Forsendur brostnar og örlög lífskjarasamningsins ráðist 30. september

For­sendu­nefnd ASÍ og SA hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að for­sendur lífs­kjara­samn­ings­ins frá 2019 séu brostnar, hvað aðgerðir stjórn­valda varðar. Formaður VR segir að örlög samn­ing­anna muni ráð­ast á fundi samn­inga­nefnda ASÍ og SA 30. sept­em­ber.

Frá undirritun lífskjarasamningsins í apríl árið 2019.
Frá und­ir­ritun lífs­kjara­samn­ings­ins í apríl árið 2019. Mynd: ASÍ

Samn­inga­nefndir Alþýðu­sam­bands Íslands og Samtaka atvinnu­lífs­ins munu hitt­ast á fundi fimmtu­dag­inn 30. sept­em­ber, til þess að ræða um fram­hald lífs­kjara­samn­ings­ins. For­sendu­nefnd ASÍ og SA telur for­sendur samn­ings­ins brostnar er kemur að þeim málum sem stjórn­völd hétu að beita sér fyrir er samn­ing­arnir voru und­ir­rit­aður.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR segir við Kjarnann að hann hafi verið á fundi með samn­inga­nefnd ASÍ í dag, þar sem þessi nið­ur­staða hafi verið form­lega til­kynnt.

Hann segir að rík­is­stjórnin fari nú með það vega­nesti inn í kosn­ingar að mögu­lega séu samn­ingar á almennum vinnu­mark­aði í upp­námi og segir það ekki stand­ast að ráð­herrar kenni hæga­gangi í þing­inu um að ákveðin mál hafi ekki verið kláruð.

„Verð­trygg­ing­ar­málin, því var bara haldið inni í fjár­mála­ráðu­neyt­inu mán­uðum saman,“ segir Ragnar Þór og nefnir að auki húsa­leigu­lög, starfs­kjara­lög og líf­eyr­is­mál.

Hann býst við því að brátt muni verða gerð ítar­legri grein fyrir því hvað ASÍ telur nákvæm­lega standa út af hvað efndir stjórn­valda varðar.

Flest aðildarfélög ASÍ muni vilja verja samninginn

Spurður um fram­haldið segir Ragnar Þór að nú þurfi samn­inga­nefndir ASÍ og SA að hitt­ast til þess að fara yfir stöð­una og það verði gert 30. sept­em­ber, sem áður segir, eða ein­ungis fimm dögum eftir að kosið verður til Alþingis.

[adspot]

„Við munum að sjálf­sögðu reyna að verja samn­ing­ana og ég held að flest aðild­ar­fé­lög ASÍ muni verja samn­ing­inn eins og kostur er,“ segir for­maður VR.

Lífs­kjara­samn­ing­arnir eiga að vera í gildi á almennum vinnu­mark­aði þar til í októ­ber árið 2022, en Ragnar segir að þeir gætu losnað um næstu mán­að­ar­mót ef annar aðil­inn við samn­inga­borðið tekur ákvörðun um að segja þeim upp.

„Það er ekki drauma­staðan til að lenda í svona eftir COVID, að fá allt upp í loft á almennum vinnu­mark­aði,“ segir Ragnar Þór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár