Mótmæla fyrirhuguðum sérkjörum sjávarútvegsins vegna loftslagsaðgerða

Í ályktun mið­stjórnar ASÍ er því mót­mælt að til standi að veita sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum skatta­legar íviln­anir og styrki til þess að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á sama tíma og almenn­ingur þurfi að mæta íþyngj­andi aðgerðum á borð við kolefn­is­gjald.

Mið­stjórn ASÍ mót­mælir áformum stjórn­valda sem ganga út á að velta kostn­aði við að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í sjáv­ar­út­vegi á rík­is­sjóð „og þar með almenn­ing á Íslandi.“ Í ályktun frá mið­stjórn­inni er vísað í skýrslu starfs­hóps fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um græn skref í sjáv­ar­út­vegi sem kom út þann 10. júní þar sem finna má til­lögur að leiðum til að draga úr losun frá sjáv­ar­út­vegi.

„Til­lög­urnar fela einkum í sér beit­ingu hag­rænna hvata, í formi skatta­legra íviln­ana, styrkja og fjár­fest­ingar, til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í sjáv­ar­út­vegi,“ segir í ályktun ASÍ. Á sama tíma legg­ist auk­inn kostn­aður á almenn­ing í bar­átt­unni við lofts­lags­vána: „Á sama tíma og stjórn­völd áforma að beita fjár­hags­legum hvötum til að auð­velda sjáv­ar­út­veg­inum að draga úr losun fel­ast aðgerðir stjórn­valda gagn­vart almenn­ingi einkum í íþyngj­andi aðgerðum svo sem álögum í formi kolefn­is­gjalds.“

Mið­stjórnin leggur áherslu að „hug­mynda­fræði rétt­látra umskipta sé höfð að leið­ar­ljósi við útfærslu og fram­kvæmd aðgerða í lofts­lags­málum,“ eins og það er orðað í álykt­un­inni. Þar segir að rétt­lát umskipti feli í sér „að aðgerðir í lofts­lags­málum byggi á rétt­læti og stuðli að jöfn­uði og að þeim tæki­færum og byrðum sem umskiptin fela í sér, sé skipt með sann­gjörnum hætti.“

Útgerðin hafi bolmagn til að standa straum af kostnaði

Að mati mið­stjórnar eru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin vel í stakk búin til þess að standa straum af kostn­aði sem fylgir því að fjár­festa í grænum lausnum og minnka elds­neyt­is­notkun, sjáv­ar­út­veg­ur­inn skili gríð­ar­legum hagn­aði á hverju ári á sama tíma og greinin njóti ávinn­ings af lágum veiði­gjöldum. Mið­stjórnin bendir einnig á að það sé hags­muna­mál fyrir sjáv­ar­út­veg­inn að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Súrnun sjávar sé hrað­ari í nágrenni Íslands en víð­ast hvar ann­ars staðar og því lík­legt að áhrif súrn­unar komi fyrr fram hér á landi en að jafn­aði í heims­höf­unum.

„Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands styður mark­mið stjórn­valda um sam­drátt í útlosun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda en mót­mælir því að enn á ný séu uppi áform um að tryggja sjáv­ar­út­veg­inum sér­kjör á kostnað almenn­ings í land­inu. Til að sátt ríki um aðgerðir í lofts­lags­málum verða þær að vera rétt­látar og stuðla að jöfn­uði og vel­ferð. Hið sama á við um nýt­ingu á sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar og þann hagnað sem hún skapar,“ segir í nið­ur­lagi álykt­un­ar­innar.

Losun frá skipum og höfnum 596 þúsund tonn árið 2018

Orku­skipti í sjáv­ar­út­vegi er ein af þeim aðgerðum sem finna má í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum. Þar segir að langstærstur hluti los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá skipum og höfnum sé frá fiski­skipum sem brenna jarð­efna­elds­neyti. Losun frá skipum og höfnum var 769 þús­und tonn árið 2005 en hún var komin niður í 596 þús­und tonn árið 2018.

Í áður­nefndri skýrslu um græn skref í sjáv­ar­út­vegi er lagt til mark­mið um að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna fiski­skipa sem kaupa elds­neyti verði árið 2030 orðin helm­ingur af því sem hún var árið 2005. Til þess að ná því mark­miði eru lagðar fram nokkrar til­lögur, til að mynda skatta­lega hvata sem geta stuðlað að auknum fjár­fest­ingum í umhverf­is­vænni lausnum. Önnur til­laga snýr að end­ur­bættu styrkja­kerfi sem styðji við nýsköpun, orku­stýr­ingu og orku­skipti á hafi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár