Stóreignaskattur sé „að meginreglu stjórnskipulega gildur“

Tveir fræði­menn í lög­fræði stíga inn í umræðu um stór­eigna­skatt­inn sem Sam­fylk­ingin boðar á hreina eign yfir 200 millj­ónir og segja að meg­in­reglan sé sú að slíkir skattar séu stjórn­skipu­lega gildir, þó það skipti máli hvernig þeir séu útfærðir.

Lögfræðingar við HR og HÍ hafa rýnt í umræðu um lögmæti stóreignaskatta.
Lög­fræð­ingar við HR og HÍ hafa rýnt í umræðu um lög­mæti stór­eigna­skatta. Mynd: Pexels

Eitt umtal­að­asta stefnu­málið sem fram hefur komið í kosn­inga­bar­átt­unni til þessa er stór­eigna­skattur, sem Sam­fylk­ingin seg­ist vilja leggja á hreina eign yfir 200 millj­ónum króna.

Skatt­ur­inn sem flokk­ur­inn sér fyrir sér á að nema 1,5 pró­senti, eða 15 þús­und krónum á ári á hverja milljón hreinnar eignar fólks sem á yfir 200 millj­ónir. Fram­bjóð­endur Sam­fylk­ing­ar­innar hafa sagt að þetta gæti skilað um níu millj­örðum króna í rík­is­sjóð, sem nota mætti til að fjár­magna lof­orð flokks­ins um útvíkkun barna­bóta.

Deilt hefur verið um lög­mæti þess­arar skatt­lagn­ingar und­an­farna daga á opin­berum vett­vangi. Síðasta föstu­dag birt­ist á for­síðu Morg­un­blaðs­ins frétt um að Teitur Björn Ein­ars­son fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi teldi skatt­inn ekki stand­ast stjórn­ar­skrá, „hvað sem hug­mynda­fræð­ingum Sam­fylk­ing­ar­innar kann að finn­ast“.

Þessari gagn­rýni var svarað um hæl af Jóhanni Páli Jóhanns­syni fram­bjóð­anda Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, sem sagði í grein á Vísi að það væri „kostu­legt að fylgj­ast með tauga­veiklun Sjálf­stæð­is­manna“ vegna máls­ins. Teitur Björn svar­aði honum svo á ný, einnig í grein á Vísi og sagði lítið fara fyrir svörum um það hvernig stór­eigna­skattur bryti „ekki gegn jafn­ræð­is­reglu stjórn­ar­skrár­innar og eign­ar­rétt­ar­á­kvæði.“

Tveir fræði­menn í lög­fræði, Sindri M. Steph­en­sen lektor við HR og Víðir Smári Petersen dós­ent við HÍ, rýna í málið í aðsendri grein á Vísi í dag og kom­ast að því, án þess að taka nokkra afstöðu til þess hvort skatt­lagn­ingin væri skyn­sam­leg eða ekki, að hún gæti stað­ist jafn­ræð­is­reglu og eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrár. Stór­eigna­skattar, skrifa þeir, eru að meg­in­reglu stjórn­skipu­lega gildir.

Teitur Björn og aðrir sem hafa sett fram efa­semdir eða full­yrð­ingar um hvort stór­eigna­skattur stand­ist lög hafa vísað til þess að auð­legð­ar­skatt­ur­inn sem settur var á í stjórn­ar­tíð Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna fyrir röskum ára­tug síðan hafi verið settur á við óvenju­legar aðstæður, er rík­is­sjóður var í mik­illi krísu. Auk þess hafi hann verið tíma­bund­inn og Hæsti­réttur vísað til þess er kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að skatt­lagn­ingin væri lög­mæt.

Fleiri rök en bara Hrunið og tímabinding

Þeir Sindri og Víðir Smári vekja hins vegar athygli á því að Hæsti­réttur hafi jafn­framt fært önnur rök til stuðn­ings lög­mætis skatt­lagn­ing­ar­innar. Þeir segja að draga megi þrjár almennar álykt­anir af dómum Hæsta­réttar í stór­eigna- og auð­legð­ar­skatts­málum.

Í fyrsta lagi, að dóm­stólar játi lög­gjaf­anum veru­legt svig­rúm til að ákveða hvernig skatt­lagn­ingu skuli háttað í ein­stökum atriðum. Í annan stað, að almennt sé heim­ilt að inn­heimta stór­eigna­skatt og hann megi vera stig­hækk­andi eftir því sem verð­mæti eigna er meira. Í þriðja lagi, að það komi ekki í veg fyrir eigna­skatta þótt tekjur gjald­enda standi ekki undir greiðslu skatts­ins.

[adspot]

„Þetta þýðir, með öðrum orðum, að stór­eigna­skattur er að meg­in­reglu stjórn­skipu­lega gildur. Skoðast það í ljósi þess að sam­kvæmt stjórn­ar­skrá er það lög­gjafans að ákveða skipan skatt­lagn­ingar hér á landi og því eðli­legt að dóm­stólar játi hand­hafa skatt­lagn­ing­ar­valds víð­tækt svig­rúm í þessum efnum, sem skoð­ast jafn­framt í ljósi þrí­grein­ingar rík­is­valds­ins. Eftir sem áður skiptir útfærsla slíkra skatta miklu máli í stjórn­skipu­legu til­liti, þannig að gætt sé m.a. jafn­ræðis og með­al­hófs,“ segir í grein þeirra Sindra og Víðis Smára á Vísi í dag.

Þar segja þeir einnig að aðal­at­riðið við mat á því hvort stór­eigna­skattar séu lög­mætir sé að horfa til þess „hve íþyngj­andi þeir eru til lengri tíma“ og segja lága stór­eigna­skatta ólík­lega til að fela í sér eigna­upp­töku.

„Þannig má nefna að 1,5% skattur í 10 ár felur sam­an­lagt í sér u.þ.b. 15% skatt­lagn­ingu. Til sam­an­burðar var sam­an­lagt skatt­hlut­fall stór­eigna­skatts­ins árin 1949 og 1956 allt að 50% á sjö ára tíma­bili en sú skatt­lagn­ing sam­rýmd­ist kröfum stjórn­ar­skrár,“ skrifa Sindri og Víðir Smári, sem segja einnig að það mætti hugsa sér ýmsar útfærslur sem stuðli að með­al­hófi við álagn­ingu stór­eigna­skatts, til dæmis hækkun skatts­ins í skrefu eða heim­ild til þess að dreifa skatt­greiðslum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár