Kynjahalli í myndastyttum

Ef lesa ætti sögu Dan­merkur út frá þeim 2500 mynda­styttum mætti halda að í land­inu hefðu ein­ungis búið karlar. Innan við 30 styttur af konum, eða þeim til­eink­aðar, er að finna í land­inu á almanna­færi utandyra. Brátt fjölgar lík­lega kvenna­hópnum, um eina.

Þegar rölt er um stræti, torg og almenn­ings­garða borga og bæja í Danmörku má víða sjá mynda­styttur. Kóngar, ráð­herrar og stjórn­mála­menn, borgar- og bæj­ar­stjórar, rit­höf­undar, tón­skáld, list­mál­arar, leik­arar, framá­menn í atvinnu­líf­inu o.s.frv. Sem sé úr öllum áttum, en eitt er þó sam­eig­in­legt með þessum hópi: þetta eru karlar. Með örfáum und­an­tekn­ingum. Einungis um eitt pró­sent styttna eru af konum og örfáar þeirra af til­teknum ein­stak­lingi.

Styttur af dönskum kóngum eru víða í Danmörku og margar áber­andi. Kóng­arnir oftar en ekki sitj­andi á helsta sam­göngu­tæki þeirra tíma, hest­inum. Danir kalla slíkar styttur ridd­ara­styttur, sú fyrsta af því tagi er jafn­framt sögð elsta ridd­ara­stytta á Norð­ur­löndum. Hún var sett upp á Kóngsins Nýja­torgi árið 1688. Höf­und­ur­inn var franskur, Abraham Lamoureux. Styttan var gerð úr blýi og með árunum gerð­ist hestur kon­ungs, Krist­jáns V afar kvið­síður. Árið 1947 var Utson-Frank mynd­höggv­ari feng­inn til að end­ur­gera stytt­una í bronsi. Utson-Frank var pró­fessor á Kon­ung­lega Lista­aka­demí­inu og við end­ur­gerð­ina fékk hann til liðs við sig einn nem­anda, Íslend­ing­inn Sigurjón Ólafsson.

Kristján IV við Børsen

Fyrir tveimur árum var sett upp ný stytta af Krist­jáni IV við Børsen, kipp­korn frá Krist­jáns­borg­ar­höll. Fram­kvæmda­kóng­ur­inn, 6 metra hár og steyptur í brons, stendur þar á háum stöpli, sem er eins konar dverg­út­gáfa af Sívalaturni. Færeyski lista­mað­ur­inn Hans Pauli Olsen gerði stytt­una, sem hefur hlotið mjög mis­jafna dóma, flesta nei­kvæða. List­gagn­rýnendur dönsku blað­anna sögðu stytt­una gam­al­dags og bentu á að ekki sé bein­línis skortur á styttum af hinum athafna­sama kóngi, þær séu fjöl­margar um allt land. Menn­ing­ar­rit­stjóri Berl­ingske sagði stytt­una tíma­skekkju og nær hefði verið að beina sjónum að konum og nefndi margar konur sem mótað hefðu danska sögu með marg­vís­legum hætti. Til dæmis Ninu Bang, fyrsta kven­ráð­herra í sögu Dan­merkur, rit­höf­undana Karen Blixen, Inger Christiansen og Tove Dit­lev­sen. Margréti I, stofn­anda Kal­mar­sam­bands­ins og valda­mestu konu Evrópu á sinni tíð. Stytta af henni er í Hró­arskeldu en engin í höf­uð­staðnum. Nielsine Nielsen sem var fyrsta konan í sögu Dan­merkur til að stunda háskóla­nám (lækn­is­fræði) ætti líka skilið styttu, sagði menn­ing­ar­rit­stjóri Berl­ingske. Loks nefndi rit­stjór­inn Louise Christine Rasmus­sen, sú kona er betur þekkt undir öðru nafni.

Ballerína og móðir

Louise Christine Rasmus­sen fædd­ist í Kaup­manna­höfn 21. apríl 1815. Hún var eina barn móður sinnar, Juliane Rasmus­sen, sem var fátæk ógift þjón­ustu­stúlka og eign­að­ist dótt­ur­ina með vinnu­veit­anda sínum, sem sagði henni upp starf­inu þegar hún til­kynnti honum um þung­un­ina. Juliane sá, um nokk­urra ára skeið, fyrir sér og dótt­ur­inni með sauma­skap og þvottum en gift­ist svo dyra­verði við Kon­ung­lega leik­húsið. Árið 1826, þá ell­efu ára gömul, hóf Louise Christine nám við Ball­ett­skóla Kon­ung­lega leik­húss­ins, fékk nema­laun frá árinu 1830 og ráðin sem dans­ari 1835. Árið 1841 hætti hún að eigin ósk í ball­ett­flokknum, ástæðan var sú að hún hafði eign­ast son. Honum var korn­ungum komið í fóstur. Faðir drengs­ins var Carl Berling, erf­ingi og síðar for­stjóri Berl­ingske Tidende (í dag Berl­ingske). For­eldrar Carls aftóku með öllu að son­ur­inn kvænt­ist þess­ari ball­er­ínu og þar við sat.

Gína sem snerist

Louise Christine sneri algjör­lega baki við ball­ett­inum en stofn­aði árið 1844 tísku­vöru­verslun við Vimmelskaftet (nú hluti Striks­ins). Nýlunda þótti að í glugga versl­un­ar­innar mátti sjá vaxgínu klædda eftir nýj­ustu tísku. Og ekki nóg með það, gínan sner­ist í hringi í glugg­anum. Slík undur og stór­merki höfðu Kaup­manna­hafn­ar­búar aldrei séð og hóp­uð­ust að glugg­anum á hverjum degi. Brátt tóku aðrir kaup­menn upp þetta „trikk“. Þótt í dag telj­ist það ekki til tíð­inda að kona opni verslun var það öðru­vísi um miðja nítj­ándu öld.

Krónprinsinn

Á árunum sem Louise Christine starf­aði sem ball­ett­dans­ari kynnt­ist hún Friðriki krón­prins, sem síðar varð Friðrik VII. Krón­prins­inn og Carl Berling, barns­faðir Louise Christine voru miklir mátar og hélst sú vin­átta alla tíð. Friðrik var fæddur 1808 og sem ungur maður hafði hann meiri áhuga á að skemmta sér en að und­ir­búa sig undir ævi­starfið sem kóngur. Árið 1828 gift­ist hann Vil­helm­ínu Maríu prinsessu en þau skildu, barn­laus, níu árum síðar. Faðir Friðriks, Kristján, síðar Kristján VIII, hafði miklar áhyggjur af syn­inum og lagði áherslu á að hann festi ráð sitt. Friðrik gift­ist Marianne af Mecklenburg- Strelitz árið 1841, en það hjóna­band var ekki gæfu­ríkt og hjónin skildu, barn­laus, árið 1846. Friðrik varð kóngur árið 1848, Friðrik VII. Hann hafði litla reynslu af stjórn­málum og ýmsir höfðu efa­semdir um hann sem kon­ung. Hann varð hins­vegar vin­sæll meðal þegna sinna og hefur einkum verið minnst fyrir að að afsala sér ein­veld­inu og gefa Dönum stjórn­ar­skrána, Grund­loven.

Grevinde Danner

Eins og áður var nefnt kynnt­ust Louise Christine og Friðrik gegnum Carl Berling, barns­föður Louise. Þótt Friðrik væri tví­giftur og orð­inn kóngur hafði hann ekki gleymt Louise. Þau voru pússuð saman í hall­ar­kirkj­unni á Frederiks­borg 7. ágúst 1850. Þetta var gift­ing upp á vinstri hönd, sem þýddi að myndu hjónin eign­ast barn ætti það ekki til­kall til krún­unnar. Ástæðan var að Louise var ekki af aðal­sættum. Margir af emb­ætt­is­mönnum kon­ungs fundu því allt til for­áttu að kóng­ur­inn ætl­aði að kvæn­ast konu af lágum ættum, eins og það var kallað. En kóngur sat við sinn keip.

Sama dag og hjóna­vígslan fór fram fékk Louise Christine með sér­stakri til­skipun kon­ungs tit­il­inn Lens­grevinde af Danner, ætíð kölluð Grevinde Danner. Andúð emb­ætt­is­manna fór ekki fram­hjá kóng­inum og hjónin brugðu á það ráð að flytja til Jæger­spris á Norður-Sjálandi, þar var höll sem kóng­ur­inn keypti af danska rík­inu. Þar bjuggu þau að mestu leyti til árs­ins 1863, en þá lést Friðrik.

Grevinde Danner gaf höll­ina og landið sem fylgdi með því skil­yrði að höllin og svæðið yrðu notuð í þágu fátækra stúlkna. Hún flutti skömmu síðar til Lálands og síðar til Kaup­manna­hafnar. Hún lést 6. mars 1874.

Gleymdi ekki upprunanum

Grevinde Danner erfði mikið fé eftir mann sinn. Hún gleymdi hins vegar ekki upp­runa sínum og ákvað að verja auð­ævum sínum í þágu fátækra stúlkna og kvenna. Í því skyni setti hún á fót sér­staka stofnun, kennda við mann sinn, Friðrik VII. Grevinde Danner lét teikna og byggja stórt og veg­legt hús skammt frá mið­borg Kaup­manna­hafnar. Húsið yrði athvarf fátækra kvenna, gert var ráð fyrir 52 litlum íbúðum. Grevinde Danner auðn­að­ist ekki að sjá húsið full­gert, húsið var tekið í notkun 1875, ári eftir að hún lést.

Saga þessa merka húss sem enn stendur, ætíð nefnt Dann­er­húsið, verður ekki rakin hér en á tíma­bili stóð húsið autt og til stóð að það yrði rifið. Með sam­stilltu átaki hund­raða kvenna tókst að koma í veg fyrir það. Í dag er þar neyð­ar­at­hvarf kvenna, ásamt ýmis­konar starf­semi.

Vilja heiðra minningu Grevinde Danner með styttu

Fyrir nokkru kvikn­aði sú hug­mynd í hópi kvenna að reisa styttu til heið­urs Grevinde Danner í Kaup­manna­höfn. Meðal þeirra sem voru í þessum hópi var lista­konan Kirsten Justesen. Hún hefur þegar lagt drög að gerð stytt­unnar sem gert er ráð fyrir að standi við vötnin (Sankt Jørgens Sø) skammt frá Dann­er­hús­inu. Styttan sjálf á að vera sex metra há, úr bronsi. Stöp­ull­inn, sömu­leiðis úr bronsi, verði bekkur þar sem hægt verði að tylla sér. Í hægri hendi heldur Grevinde Danner á skjali, það á að tákna stjórn­ar­skrána, Grund­loven, og þátt hennar í að afnema ein­veldið.

End­an­legt leyfi borg­ar­yf­ir­valda í Kaup­manna­höfn fyrir upp­setn­ingu stytt­unnar liggur ekki fyrir en borg­ar­full­trúar hafa lýst ánægju með hug­mynd­ina. Gert er ráð fyrir að „styttu­málið“ verði afgreitt í Borg­ar­stjórn Kaup­manna­hafnar 22. apríl. Verði málið sam­þykkt þar verður haf­ist handa við að afla fjár til verks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár