Góðgerðarframkvæmd sem ætlar að kaupa jarðir til náttúruverndar

Bræður vilja vernda ósnortna nátt­úru fyrir kom­andi kyn­slóðir. Þeir safna fyrir nýstár­legri leið til þess á Karolina Fund.

Ice Trust er nýj­ung á sviði per­sónu­legrar nátt­úru­verndar sem miðar að því að vernda ósnortna nátt­úru fyrir kom­andi kyn­slóðir. Að verk­efn­inu standa tveir bræður, Arin­björn og Benedikt Kol­beins­synir, sem eru báðir í dokt­ors­námi í gervi­greind í Bret­landi. Bræð­urnir ætla að nýta tækni­þekk­ingu sína fyrir nýsköpun í nátt­úru­vernd á Íslandi.

Þeir segja að hug­myndin að verk­efn­inu hafi kviknað í fyrra þegar þeir voru á ferða­lagi um Ísland. „Eftir að hafa stundað nám erlendis í mörg ár höfum við gert okkur betur grein fyrir sér­stöðu íslenskrar nátt­úru. Það er nán­ast ómögu­legt að finna slíka víð­áttu ann­ars staðar í Evrópu. Það er nauð­syn­legt er að vernda ósnortna nátt­úru svo kom­andi kyn­slóðir geti notið hennar líka. Þegar jörð á Íslandi fer á sölu eru mögu­legir kaup­endur nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust aðilar sem ætla að hagn­ast á land­inu sjálfu. Því miður er nátt­úr­unni oft fórnað í því hagn­að­ar­skyni. Við erum að bregð­ast við þess­ari þróun og erum að byggja upp þessa stofnun til þess að kaupa og vernda jarðir áður en það verður of seint.“

[adspot]Inntak Ice Trust er „nátt­úru­vernd í þínu nafni“. Í því felst að aðstand­endur verk­efn­is­ins vilja að fólk fái per­sónu­lega teng­ingu við það land sem það er að vernda. Fyrir verð á mál­tíð á veit­inga­stað verður hægt að fá heið­urs­eign af eins fer­metra ​skika á landi Ice Trust. Ein­stak­lingur sem styrkir Ice Trust fær nákvæm hnit af sínum skika og getur heim­sótt hann og notið nátt­úru hvenær sem er

Um er að ræða góð­gerð­ar­verk­efni sem er ekki rekið í hagn­að­ar­skyni. Við erum núna að safna stofnfé fyrir sjálfs­eign­ar­stofnun sem mun eiga allar jarðir sem verða keyptar. Við munum sækja um frið­lýs­ingu fyrir hverja og eina um leið og gengið er frá kaupum.“

Markmið Ice Trust er að kaupa litlar og með­al­stórar jarðir sem ein­kenn­ast af ein­stakri og ósnort­inni nátt­úru. „Við erum að spila með en ekki að keppa við þjóð­garð­ana. Það er ekki hægt að stofna þjóð­garð fyrir hverja litla jörð um allt land. Ice Trust er lítil og sveigj­an­leg stofnun sem getur brugð­ist hratt við breyt­ingum til að vernda litlar jarðir sem hafa nátt­úru­lega sér­stöðu.“

Bræð­urnir segja að þegar fyrsta jörðin verður keypt geti styrkj­endur valið sér sinn skika á henni. „Þeir munu fá raf­rænt vott­orð með nákvæmum hnitum fyrir skikanum sínum til þess að heim­sækja. „Fram­tíð­ar­mark­mið okkar er að nýta tækni betur til að gera nátt­úru­vernd per­sónu­legri og við­halda sjálf­bærni í nátt­úr­unni sem sjálfs­eign­ar­stofn­unin verndar. Við munum einnig beita tækni til þess að tengja styrkj­endur beint við sína skika og gera þeim kleift að fylgj­ast betur með þeim, t.d. með myndum sem teknar verða reglu­lega með drónum. Eins og David Attenborough og fleiri hafa sagt er rýrnun á líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika og eyði­legg­ing nátt­úr­unnar álíka alvar­legt mál og hnatt­ræn hlýnun. Samspil þess­ara breyt­inga auka óstöð­ug­leika í umhverf­inu og valda óaft­ur­kræfu tjóni.“

Hægt að nálg­ast söfn­un­ina á Karolina Fund hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár