Bjarni „myndi vilja sjá minni kjördæmi út um landið“

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að fyrir sitt leyti komi til greina að tvö­falda fjölda kjör­dæma á lands­byggð­inni, til þess að færa þing­menn­ina nær fólk­inu. Hann telur þörf á grund­vall­ar­end­ur­skoðun á kosn­inga­lög­gjöf­inni.

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins telur koma til greina að fjölga kjördæmum í landinu.
Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins telur koma til greina að fjölga kjör­dæmum í land­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að kom­inn sé tími til þess að end­ur­skoða kjör­dæma­skipan og kosn­inga­lög­gjöf í land­inu. Í við­tali við Vísi eftir fund rík­is­stjórn­ar­innar í dag sagði hann fyrir sitt leyti kæmi til greina að fjölga kjör­dæmum í lands­byggð­unum.

„Ég finn til dæmis fyrir því þegar ég fer um landið að fólki finnst kjör­dæmin of stór og ef ég nefni þar að skera lands­byggð­ar­kjör­dæmin upp í tvennt, að tvö­falda fjölda þeirra, þá fellur það mönnum mjög vel í geð. Menn fengju þannig meiri nálægð við sína full­trúa á þingi og það fynd­ist mér alveg koma til greina,“ sagði Bjarni og bætti því við að það mætti spyrja sig hvaða vit væri í því að hafa Reykja­vík í tveimur kjör­dæmum.

Frétta­maður Vísis spurði Bjarna út í þau sjón­ar­mið sem sett hafa verið fram um að fjöldi jöfn­un­ar­þing­sæta verði end­ur­skoð­aður til þess að jafna atkvæða­vægi í land­inu á milli flokka.

Ólafur Þ. Harð­ar­son pró­fessor í stjórn­mála­fræði hefur bent á að misvægi atkvæða á milli flokka, sem hefur verið til staðar allt frá 2009, megi leið­rétta með því að fjölga jöfn­un­ar­sætum með breyt­ingum á kosn­inga­lögum. Hefur pró­fess­or­inn sagt það „Alþingi til skammar að hafa ekki brugð­ist við og fjölgað jöfn­un­ar­sætum strax eftir kosn­ing­arnar 2013“ og höf­uðið verði bitið af skömminni ef Alþingi sam­þykki ekki að ráð­ast í slíkar breyt­ingar fyrir kosn­ingar hausts­ins.

Sagði þessu mál lítið hafa verið rædd

Bjarni sagði í við­tal­inu við Vísi að lítil umræða hefði verið um þessi mál inni á þingi og þau ekki verið til skoð­unar, en þó er það reyndar svo að bæði þing­flokkar Við­reisnar og Pírata hafa lagt fram frum­vörp á yfir­stand­andi lög­gjaf­ar­þingi sem hafa það að mark­miði að jafna vægi atkvæða, ýmist á milli flokka eða lands­hluta.

[adspot]

Bjarni sagði að misvægi atkvæða væri „óheppi­legt“ en hann sagði þó að það væri „engin trygg­ing“ fyrir því að breyt­ingar sem yrðu gerðar núna á fjölda jöfn­un­ar­manna myndu leysa þetta misvægi á milli flokka, margar kosn­ingar fram í tím­ann. Enda væri engin vissa um hve margir flokkar yrðu á þingi eftir kom­andi kosn­ingar.

Þingmenn nær fólkinu

Einnig sagð­ist hann sjálfur sjá fyrir sér tölu­verðar breyt­ingar á kjör­dæma­fyr­ir­komu­lag­inu og þá í þá átt að kjör­dæmin á lands­byggð­inni yrðu fleiri og minni.

„Ég er búinn að mynda mér þá skoðun eftir mörg ár á þingi að þetta kjör­dæma­fyr­ir­komu­lag sem við erum með í dag sé ekk­ert svaka­lega heppi­legt. Það var ágætis breyt­ing á sínum tíma en mér finnst komin tími til að taka það upp til end­ur­skoð­unar og ég myndi vilja sjá minni kjör­dæmi út um landið. Það þýðir ekk­ert endi­lega fleiri þing­menn, og kannski einmitt ekki, sér­stak­lega ekki ef við förum að hreyfa við atkvæða­væg­inu. En það myndi færa þing­menn­ina nær fólk­inu og yrði til góðs að mínu áliti,“ sagði Bjarni við Vísi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár