Það liggur ekki fyrir hvort Ísland geti gert tvíhliða samning til að tengja krónu við evru

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur um það sé mögu­legt fyrir Ísland að gera sam­komu­lag við Seðla­banka Evrópu um að tengja krón­una við evru.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, í forystusætinu á RÚV í gærkvöldi.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, í for­ystu­sæt­inu á RÚV í gær­kvöldi. Mynd: Skjáskot/RÚV

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, var gestur For­ystu­sæt­is­ins á RÚV í gær. Þar var hún meðal ann­ars spurð út í það kosn­inga­lof­orð flokks­ins að semja um gagn­kvæmar geng­is­varnir við Seðla­banka Evrópu og tengja þannig íslensku krón­una við evru.

Í þætt­inum sagði Þor­gerður Katrín að hægt væri að gera slíkt sam­komu­lag á grund­velli samn­ings­ins um Evrópska efna­hags­svæðið (EES), sem Ísland er aðili að og veitir land­inu aðgengi að innri mark­aði Evrópu að hluta án þess að til­heyra Evr­ópu­sam­band­inu.

Hún vís­aði meðal ann­ars í skrif pró­fess­or­anna Guð­mundar Magn­ús­sonar og Stefáns Más Stef­áns­sonar máli sínu til stuðn­ings og benti auk þess á skrif Daða Más Krist­ó­fers­sonar, vara­for­manns Við­reisnar og hag­fræði­pró­fess­ors um málið. „Þeir sjá þetta þannig fyrir sér að við gerum samn­ing um gagn­kvæmar geng­is­varnir. Við erum ekki að taka upp ein­hliða evr­una eins og sum ríki hafa gert. Við erum ein­fald­lega að horfa til ann­arra ríkja eins og Dan­merkur, eins og Króatíu sem hafa tengt sína gjald­miðla, okkar íslenska krónu, við evr­una. Við sjáum fram á það að eitt af því fyrsta sem við myndum þá gera í rík­is­stjórn, næð­ist um það sam­komu­lag, væri að fara bara strax með fyrstu flug­vél og semja bara við evr­ópska seðla­bank­ann um þessar gagn­kvæmu geng­is­varnir [...] Við getum þetta og það er mögu­leiki núna þegar gjald­eyr­is­vara­forð­inn okkar er með þessum hætti að fara í þessa veg­ferð.“

Tvíhliða samningur um gengisvarnir

Sem stendur þá taka þrír gjald­miðlar þátt í geng­is­sam­starfi Evrópu, sem kall­ast nú ERM-II. Þeir eru danska krónan, króat­ísk kúna og búlgarska lefið. Með aðild að geng­is­sam­starfi Evrópu er gengi gjald­miðla þátt­töku­ríkj­anna haldið stöð­ugu gagn­vart evru innan settra vik­marka og er fast­gengið varið af bæði seðla­banka við­kom­andi þátt­töku­ríkis og Seðla­banka Evrópu. Slík geng­isteng­ing er því byggð á alþjóð­legu sam­starfi þar sem Seðla­banki Evrópu og seðla­bankar þátt­töku­ríkj­anna skuld­binda sig til að tryggja stöð­ug­leika geng­is­mark­miðs­ins en ekki bara seðla­bankar heima­land­anna. Samkvæmt gild­andi lög­gjöf um geng­is­sam­starf Evrópu getur Ísland ekki tekið þátt í ERM-II án þess að ger­ast fyrst aðili að Evr­ópu­sam­band­inu.

[adspot]Hug­myndir Guð­mundar og Stefáns Más, sem Þor­gerður Katrín vísar til, voru fyrst settar fram fyrir um tveimur ára­tugum síðan. Þær snú­ast um að gera tví­hliða samn­ing þar sem Evr­ópu­sam­bandið gæti meðal ann­ars gripið inn í með aðgerðum til styrktar krón­unni gegn því að Íslend­ingar geng­ust undir ákveðin skil­yrði í hag­stjórn í takti við það sem átti sér stað á þeim tíma innan evr­ópska mynt­kerf­is­ins. Síðan þá, sér­stak­lega eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á, hefur verið slakað mjög á þeim aga sem kraf­ist var vegna aðildar að því mynt­kerfi en Ísland hefur auk þess tekið upp lög um opin­ber fjár­mál sem fara fóru fram á svip­aðan aga í rík­is­fjár­málum og innan Evr­ópu­sam­bands­ins, áður en þau voru tekin tíma­bundið úr sam­bandi vegna far­ald­urs­ins.

Í skrifum sínum hafa þeir Guð­mundur og Stefán Már bent á að ekk­ert í lögum Evr­ópu­sam­bands­ins banni slíkt sam­starf og að hægt væri að byggja á fyr­ir­mynd ERM-II og sér­stak­lega í gjald­eyr­is­fyr­ir­komu­lag Dana, en gengi dönsku krón­unnar er haldið innan þröngs bils í gegni gagn­vart evru.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Það liggur fyrir að Evr­ópu­sam­bandið hefur aldrei sam­þykkt að fara þá leið sem Við­reisnar boðar við­ræður um: að semja um gagn­kvæmar geng­is­varnir eða mynt­sam­starf við land sem er ekki aðili að sam­band­inu. Þau lönd sem hafa verið hluti af fyrst Evrópska geng­is­sam­starf­inu (ERM) og síðar ERM-II hafa öll verið aðilar að Evr­ópu­sam­band­inu. Danir, sem bundu gjald­miðil sinn við fyrst þýska markið árið 1982 og síðar við evr­una, gengu til að mynda í sam­bandið 1973.

Því er engin fyr­ir­mynd að samn­ingi Seðla­banka Evrópu við ríki utan Evr­ópu­sam­bands­ins um gagn­kvæmar geng­is­varnir og teng­ingu við evru og ekk­ert liggur fyrir um hvort hann sé til­bú­inn í slíka samn­inga­gerð. Skiptir þar engu hvort um sé að ræða ríki innan EES eða utan þess sam­starfs.

Það er á hin bog­inn alls ekki úti­lokað að Evrópski seðla­bank­inn myndi verða til­bú­inn í slíka samn­ings­gerð né að stór gjald­eyr­is­vara­forði Íslands, sem stóð í 931 millj­arði króna í lok ágúst, gæti liðkað fyrir henni. Úr því fæst ekki skorið nema með samn­inga­við­ræðum þar um.

Því er það nið­ur­staða Stað­reynd­ar­vakt­ar­innar að það sé hálf­sann­leikur að þessi leið sé mögu­leg. Eins og stendur liggur ein­fald­lega ekk­ert fyrir um það á hvorn veg­inn sem er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár