Samfylkingin ekki mælst minni frá því fyrir kosningarnar 2017

Alls myndu níu flokkar ná inn á þing ef kosið yrði í dag og hefðu þá aldrei verið fleiri. Sitjandi rík­is­stjórn væri fallin og ómögu­legt yrði að mynda stjórn sem inn­héldi færri en fjóra flokka.

Logi Einarsson er formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son er for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­fylk­ingin mælist með 12,7 pró­sent fylgi í nýrri könnun Gallup á fylgi stjórn­mála­flokka sem gerð var dag­ana 1-29. mars. Það er minnsta fylgi sem hún hefur mælst með í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins á þessu kjör­tíma­bili.

Raunar þarf að fara til loka sept­em­ber­mán­aðar 2017, um tveimur vikum eftir að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sprakk, til að finna mæl­ingu á fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hjá Gallup sem er lægri. Þá mæld­ist fylgi flokks­ins 9,7 pró­sent. Hæst reis fylgið haustið 2018 þegar 19,3 pró­sent lands­manna sögð­ust ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una. Fylgið nú er rétt yfir kjör­fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem fékk 12,1 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Flokk­ur­inn yrði samt sem áður næst stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag. Sá sem mælist með mest fylgi er að venju Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sem nýtur stuðn­ings 23 pró­sent lands­manna. Það yrði versta nið­ur­staða flokks­ins frá upp­hafi ef hún kæmi upp úr kjör­köss­unum en fylgið stendur í stað milli mán­aða.

Framsókn einungis einu sinni mælst stærri á kjörtímabilinu

Vinstri græn tapa fylgi frá því í febr­úar og mæl­ast nú með 12,3 pró­sent stuðn­ing. Það er tölu­vert frá þeim 16,9 pró­sentum sem flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur fékk í síð­ustu kosn­ingum. Enginn þeirra flokka sem eiga sæti á Alþingi í dag hafa tapað jafn miklu fylgi á kjör­tíma­bil­inu og Vinstri græn.

[adspot]Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn heldur áfram að hress­ast og mælist nú með 11,1 pró­sent fylgi. Hann hefur ein­ungis einu sinni mælst með meira fylgi á kjör­tíma­bil­inu, í des­em­ber 2018 eftir að Klaust­ur­málið svo­kall­aða kom upp. Fylgið er nú komið rétt yfir kjör­fylgi en það myndi samt sem áður skila næst verstu nið­ur­stöðu flokks­ins í rúm­lega 100 ára sögu hans ef það yrði nið­ur­staða kosn­inga.

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er 46,4 pró­sent og allt bendir til þess að sitj­andi rík­is­stjórn myndi falla ef kosið yrði í dag.

Níu flokkar mælast inni

Samkvæmt könnun Gallup myndi flokk­unum sem næðu inn þing­manni fjölga úr átta í níu þar sem bæði Flokkur fólks­ins og Sós­í­alista­flokkur Íslands mæl­ast með um fimm pró­sent fylgi.

Píratar halda áfram að sýna stöð­ug­leika í könn­unum og mæl­ast nú með 11,5 pró­sent fylgi, sem er aðeins minna en fyrir mán­uði síðan.

Mið­flokk­ur­inn er sá flokkur sem bætir mestu við sig á milli mán­aða og segj­ast nú 9,5 pró­sent kjós­enda styðja hann. Það er sama pró­sent­hlut­fall og styður Viðreisn.

Í frétt RÚV um könn­un­ina segir að yrðu þetta úrslit kosn­ing­anna í haust þá fengi Sjálf­stæð­is­flokkur 15 þing­menn, Fram­sókn­ar­flokkur, Sam­fylk­ing, Vinstri græn og Píratar átta hver. Mið­flokk­ur­inn og Viðreisn fengju hvor um sig sex þing­menn, Flokkur fólks­ins þrjá og Sós­í­alista­flokkur Íslands fengi einn kjör­dæma­kjör­inn mann í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, en næði ekki fimm pró­senta þrösk­uld­inum fyrir upp­bót­ar­menn.

Miðað við þessa stöðu væri ómögu­legt að mynda þriggja flokka rík­is­stjórn þrátt fyrir að Sam­fylk­ingin, næst stærsti flokkur lands­ins, myndi draga til baka yfir­lýs­ingu sína um að vinna ekki með stærsta flokknum, Sjálf­stæð­is­flokki.

Heild­ar­úr­takið í könn­un­inni, sem var net­könnun, var 9.856 manns sem valdir voru af handa­hófi og þátt tóku 53 pró­sent. Næst verður kosið til þings 25. sept­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár