Léleg einkunn frá Samtökunum ‘78 þýðir ekki að flokkar standi gegn hinsegin fólki

Samkvæmt svörum frá öllum flokkum til Sam­tak­anna '78 vilja þeir styðja við rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks. Stefnur flokk­anna fengu þó afar ólíkar ein­kunnir í hug­lægu mati stjórnar sam­tak­anna. Engin stig voru gefin fyrir almennar stefnur um mann­rétt­indi.

Samtökin '78 birtu mat sitt á stefnu flokkanna í málefnum hinsegin fólks á fimmtudaginn. Mynd úr safni.
Samtökin '78 birtu mat sitt á stefnu flokk­anna í mál­efnum hinsegin fólks á fimmtu­dag­inn. Mynd úr safni. Mynd: kjarninn_myndir

Stjórn Sam­tak­anna ‘78 kynnti á fimmtu­dag mat sitt á stefnu flokk­anna með til­liti til mál­efna hinsegin fólks, en um var að ræða hug­lægt mat stjórn­ar­innar á þeim stefnum sem flokk­arnir hafa birt opin­ber­lega, kosn­inga­stefnur og aðrar álykt­anir.

Flokk­arnir komu afar mis­jafn­lega út úr því mati. Sam­fylk­ingin, Píratar, Vinstri græn, Viðreisn og Sós­í­alista­flokk­ur­inn skor­uðu á bil­inu 77-55 pró­sent á kvarð­anum, sem náði upp í 100, á meðan að Flokkur fólks­ins, Fram­sókn­ar­flokk­ur­ins og Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn fengu allir 0 pró­sent, Mið­flokk­ur­inn 3 pró­sent og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 18 pró­sent.

Kjarninn heyrði í Þor­björgu Þor­valds­dóttur, for­manni Sam­tak­anna ‘78 til þess að fá útskýr­ingar á aðferða­fræð­inni að baki mat­inu og hvernig ætti að túlka nið­ur­stöð­urnar.

Þorbjörg segir að til­gangur mats­ins hafi fyrst og fremst verið að rýna í það hvort flokk­arnir væru með sér­tækar stefnur í mál­efnum hinsegin fólks. Hún segir að um hug­lægt mat stjórn­ar­innar hafi verið að ræða og farið hafi verið yfir stefnur hvers ein­asta flokks með 23 áherslu­at­riði í huga. Flokk­arnir fengu síðan 0-5 stig fyrir hvert áherslu­at­riði.

Almennar mannréttindastefnur fengu 0 stig

Hún segir að stjórnin hafi reynt eftir fremsta megni að gæta sam­ræmis á milli þess hvernig flokk­arnir voru metnir eftir fram­lögðum stefnum sínum. For­mað­ur­inn leggur áherslu á að léleg ein­kunn, jafn­vel 0 pró­sent, þýði síður en svo að flokk­arnir séu ein­hverjir hómó­fó­bar eða standi gegn rétt­indum hinsegin fólks. Þvert á móti þýði 0 stig í mat­inu ein­fald­lega að ekki sé sér­stak­lega minnst á hinsegin fólk í stefnu flokks.

Almennt orð­aðar stefnur um mann­rétt­indi allra fengu þannig engin stig í mati Sam­tak­anna ‘78, heldur ein­ungis þau áherslu­at­riði í stefnum flokk­anna sem töl­uðu um mál­efni hinsegin fólks með sér­tækum hætti.

Leyfðu flokkunum að gera athugasemdir

Þorbjörg segir að stjórn sam­tak­anna hafi sent öllum flokk­unum nið­ur­stöðu mats­ins um síð­ustu helgi og leyft þeim að koma með athuga­semdir og ábend­ingar, ef stjórn­inni hefði yfir­sést eitt­hvað í stefn­unum sem taka ætti til­lit til.

[adspot]

„Við fengum athuga­semdir sem við tókum til­lit til og einnig ein­hverjar sem við tókum ekki til greina,“ segir Þorbjörg og vísar á ný til þess að engin stig hafi verið gefin fyrir að fjalla um mann­rétt­inda­mál með almennum hætti.

Þverpólitísk sátt um stuðning við réttindabaráttu

Auk þess að greina stefnu flokk­anna sendi stjórn sam­tak­anna spurn­ingar á hvern og einn flokk um afstöðu til bar­áttu­mála hinsegin fólks. Þorbjörg seg­ist ánægð með þau svör sem þaðan bár­ust, enda hafi þau sýnt að allir flokkar seg­ist styðja rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks.

„Mér finnst rosa­lega mik­il­vægt að það sé þverpóli­tísk sátt um þessi mál­efni á Íslandi,“ segir Þorbjörg.

„Þung mál“ sem brenna á fólki

Samhliða kynn­ingu kosn­inga­kvarð­ans stóðu Samtökin '78 á fimmtu­dags­kvöld fyrir opnum pall­borðsum­ræðum með full­trúum þeirra flokka sem bjóða fram á lands­vísu.

Þorbjörg segir að fund­ur­inn hafi verið gagn­legur og þar hafi verið settar fram „erf­iðar spurn­ingar“ um „þung mál sem brenna á hópum innan okkar sam­fé­lags, um heil­brigð­is­þjón­ustu og hat­urs­glæpi og aðbúnað hinsegin hæl­is­leit­enda.“

Hægt er að horfa á streymi frá fund­inum í heild sinni hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár