Hátt í 150 þúsund manns standa utan þjóðkirkjunnar

Þeim sem standa utan þjóð­kirkj­unnar hefur fjölgað um 112 þús­und frá alda­mótum. Það eru fleiri en sam­an­lagður íbúa­fjöldi Kópavogs, Hafn­ar­fjarðar, Garða­bæjar, Mos­fells­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness.

Höfuðstöðvar þjóðkirkjunnar eru í Katrínartúni í Reykjavík.
Höf­uð­stöðvar þjóð­kirkj­unnar eru í Katrín­ar­túni í Reykja­vík. Mynd: Kirkjan.is

Í byrjun þessa mán­aðar voru 229.686 ein­stak­lingar skráðir í þjóð­kirkj­una, sam­kvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands. Þar segir að þessi hópur sé 61,7 pró­sent íbúa lands­ins og þeir sam­kvæmt því rúm­lega 372 þús­und tals­ins. Það þýðir að tæp­lega 143 þús­und íbúar standi utan þjóð­kirkj­unnar nú um stundir, og eru þá í öðrum trú­fé­lögum eða standa alveg utan trú­fé­laga. Þeir hafa aldrei verið fleiri.

um síð­ustu alda­mót stóðu alls tæp­lega 31 þús­und manns utan þjóð­kirkj­unnar. Þeim sem kjósa að gera það hefur því fjölgað um 112 þús­und á rúmum tutt­ugu árum. Til að setja þá tölu í sam­hengi þá eru það fleiri en búa sam­an­lagt í Kópavogi, Hafn­ar­firði, Garðabæ, Mos­fellsbæ og á Sel­tjarn­ar­nesi sem stendur, en íbúar þess­ara fimm sveit­ar­fé­laga eru sam­tals tæp­lega 104 þús­und tals­ins.

Fækkað hratt

Þeim lands­mönnum sem eru í þjóð­kirkj­unni hefur fækkað hratt á síð­ast­liðnum árum. Í byrjun árs 2009 náði fjöldi þeirra met­­­tölu, en þá voru 253.069 lands­­­menn í henni.

[adspot]Frá þeim tíma hefur þeim fækkað jafnt og þétt og eru nú, líkt og áður sagði, 229.686. Það þýðir að fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­­­kirkj­una hefur dreg­ist saman um 23.383 frá árs­­­byrjun 2009.

Á sama tíma, tæpum 13 árum, hefur íbúum lands­ins fjölgað um tæp­lega 53 þús­und. Því hafa 76.277 íbúðar lands­ins valið að ganga úr, eða skrá sig ekki í, þjóð­kirkj­una frá byrjun árs 2009.

Fjórðungur segist eiga mikla samleið með kirkjunni

Í könnun sem Maskína gerði fyrir Siðmennt í byrjun árs í fyrra kom fram að rúm­lega 54 pró­sent lands­manna væru fremur eða mjög hlynnt aðskiln­aði ríkis og kirkju og 25,7 pró­sent þeirra segj­ast vera í með­al­lagi hlynnt honum. Rúmlega 20 pró­sent segj­ast vera fremur eða mjög and­víg aðskiln­aði.

Í könn­un­inni var einnig spurt hvort að fólk teldi sig eiga sam­leið með þjóð­kirkj­unni. Alls sögð­ust 48,7 pró­sent að þeir ættu litla eða enga sam­leið með henni en 25,7 pró­sent sögðu að þeir ættu nokkra sam­leið. Alls sögðu 25,5 pró­sent aðspurðra að sú sam­leið væri fremur eða mjög mikil.

Könnunin fór fram dag­anna 16. til 22. jan­úar 2020. Svar­endur voru alls staðar að á land­inu, 18 ára og eldri. Alls svör­uðu 954 könn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár