„Af nógu að taka áður en höggvið er í sama knérunn um að laun séu of há“

Forseti ASÍ leggur til nokkrar lausnir áður en ráða­menn og fyr­ir­tækja­eig­endur hér á landi fara að gagn­rýna slag­orð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar „það er nóg til“.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, áréttar í viku­legum pistli sínum að víst sé „nóg til“ en Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur sett spurn­ing­ar­merki við slag­orð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar „það er nóg til“ og vísað þeirri full­yrð­ingu á bug.

Bjarni var gestur mark­að­ar­ins á Hring­braut þann 12. maí síð­ast­lið­inn en í því við­tali sagð­ist hann sjá í fjár­mála­ráðu­neyt­inu að það væri alls ekki nóg til. „Það vantar 300 millj­arða á ári, til þess að það sé nóg til. Til þess að það verði nóg til þá þarf að auka umsvifin og passa upp á að það verði til verð­mæt störf.“ Sagði hann á að til að hag­vöxtur yrði á ný væri mik­il­vægt að halda rétt á spöð­unum í efna­hags­málum.

„Áður en ráða­menn og fyr­ir­tækja­eig­endur þessa lands fara að gagn­rýna slag­orð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar „það er nóg til” legg ég til þessi við­brögð í stað­inn: Að inn­leiða skyldu á fyr­ir­tæki um að greina frá launa­bili innan fyr­ir­tækja og setja sér stefnu um ásætt­an­legt launa­bil. Enn fremur að lækka ofur­laun og taka á bón­usum og ofurarð­greiðslum. Að sama skapi þarf fjár­mála­ráð­herra að svara því af hverju verið er að lækka gjöld á þá sem eru aflögu­færir (fjár­magnstekju­skatt, hluta­bréfa­kaup­endur, atvinnu­rek­endur í gegnum trygg­ing­ar­gjald hvort sem þeir þurfa aðstoð eða ekki o.s.frv.) á meðan rík­is­sjóður er rek­inn með tapi,“ skrifar Drífa.

[links]„Veiking skatt­rann­sókna er svo kap­ít­uli út af fyrir sig þegar skattaund­an­skot eru metin af fjár­mála­ráðu­neyt­inu á 3 til 7 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Það má líka vinda ofan af mark­aðsvæð­ingu hús­næð­is­mark­að­ar­ins þannig að fólk hafi í raun mögu­leika á öryggi í sínu dag­lega lífi óháð tekjum. Krafan um mann­sæm­andi laun er krafan um öryggi, sann­girni og lífs­gæði,“ heldur hún áfram.

Spyr hún jafn­framt til hvers ráða­menn séu ef ekki til að skilja þetta grund­vall­ar­at­riði í lífi almenn­ings. „Ef ráða­menn og atvinnu­rek­endur vilja fleiri góð ráð er af nógu að taka áður en höggvið er í sama knérunn um að laun séu of há.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár