Ísland skrifar undir samning um aðgengi að bóluefni fyrir 235 þúsund manns

Íslensk yfir­völd hafa skrifað undir samn­ing um að fá bólu­efni frá Janssen. Búist er við að dreif­ing á því bólu­efni hefj­ist ekki fyrr en á þriðja árs­fjórð­ungi næsta árs.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ísland und­ir­rit­aði í dag samn­ing um bólu­efni frá lyfja­fram­leið­and­anum Janssen. Um er að ræða þriðja samn­ing íslenskra heil­brigð­is­yf­ir­valda um kaup á bólu­efnum við COVID-19, en hann tryggir bólu­efni fyrir 235 þús­und ein­stak­linga. Áður höfðu íslensk stjórn­völd gert samn­ing um bólu­efni frá Pfizer fyrir um 85 þús­und manns og Astra Zeneca fyrir um 115 þús­und manns.

Bóluefni Janssen, sem verður fram­leitt af lyfja­fram­leið­and­anum Johnson & Johnson, er í fasa III próf­unum og áformað er að Evrópsa lyfja­stofn­unin gefi út álit, sem er for­senda mark­aðs­leyfis fyrir efnið, í febr­úar 2021. Áætlað er að byrja afhend­ingu á þessu bólu­efni á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2021, sem hefst í júlí á næsta ári.

Í til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu segir að þátt­taka Íslands í sam­starfi Evr­ópu­þjóða um kaup á bólu­efnum í gegnum samn­inga fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins tryggi Íslandi hlut­falls­lega sama magn bólu­efna og öllum öðrum þjóðum sem taka þátt í sam­starf­inu. „Fram­kvæmda­stjórnin kveður á um hve mikið ríkin fá og er þar alfarið byggt á hlut­falls­legri úthlutun miðað við höfða­tölu hverrar þjóðar. Heil­brigð­is­ráðu­neytið vinnur að loka­gerð samn­ings við lyfja­fram­leið­and­ann Moderna og er ráð­gert að und­ir­rita hann 31. des­em­ber næst­kom­andi.“

[adspot]Fyrsta bólu­efnið sem Ísland fær verður frá Pfizer. Samn­ingar við það fyr­ir­tæki voru und­ir­rit­aðir 9. des­em­ber síð­ast­lið­inn og Evrópska lyfja­stofn­unin veitti bólu­efn­inu skil­yrt mark­aðs­leyfi í gær. Ísland fær 170 þús­und skammta af bólu­efn­inu en hver ein­stak­lingur mun þurfa tvo skammta. Það dugar því fyrir 85 þús­und manns. Bólu­efnið frá Pfizer kemur þó ekki allt í einu hingað til lands. Stefnt er að því að afhend­ing hefj­ist fyrir árs­lok og að fyrsta send­ing verði tíu þús­und skammtar.

Bóluefni Moderna verður lík­ast til næst til að koma á markað. Fasa III próf­unum á því er lokið og áætlað er að Evrópska lyfja­stofn­unin haldi mats­fund vegna Moderna bólu­efn­is­ins 6. jan­úar næst­kom­andi. Ísland hefur ekki samið við Moderna en við­ræður eru í gangi og stefnt er á und­ir­ritun samn­ings á gaml­árs­dag. 

Astra Zeneca hefur líka lokið fasa III próf­unum. Virkni þess bólu­efnis er þó minni en hjá Pfizer og Moderna. ekki liggur fyrir hvenær Evrópska lyfja­stofn­unin mun gefa út álit á bólu­efn­inu, en stefnt er að því að byrja að afhenda skammta í Evrópu á fyrsta árs­fjórð­ungi 2021. Ísland fær, líkt og áður sagði, efni sem dugar fyrir 115 þús­und ein­stak­linga þaðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár