Ásgeir Jónsson fékk bréf frá Samherja eftir viðtalið við Stundina

Kjarninn hefur fengið stað­fest­ingu á því að Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri fékk sent erindi frá Samherja í kjöl­far þess að við­tal við hann í Stund­inni birt­ist í apr­íl­mán­uði. Erindið fæst ekki afhent vegna þagn­ar­skyldu starfs­manna Seðla­bank­ans.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Erindi sem hann fékk frá Samherja eða fulltrúa fyrirtækisins eftir viðtal við Stundina í apríl fæst ekki afhent vegna þagnarskyldu starfsmanna Seðlabankans.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Erindi sem hann fékk frá Samherja eða full­trúa fyr­ir­tæk­is­ins eftir við­tal við Stundina í apríl fæst ekki afhent vegna þagn­ar­skyldu starfs­manna Seðla­bank­ans. Mynd: Bára Huld Beck

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji, eða ein­hver á þess vegum, sendi erindi á Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóra eftir að umtalað við­tal við hann birt­ist í Stund­inni í apr­íl­mán­uði. Þetta hefur Kjarninn fengið stað­fest, en blaða­maður óskaði eftir því við Seðla­bank­ann að fá afhent öll erindi frá Samherja eða full­trúum fyr­ir­tæk­is­ins sem mögu­lega hefðu borist til seðla­banka­stjóra frá því að við­tal Stund­ar­innar við Ásgeir birt­ist.

Í svari Seðla­bank­ans við beiðni Kjarnans um gögnin felst stað­fest­ing á því að slíkt erindi er til, en Seðla­bank­inn neitar Kjarn­anum um aðgang að umbeðnum gögnum með vísan til ríkrar þagn­ar­skyldu starfs­manna bank­ans.

„Rík þagn­ar­skylda hvílir á starfs­mönnum Seðla­bank­ans um allt það sem varðar hagi við­skipta­manna bank­ans, við­skipti og rekstur eft­ir­lits­skyldra aðila, tengdra aðila eða ann­arra og mál­efni bank­ans sjálfs, svo og um önnur atriði sem þeir fá vit­neskju um í starfi sínu og leynt skulu fara sam­kvæmt lögum eða eðli máls, nema dóm­ari úrskurði að upp­lýs­ingar sé skylt að veita fyrir dómi eða til lög­reglu eða skylt sé að veita upp­lýs­ingar lögum sam­kvæmt [...]. Umbeðin gögn varða sam­skipti Seðla­bank­ans og þriðja aðila og telur bank­inn að slíkar upp­lýs­ingar séu háðar þagn­ar­skyldu nema ann­að­hvort úrskurður dóm­ara eða laga­boð gera bank­anum skylt að láta þær af hendi. Beiðni þinni um aðgang að umbeðnum gögnum er þar með hafnað,“ segir í svari Seðla­bank­ans til blaða­manns.

Kjarninn kærir synjun Seðlabankans til úrskurðarnefndar

Þetta form­lega svar barst blaða­manni síð­asta föstu­dag og hefur ákvörðun Seðla­bank­ans um að synja Kjarn­anum um aðgang að þessu erindi frá Samherja þegar verið kærð til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Samkvæmt 5. gr. upp­lýs­inga­laga á almenn­ingur rétt til allra gagna sem mál varða, þ.m.t. end­ur­rita af bréfum sem stjórn­vald eða aðrir aðilar hafa sent, enda megi ætla að þau hafi borist við­tak­anda.

Í kæru blaða­manns til úrskurð­ar­nefndar segir meðal ann­ars að ekki verði fall­ist á það, án þess að úrskurð­ar­nefndin sem óháður aðili hafi lagt mat á erindið frá Samherja til seðla­banka­stjóra, að efni þess sé þess eðlis að það þurfi að fara leynt vegna þagn­ar­skyldu starfs­manna Seðla­bank­ans, en sam­kvæmt 4. gr. upp­lýs­inga­laga eiga almenn ákvæði laga um þagn­ar­skyldu ekki að tak­marka rétt til aðgangs að gögnum.

[adspot]

Nokkrir mán­uðir munu senni­lega líða þar til úrskurður liggur fyrir í þessu kæru­máli.

Í ljósi þessa óskaði blaða­maður eftir því að fá erindið afhent frá Samherja og spurð­ist fyrir um það hvort fyr­ir­tækið teldi, rétt eins og Seðla­bank­inn, að erindið væri þess eðlis að það ætti að fara leynt. Svör höfðu ekki borist frá Samherja þegar þessi frétt birt­ist.

Kjarninn hefur því ekki vit­neskju um hvað kemur fram í þessu erindi Samherja eða ein­hvers á vegum fyr­ir­tæk­is­ins til seðla­banka­stjóra, sem í ljós hefur komið að er til.[links]

Ósk um útskýringar?

Mögulega felst í því ósk um útskýr­ingar Ásgeirs á ein­hverjum orðum hans í sam­tali við Stundina, en erindið er að lík­indum sent á svip­uðum tíma og annað bréf sem barst mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra frá Arnari Þór Stef­áns­syni, lög­manni Samherja, þann 27. apríl.

Eins og Kjarninn sagði frá í fyrra­dag krafði lög­mað­ur­inn Lilju Alfreðs­dóttur um útskýr­ingar á orðum hennar á þingi, þar sem hún sagði 26. apríl síð­ast­lið­inn að Samherji hefði gengið „of langt“ í við­brögðum sínum við frétta­flutn­ingi af svoköll­uðu Namib­íu­máli fyr­ir­tæk­is­ins.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kall­aði þetta bréf Samherja til Lilju stórfurðu­legt, í sam­tali við mbl.is í gær.

Ásgeir gagnrýndi framgöngu Samherja gegn starfsfólki Seðlabankans

Í við­tal­inu við Stundina, sem birt­ist 23. apríl, gagn­rýndi Ásgeir Samherja fyrir fram­göngu sína gegn ein­staka starfs­mönnum gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­bank­ans, en fyr­ir­tækið kærði fimm starfs­menn bank­ans að Má Guð­munds­syni fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra með­töldum til lög­reglu vorið 2019, eftir að Seðla­bank­inn hafn­aði að greiða Samherja bætur vegna hins svo­kall­aða Seðla­banka­máls.

„Og ég er mjög ósáttur við þennan anga af þessu Sam­herj­a­máli: Að farið hafi verið svona per­sónu­lega á eftir þessu fólki. [...]Eitt er að fara gegn stofn­un­inni, það er hægt að berja á þess­ari stofnun eða mér sem fram­kvæmda­stjóra hennar. En ég er mjög ósáttur við að farið sé á eftir ein­staka starfs­mönnum með þessum hætti. Það má alveg berja á þess­ari stofnun, hún er virki, en það má ekki gera þetta svona per­sónu­lega gegn fólki.“

Í við­tal­inu sagði Ásgeir ótækt að Samherji gæti ráð­ist per­sónu­lega að ríkis- og emb­ætt­is­mönnum með þeim hætti sem hann teldi að hefði átt sér stað.

„Þetta er ákveð­inn vandi; lög­gjaf­inn hefur ekki enn veitt okkur vernd fyrir svona ásókn. Seðla­bank­inn mun að sjálf­sögðu standa straum af máls­kostn­aði vegna þess­ara mála. En ég er mjög ósáttur við þetta, að þessar kærur hafi ekki verið afgreiddar og það hafi ekki verið gengið frá þessu,“ sagði Ásgeir við Stundina.

Ríkissaksóknari með málið

Sama dag og við­talið við Ásgeir birt­ist kom það fram í fréttum að lög­reglu­stjór­inn á Vest­fjörðum hefði vísað kæru Samherja frá. Fram kemur í sam­skipta­gögnum innan úr Samherja sem Kjarninn hefur undir höndum að Samherji ætli sér að fara lengra með málið.

„Bara svo þið vitið þá vís­aði lög­reglu­stjór­inn á Vest­fjörðum kærunni frá a grund­velli þess að bank­inn hafði brotið eins a öðrum í 18 málum. Sumsé eins og ef þú seg­ist ekki eiga að fá sekt af því að þú keyrðir yfir 18 önnur rauð ljós. Rík­is­sak­sókn­ari er með málið og hefur kallað eftir gögnum frá lög­reglu­stjór­anum. Þessi rök halda vita­skuld ekki vatni. Þu sleppur ekki fyrir það eitt að hafa brotið oftar af þér. Öðru fremur bendir það til kerf­is­bund­inna brota,“ sagði annað hvort Arna McClure lög­maður eða Þorbjörn Þórð­ar­son almanna­tengsla­ráð­gjafi í spjall­hópnum „PR Namibía“ sama dag og við­talið við Ásgeir birt­ist í Stund­inni.

Eins og Kjarninn sagði frá nýlega ræddu þau þar, ásamt Páli Stein­gríms­syni skip­stjóra, um hvernig ætti að bregð­ast við orðum seðla­banka­stjóra í við­tal­inu.

Ýmist Arna eða Þorbjörn sögðu að það væri „hægt að afgreiða Ásgeir í 250 orðum“ og rætt var um að „gera þrjár mis­mun­andi útgáfur“ af blaða­grein, „með svip­uðu inn­taki en ólíkum stíl og áherslum, og birta í sömu vik­unni í þremur ólíkum miðlum. Vísi, Mbl og Frétta­blað­inu“ til þess að svara seðla­banka­stjóra og þeim orðum sem hann lét falla í sam­tali við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár