Búist við litlu magni af bóluefni Janssen í apríl en síðan vaxandi fjölda skammta

Gert er ráð fyrir því að fyrsta send­ing af bólu­efni Janssen komi hingað til lands 16. apríl. Ekki er ljóst hve mikið magn kemur, en búist er við að það verði lítið. Norsk og dönsk yfir­völd reikna með að fá færri skammta í apríl en áður var gert ráð fyrir.

Janssen er dótturfélag bandaríska stórfyrirtækisins Johnson & Johnson.
Janssen er dótt­ur­fé­lag banda­ríska stór­fyr­ir­tæk­is­ins Johnson & Johnson. Mynd: EPA

Gert er ráð fyrir því að fyrstu skammt­arnir af bólu­efni Janssen komi hingað til lands 16. apríl. Samkvæmt svari heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans hefur fram­leið­and­inn ekki enn stað­fest hversu margir skammtar koma í apríl, en búist er við litlu magni í apríl og að fjöldi skammta fari svo vax­andi í kjöl­farið.

Í gær og í dag hefur verið sagt frá því í Noregi og Danmörku að nú sé gert ráð fyrir því að umtals­vert færri skammtar af bólu­efni Janssen ber­ist þangað í apríl en áður hafði verið búist við.

Danska rík­is­út­varpið DR rekur í nýrri frétt að heil­brigð­is­yf­ir­völd þar í landi hafi verið að upp­færa bólu­setn­ing­ar­daga­talið sitt. Áður voru vænt­ingar um að 495 þús­und skammtar af bólu­efni Janssen bær­ust til Dan­merkur í apríl, en nú horfi svo við að skammt­arnir í apríl verði ein­ungis 39 þús­und tals­ins.

Svipaða sögu má segja frá Noregi. Í gær var sagt frá því á vef TV2 og víðar að í stað þess að 310 þús­und skammtar bær­ust til Noregs í apríl, eins og vænt­ingar yfir­valda stóðu til, yrðu þeir um 52 þús­und tals­ins.

63 þúsund skammtar fyrir mitt árið?

Rík­is­út­varpið rakti í frétt á vef sínum í dag að sam­kvæmt töl­unum frá Noregi mætti gera ráð fyrir um 3.500 skömmtum af bólu­efni Janssen til Íslands í apríl, en Norðmenn rétt eins og Íslend­ingar eru aðilar að samn­ingum Evr­ópu­sam­bands­ins um kaup á bólu­efnum.

Áætlanir Norð­manna gera ráð fyrir því að 930 þús­und skammtar af bólu­efni Janssen ber­ist til lands­ins fyrir lok júní­mán­aðar, sem myndi sam­svara rúm­lega 63 þús­und skömmtum til Íslands, miðað við höfða­tölu, en í bólu­efna­sam­starfi ESB dreifast bólu­efnin hlut­falls­lega jafnt á milli landa eftir fólks­fjölda.

Einungis einn skammtur á mann

Bóluefni Janssen er ólíkt hinum bólu­efn­unum gegn COVID-19 að því leyti að ein­ungis er gert ráð fyrir því að fólk fái einn skammt af bólu­efn­inu, en ekki tvo eins og af öðrum bólu­efnum sem tekin hafa verið í notkun hér á landi til þessa.

Samn­ingur Íslands um aðgengi að bólu­efni Janssen á að tryggja 235 þús­und skammta af bólu­efn­inu. Þegar samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður, 22. des­em­ber síð­ast­lið­inn, var ekki gert ráð fyrir því að dreif­ing á bólu­efni Janssen myndi hefj­ast fyrr en á þriðja árs­fjórð­ungi 2021, eða í fyrsta lagi í júlí.

Bólu­efnið fékk skil­yrt mark­aðs­leyfi á Íslandi þann 11. mars síð­ast­lið­inn í kjöl­far þess að Lyfja­stofnun Evrópu mælti með því að slíkt leyfi yrði útgefið.

Samkvæmt því sem fram kemur á vef Lyfja­stofn­unar reynd­ist bólu­efnið, í 44 þús­und manna klínískri rann­sókn í Banda­ríkj­unum, fækka til­fellum COVID-19 með ein­kennum um 67 pró­sent sam­an­borið við lyf­leysu, tveimur vikum eftir bólu­setn­ingu (116 til­vik úr 19.630 manna hópi sam­an­borið við 348 til­vik úr 19.691 manna hópi sem fékk lyf­leysu). Þetta þýðir að virkni þess er 67 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár