Seðlabankinn gerir ráð fyrir færri ferðamönnum

Samkvæmt nýrri spá Seðla­bank­ans munu færri ferða­menn koma hingað til lands í ár heldur en áður var talið, meðal ann­ars vegna til­komu nýrra afbrigða af kór­ónu­veirunni.

Seðlabankinn deilir ekki sömu bjartsýni og Landsbankinn á komu ferðamanna hingað til lands í ár
Seðla­bank­inn deilir ekki sömu bjart­sýni og Lands­bank­inn á komu ferða­manna hingað til lands í ár Mynd: Bára Huld Beck

Seðla­bank­inn hefur fært niður spá sína um fjölda erlendra ferða­manna sem koma hingað til lands í ár um 40 þús­und manns, en nú telur hann að þeir verði 660 þús­und tals­ins. Þetta kemur fram í nýjasta hefti Pen­inga­mála, sem kom út í morgun.

Stökkbreytt afbrigði vega þungt

Samkvæmt heft­inu er talið að fjölgun ferða­manna verði hæg­ari en spáð var í fyrra hefti pen­inga­mála, sem kom út í febr­úar, þar sem far­ald­ur­inn hefur reynst þrá­lát­ari í helstu við­skipta­löndum Íslands. Bankinn nefnir einnig að hertar sótt­varn­ar­að­gerðir stjórn­valda hér­lendis til að sporna við því að smit ber­ist til lands­ins spili þar inn, eftir að ný stökk­breytt afbrigði veirunnar hafa litið dags­ins ljós sem hafa reynst meira smit­andi.

Vöxturinn hefst í ágúst

Þórarinn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ingur Seðla­bank­ans sagði á vaxta­á­kvarð­ana­fundi fyrr í dag að spá bank­ans byggi á bók­un­ar­upp­lýs­ingum og spám um fram­vindu­far­ald­urs­ins í öðrum við­skipta­löndum Íslands. Samkvæmt honum mun vöxt­ur­inn í komu ferða­manna hefj­ast að marki í ágúst.

Bankinn birti svo sér­staka ramma­grein til við­bótar við Pen­inga­mál, þar sem for­sendur fyrir spá um sótt­varn­ar­að­gerðir á landa­mær­unum voru raktar. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að núver­andi fyr­ir­komu­lagi sótt­varna við landa­mæri með skimunum og sótt­kví verði við­haldið fram á haust með und­an­þágum. Eftir að sótt­vörnum á landa­mær­unum verður slakað muni ferða­mönnum svo fjölga hratt.

Þriðjungsfjölgun frá því í fyrra

Ef spá Seðla­bank­ans gengur upp mun ferða­mönnum sem koma til Íslands fjölga um rúm­lega þriðj­ung frá því í fyrra. Samkvæmt bank­anum er þetta áþekk fjölgun og Alþjóða­sam­band flug­fé­laga spáir að flug­far­þegum fjölgi á heims­vísu. Áfram sé gert fyrir að fram­leiðslu­geta ferða­þjón­ustu og tengdrar starf­semi varð­veit­ist og sé því til­tölu­lega auð­velt að mæta þess­ari auknu aðsókn.

Landsbankinn mun bjartsýnni

Spá Seðla­bank­ans er tölu­vert frá­brugðin þeirri sem Lands­bank­inn birti í gær, en þar upp­færði bank­inn væntan fjölda ferða­manna í ár úr 650 þús­und í 800 þús­und. Samkvæmt bank­anum munu ferða­lög hingað til lands taka vel við sér á þriðja og fjórða árs­fjórð­ungi, auk þess sem eld­gosið í Geld­inga­dölum muni draga að sér auk­inn fjölda ferða­manna á meðan það varir.

Seðla­bank­inn telur aftur á móti að bat­inn verði hæg­ari í ferða­þjón­ustu í ár heldur en áður var gert ráð fyrir og að þjón­ustu­út­flutn­ingur vaxi því hægar. Munurinn á ferða­manna­spám er ein ástæðan fyrir því að miklu munar á hag­vaxt­ar­spám bank­anna, en Seðla­bank­inn gerir ráð fyrir 3,1 pró­senta hag­vexti í ár á meðan Lands­bank­inn gerir ráð fyrir að hann muni nema 4,9 pró­sentum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár