt­ing­ar­mynd þegar um efna­lítið fólk er að ræða.“

Kostnaður við rekstur þjóðkirkjunnar greiðist úr ríkissjóði þar sem kirkjan og ríki eru ekki aðskilin hérlendis.
Kostn­aður við rekstur þjóð­kirkj­unnar greið­ist úr rík­is­sjóði þar sem kirkjan og ríki eru ekki aðskilin hér­lendis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fyrir Kirkju­þingi, sem hefst á laug­ar­dag, liggur til­laga um að afnema gjald­töku fyrir auka­verk presta. Slík auka­verk eru meðal ann­ars skírnir, útfarir, kistu­lagn­ing, hjóna­vígslur, ferm­inga­fræðsla frá og með byrjun árs 2023. Tillagan er lögð fram af nefnd sem kosin var á Kirkju­þingi í fyrra til að end­ur­skoða starfs­reglur um starfs­kostnað vegna prests­þjón­ustu þjóð­kirkj­unnar og pró­fasts­starfa. Samkvæmt gild­andi gjald­skrá fyrir prest­þjón­ustu þjóð­kirkj­unnar ber að greiða prestum fyrir til að mynda útför 27.552 krónur og ferm­ing­ar­fræðsla kostar 21.194 krónur á hvert barn.

Í til­lög­unni er nið­ur­lagn­ing greiðslna meðal ann­ars rök­studd með því að laun presta sam­kvæmt gild­andi kjara­samn­ingum verði „að telj­ast ágæt með hlið­sjón af launum allra þeirra sem eru í BHM“. Rík­is­sjóður greiðir laun presta. Þeir heyrðu lengst af undir kjara­ráð, sem ákvarð­aði laun þeirra, en sam­þykktu í sumar sem leið fyrsta kjara­samn­ing­inn sem gerður var við þjóð­kirkj­una og Bisk­ups­stofu. Samkvæmt úttekt Frjálsrar versl­unar á tekjum lands­manna, sem birt var í ágúst, voru tíu prestar með tekjur á bil­inu 1.427 til 2.163 þús­und krónur á mán­uði í fyrra. Þær tekjur inni­halda ekki fjár­magnstekjur eða skatt­frjálsar greiðslur en geta í ein­hverjum til­fellum inni­haldið úttekt á sér­eign­ar­sparn­aði.

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir enn fremur að vígð þjón­usta kirkj­unnar eigi ávallt að vera grund­völluð á kristi­legum kær­leika og sem mest án hind­r­ana fyrir fólk. „Það er tíma­skekkja og frá­hrind­andi ásýnd kirkju­legrar þjón­ustu að prestur sem þjónar fólki á gleði- og sorg­ar­stundum sendi við­kom­andi síðan reikn­ing vegna þjón­ustu sinnar. Þetta dregur mjög úr trú­verð­ug­leika kirkju­legrar þjón­ustu. Einkum er þetta slæm birt­ing­ar­mynd þegar um efna­lítið fólk er að ræða.“

Helmingur umsagna um aukagreiðslurnar

Hægt var að senda inn umsagnir um þær til­lögur sem leggja á fyrir Kirkju­þing, en frestur til að skila þeim inn rann út 15. októ­ber síð­ast­lið­inn. Alls bár­ust sex umsagnir um þau 35 mál sem liggja fyrir þing­inu. Helm­ingur umsagna barst vegna til­lög­unnar um afnám greiðslna vegna prests­þjón­ustu.

[adspot]Ein umsögnin er frá Arnaldi A. Bárð­ar­syni, kjara­mála­full­trúa Presta­fé­lags Íslands. Þar segir hann að inn­heimtan fyrir þessi til­teknu prests­verk byggi á „gam­alli hefð“ og varði miklu um kjör og hags­muni presta­stétt­ar­innar. Arnaldur efast um að það sé laga­stoð til að afnema greiðsl­urnar og segir að ef Kirkju­þing ákveði upp á sitt eins­dæmi að afnema greiðsl­urnar þurfi „þjóð­kirkjan að bæta prestum tekju­tap vegna slíks.“ Hann segir einnig að það að „greiða presti hóf­lega þóknun fyrir þjón­ustu er því mörgum kær­komin við­ur­kenn­ing, - þakk­læt­is­vottur til prests fyrir vel veitta þjón­ustu.“

Vill afslátt fyrir þá sem eru í þjóðkirkjunni

Þorgeir Arason, sókn­ar­prestur Egils­staða­presta­kalls, skrifar einnig umsögn. Hann er heilt yfir ekki sáttur með til­lög­una og segir í umsögn sinni að með henni sé „ein­fald­lega gert ráð fyrir að þessi hluti af launa­kjörum presta sé felldur niður og hvergi getið um að nokkur önnur kjaraupp­bót komi í stað­inn. Ekki veit ég um neina starfs­stétt með snefil af sjálfs­virð­ingu sem myndi fella sig við slíkt.“

[links]Á meðal þess sem Þorgeir leggur til í umsögn sinni er að gjald­skránni fyrir auka­verk presta verði breytt með þeim hætti að fólk sem sé skráð í þjóð­kirkj­una fái afslátt. Það væri „eðli­legt að umb­una þá fyrst og fremst þeim sem kjósa að vera í Þjóð­kirkj­unni með slíku gjald­skrár­frelsi. Í fjöl­mörgum félaga­sam­tökum tíðkast að með­limir njóti með ein­hverjum hætti sér­stakra kjara á þeirri þjón­ustu sem félagið býður upp á. Sem dæmi má nefna að félagar í félaga­sam­tökum sem ráða yfir sal­ar­kynnum leigja gjarnan hús­næði félags­ins á öðru verði en utan­að­kom­andi aðilar. Ekkert er óeðli­legt við þá ráð­stöfun, enda leggja þeir ein­stak­lingar til félags­ins með sinni aðild, rétt eins og félagar í Þjóð­kirkj­unni láta sitt sókn­ar­gjald renna til sinnar sóknar.“

Alls eru 229.623 ein­stak­lingar skráðir í þjóð­kirkj­una, eða 61,3 pró­sent lands­manna. Næstum 150 þús­und manns standa utan þjóð­kirkj­unnar sem stendur, en sá hópur taldi tæp­lega 31 þús­und manns um síð­ustu alda­mót.

„Blaut tuska í andlitið“

Síðasta umsögnin er svo frá Sigurði Grétari Sig­urðs­syni, presti í Útskála­presta­kalli. Hann segir meðal ann­ars að engin stétt geti fall­ist á kjara­skerð­ingu á borð við þá sem boðuð er í til­lög­unni og segir að prestum hafi verið lofað að kjör þeirra myndu ekki versna við það að Bisk­ups­stofa færi að greiða þeim laun í stað Fjár­sýslu rík­is­ins.

Sigurður segir að kristi­legur kær­leikur verði ekk­ert minni í þjón­ust­unni þó prestur fái laun fyrir. „Launin hafa verið byggð upp með ákveðnum hætti í mjög langan tíma, ann­ars vegar föst laun frá launa­greið­anda og hins vegar þóknun vegna prests­verka sem prestur inn­heimtir sjálfur. Það er blaut tuska í and­litið að slengja svona til­lögu fram.“

Hann telur svo upp rök­semdir fyrir því að greiðsl­urnar séu hóf­legar og að fólk furði sig oft á því hvað þær séu lágar þegar kemur að greiðslu. „Greiðslan til prests­ins fyrir ferm­ing­ar­fræðsl­una er u.þ.b. 2500 krónum hærri en kran­sa­kaka fyrir 30 manns sem borðuð er á hálf­tíma.“

Sigurður hefur áhyggjur af því að verði til­lagan sam­þykkt muni það leiða til veru­legrar þjón­ustu­skerð­ingar þar sem prestar muni ekki verða fúsir til að sinna umræddum verkum utan hefð­bund­ins vinnu­tíma án greiðslu. „Allar til­lögur sem miða að því að skerða launa­kjör presta eru óásætt­an­legar,“ skrifar Sigurður í lok umsagnar sinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár