Næstum því jafnmargir starfa nú og fyrir farsótt

Fjöldi starf­andi fólks hefur auk­ist hratt síð­ustu mán­uðum og fyr­ir­tæki hafa mik­inn áhuga á að ráða til sín starfs­fólk. Samkvæmt Seðla­bank­anum væri atvinnu­leysið 2,5 pró­sentu­stigum hærra ef ekki væri fyrir ráðn­ing­ar­styrki stjórn­valda.

Vonir eru bundnar við að störfum fari aftur að fjölga samhliða fjölgun ferðamanna.
Vonir eru bundnar við að störfum fari aftur að fjölga sam­hliða fjölgun ferða­manna. Mynd: Birgir Þór

Starf­andi fólki fjölg­aði tölu­vert á síð­asta árs­fjórð­ungi og er fjöldi þeirra nálægt því að vera jafn­mik­ill og hann var áður en far­ald­ur­inn byrj­aði. Þetta kemur fram í nýjasta hefti Pen­inga­mála Seðla­banka Íslands, sem var gefið út í morgun.

Samkvæmt heft­inu fjölg­aði störfum mest í ferða­þjón­ustu, en sam­hliða fjölg­un­inni jókst atvinnu­þátt­taka einnig og er hún nú orðin áþekk því sem hún var í byrjun síð­asta árs. Þó er hlut­fall starf­andi 2,5 pró­sentum lægra en það var þá, þar sem fólki á vinnu­mark­aði hefur fjölgað.

Ráðningastyrkir mikilvægir

Ráðn­ing­ar­styrkir stjórn­valda virð­ast hafa spilað stórt hlut­verk í minnkun atvinnu­leysis, en sam­kvæmt Seðla­bank­anum var að jafn­aði um helm­ingur afskrán­inga af atvinnu­leys­is­skrá vegna þeirra. Bankinn áætlar að atvinnu­leysi hefði verið um 2,5 pró­sentu­stigum hærra ef þeirra hefði ekki notið.

Samhliða þessu hefur lang­tíma­at­vinnu­leysi einnig minnkað, en Seðla­bank­inn segir þó að það sé enn í hærra lagi. Um 2,6 pró­sent af vinnu­mark­aðnum eru skráðir sem lang­tíma­at­vinnu­lausir, sem sé svipað og það varð mest í kjöl­far síð­ustu fjár­málakreppu.

Erfiðara að leiða saman fyrirtæki og starfsmenn

Seðla­bank­inn segir mik­inn vilja vera til staðar hjá fyr­ir­tækjum að ráða til sín starfs­fólk og bendir á nið­ur­stöður kann­ana sem sýna að stór hluti stjórn­enda telja fyr­ir­tækin sín búa við starfs­manna­skort. Í einni slíkri könnun svar­aði þriðj­ungur stjórn­enda að fyr­ir­tæki þeirra væru í vanda með að mæta óvæntri eft­ir­spurn.

Samkvæmt Seðla­bank­anum hefur geta vinnu­mark­að­ar­ins til að leiða saman atvinnu­leit­endur og fyr­ir­tæki minnkað, sem lýsir sér í háu atvinnu­leysi sam­hliða miklum fjölda lausra starfa. Bankinn bindur þó vonir sínar við að það dragi aftur úr þess­ari óskil­virkni á vinnu­mark­aðnum á næst­unni þar sem störfum fjölgar mikið í ferða­þjón­ust­unni og skráð atvinnu­leysi nálg­ast á sama stig og fyrir heims­far­ald­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár