Landsbankinn gerir ráð fyrir 800 þúsund ferðamönnum í ár

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans er bjart­sýn um áætl­aðan fjölda ferða­manna sem kemur hingað til lands í nýj­ustu þjó­hags­spánni sinni.

Landsbankinn er bjartsýnni á komu ferðamanna til landsins en áður.
Lands­bank­inn er bjart­sýnni á komu ferða­manna til lands­ins en áður. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ný þjóð­hags- og verð­bólgu­spá Lands­bank­ans fyrir næstu þrjú árin gerir ráð fyrir að 800 þús­und erlendir ferða­menn komi til lands­ins í ár. Þetta eru með bjart­sýn­ustu spám um fjölda ferða­manna sem íslenskir grein­ing­ar­að­ilar hafa gefið út.

Samkvæmt spánni mun lands­fram­leiðsla aukast um 4,9 pró­sent í ár, að mestu leyti vegna vaxtar í útflutn­ingi. Í síð­ustu hag­spá Lands­bank­ans, sem kom út í októ­ber í fyrra, var gert ráð fyrir komu 650 þús­und ferða­manna. Þar var einnig búist við tölu­vert minni hag­vexti, eða 3,4 pró­sentum, og var það að stórum hluta vegna minni fjölda ferða­manna.

[adspot]

Í síð­ustu þjóð­hags­spá Íslands­banka, sem kom út í lok jan­úar, var hins vegar gert ráð fyrir að 700 þús­und ferða­menn myndu sækja landið heim í ár í lík­leg­ustu sviðs­mynd­inni. Bankinn birti þó einnig bjart­ari sviðs­mynd, þar sem gert var ráð fyrir að ein milljón ferða­manna kæmi til lands­ins og svart­ari sviðs­mynd þar sem gert var ráð fyrir komu 450 þús­und ferða­manna.

Seðla­bank­inn bjóst einnig við komu 700 þús­und ferða­manna í síð­ustu Pen­inga­málum bank­ans, sem komu út í febr­úar. Bankinn hafði þá fært niður vænt­ingar sínar um ferða­manna­fjölda frá nóv­em­ber­spá sinni, þar sem hann taldi að 750 þús­und þeirra kæmu til lands­ins í ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár