Telur að menningararfur kristni eigi að vera grundvöllur kennslu á öðrum trúarbrögðum

Bisk­ups­stofa telur að frum­varp þing­manna um að hefja krist­in­fræði­kennslu í grunn­skólum að nýju vera vitn­is­burð um nauð­syn „nálgun og þekk­ing á okkar sam­eig­in­legu kristnu rótum sé ennþá mik­il­væg­ari nú en nokkru sinni fyrr.“

Agnes M. Sigurðardóttir er biskup Íslands.
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir er biskup Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bisk­ups­stofa telur að fram­lagn­ing frum­varps um að auka veg krist­in­fræði í grunn­skólum lands­ins sé „ekki vitn­is­burður um ein­hvers­konar kröfu um aft­ur­hvarf til for­tíðar, heldur þvert á móti vitn­is­burður um þá nauð­syn að auð­mjúk nálgun og þekk­ing á okkar sam­eig­in­legu kristnu rótum sé ennþá mik­il­væg­ari nú en nokkru sinni fyrr.“

Þetta kemur fram í umsögn sem Bisk­ups­stofa hefur skilað inn til alls­herjar- og mennta­mála­nefndar um frum­varpið.

Þar segir Bisk­ups­stofa að með breyt­ingum á grunn­skóla­lögum í gegnum árin hafi hug­takið krist­in­fræði fengið að víkja fyrir hug­tak­inu trú­ar­bragða­fræði. Það sé fagn­að­ar­efni að trú­ar­bragða­fræði sé gert hátt undir höfði en Bisk­ups­stofa spyr hvort það þurfi að vera á kostnað krist­in­fræði. „Á sama máta og íslenska tungan er grund­vallandi í kennslu og miðlun í grunn­skólum lands­ins, ætti hinn kristni menn­ing­ar­arfur og iðkun að vera grund­vallandi fyrir kennslu og skiln­ing okkar á öðrum trú­ar­brögðum, vegna áhrifa hennar í sögu og menn­ingu lands­ins. Góður skiln­ingur á þeim kristna jarð­vegi sem sam­fé­lag okkar bygg­ist á, skiptir sköpum fyrir skiln­ing okkar á öðrum trú­ar­brögðum og merk­ingu þeirra fyrir mann og heim. Slíkt er grund­vallandi fyrir aukið menn­ing­ar­læsi.“

Vilja brjóta niður múra milli menningarheilda

Umrætt frum­varp var lagt fram af öllum þing­mönnum Mið­flokks­ins, ásamt Sjálf­­stæð­is­­mönn­unum Brynj­­ari Níels­­syni og Ásmundi Frið­­riks­­syni. Fyrsti flutn­ings­maður þess er Birgir Þór­ar­ins­son og var því útbýtt 9. októ­ber í fyrra. Birgir mælti svo fyrir því 18. febr­úar síð­ast­lið­inn og málið er nú til með­ferðar hjá alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd.

Verði frum­varpið að lögum yrði kennslan eins og var fyrir gild­is­­töku grunn­­skóla­laga frá árinu 2008, sem felldu hana nið­­ur. Þing­­menn­irnir vilja að heiti náms­­grein­­ar­innar trú­­ar­bragða­fræði verði breytt í krist­in­fræði og trú­­ar­bragða­fræði og telja að nám á því sviði sé mik­il­vægt til skiln­ings, umburð­­ar­­lyndis og víð­­sýni. „Nem­endur verða að vera búnir undir að lifa í fjöl­breyttu lýð­ræð­is­­legu sam­­fé­lagi og takast á við marg­vís­­leg úrlausn­­ar­efni sem þeirra bíða í breyttum heim­i,“ segir í grein­­ar­­gerð sem fylgir frum­varp­in­u.

Á meðal þeirra raka sem þing­­menn­irnir nota til að rök­­styðja þörf­ina fyrir aukna áherslu á krist­in­fræð­i­­kennslu í skólum er að hér á landi fari inn­­flytj­endum sem komi frá ólíkum menn­ing­­ar­heimum fjölg­andi. Það auki að mati þing­­mann­anna kröfur um umburð­­ar­­lyndi og gagn­­kvæma virð­ingu. „Með vax­andi fjölgun íslenskra rík­­is­­borg­­ara sem eru af erlendu bergi brotnir eykst nauð­­syn þess að brjóta niður múra á milli menn­ing­­ar­heilda og trú­­ar­hópa og auka þar með umburð­­ar­­lyndi. Slíkt er best gert með sér­­stakri fræðslu um ríkj­andi trú lands­ins, kristni, og almennri fræðslu um trú­­ar­brögð heims­ins og þar með menn­ingu og siði þjóða og þjóð­­ar­brota. Til að slík fræðsla verði að gagni og nái að stuðla að alhliða þroska nem­enda og virkri þátt­­töku þeirra í lýð­ræð­is­­þjóð­­fé­lagi þarf hún að ná til allra.”

Reykjavíkurborg leggst alfarið á móti frumvarpinu

Reykja­vík­ur­borg, stærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins, skil­aði umsögn um málið í byrjun mars. Þar voru gerðar marg­hátt­aðar athuga­semdir við frum­varpið.

[adspot]Þar segir meðal ann­ars að mik­il­vægt sé að „fjalla almennt um trú­ar­brögð og lífs­skoð­anir án þess að kennslan gefi einni trú eða ákveðnum lífs­skoð­unum meira vægi en öðrum trú­ar­brögðum eða lífs­skoð­un­um. Slík nálgun getur ýtt undir þröng­sýni og for­dóma. Með því að leggja sér­staka áherslu á fræðslu um kristna trú er óbeint verið að senda nem­endum og kenn­urum þau skila­boð að kristni sé mik­il­væg­ari eða á ein­hvern hátt betri en önnur trú­ar­brögð eða aðrar lífs­skoð­an­ir. Í frum­varpi þessu felst því gíf­ur­leg mót­sögn, enda frá­leitt að halda því fram að nem­endur öðlist aukið umburð­ar­lyndi og virð­ingu fyrir öðrum með „sér­stakri fræðslu um ríkj­andi trú lands­ins, kristn­i“, umfram önnur trú­ar­brögð eða lífs­skoð­an­ir. Reykja­vík­ur­borg er því alfarið á móti þeirri nálgun að heiti náms­grein­ar­innar trú­ar­bragða­fræði verði breytt í krist­in­fræði og trú­ar­bragða­fræði og telur þá aðferð ekki til þess fallna að styðja við víð­sýni og efla mann­skiln­ing.“

Í umsögn­inni, sem skrifuð er af lög­fræð­ingi á Mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borg­ar, segir að borgin telji mik­il­vægt að kennsla um trú­ar­brögð fari fram á hlut­lausan hátt og að náms­greinin taki mið af þeirri þróun sem orðið hefur í sam­fé­lag­inu. „Námið þarf að þjóna fjöl­menn­ing­ar­legu sam­fé­lagi og kenna nem­endum að bera virð­ingu fyrir fólki óháð trú, trú­leysi eða öðrum skoð­un­um. Mark­mið kennsl­unnar þarf að vera að auka skiln­ing nem­enda á ólíkum hefðum og lífs­gildum og hvetja til for­dóma­lausra umræðna sem ein­kenn­ast af umburð­ar­lyndi og virð­ingu. Þessum mark­miðum verður aðeins náð með kennslu sem tekur jafnt til­lit til ólíkra trú­ar­bragða og trú­leys­is.“

Í sam­an­tekt umsagn­ar­innar segir að Reykja­vík­ur­borg telji að hlut­lægni verði að ein­kenna alla kennslu um trú­ar­brögð og lífs­skoð­anir í grunn­skólum ef nem­endur eiga að öðl­ast umburð­ar­lyndi og gagn­kvæma virð­ingu fyrir skoð­unum ann­ara. Að öðrum kosti getur kennsla um trú­ar­brögð orðið þess vald­andi að ýta undir þröng­sýni og for­dóma. „Reykja­vík­ur­borg leggst því alfarið gegn þeim breyt­ingum sem lagðar eru til með frum­varpi þessu.“

Telja að krist­in­fræði fái minna vægi en önnur trú­­ar­brögð

Krist­in­fræði hefur ekki verið til sem sér­­stakt fag í grunn­­skólum lands­ins frá árinu 2008. Tölu­verðar breyt­ingar voru svo gerðar á almenna hluta aðal­­­námskrár grunn­­skóla 2011. Þá var Katrín Jak­obs­dóttir mennta­­mála­ráð­herra en hún er í dag for­­sæt­is­ráð­herra.

[adspot]Í breyt­ing­unum fólst meðal ann­­ars að trú­­ar­bragða­fræði er ein af níu náms­­greinum sem falla undir það sem er skil­­greint sem sam­­fé­lags­­grein­­ar. Kenn­­arar frá frelsi til þess að skipta þeim tíma sem gefin er á milli þeirra greina.

Flutn­ings­­menn frum­varps­ins segj­­ast hafa rætt við fólk við vinnslu þess sem segi að sá tími sé og naumt skammt­að­­ur. „Ekk­ert opin­bert sam­ræmi er milli skóla lands­ins um hversu mik­inn tíma þeir nýta í hvert fag innan sam­­fé­lags­fræð­inn­­ar. Kom það fram af hálfu við­­mæl­enda að dæmi eru þess að krist­in­fræði fái minna vægi í trú­­ar­bragða­fræði heldur en önnur trú­­ar­brögð.“

Frumvarpið virðist snúast um heiti á kennslustundum

Samtökin Vantrú hafa einnig skilað inn umsögn um frum­varpið. Í henni segir að öll þau mark­mið sem ná eigi fram í frum­varp­inu sé nú þegar að finna í aðal­námskrá grunn­skóla. „Bæði hvað varðar umburð­ar­lyndi, gagn­kvæman skiln­ing, sið­ferði og sið­fræði en líka hvað varðar þekk­ingu á krist­inni trú. Það er í raun erfitt að sjá nákvæm­lega hvaða breyt­ingar á efn­is­legu inni­haldi aðal­námskrár verið er að leggja til. Frum­varpið og grein­ar­gerðin virð­ast fyrst og fremst snú­ast um ann­ars vegar heiti á kennslu­stundum og hins vegar tíma sem varið er í krist­in­fræði, en hvor­ugt ætti í raun að vera hlut­verk alþingis að ákveða.“

Vantrú leggst gegn frum­varp­inu, telur það illa rök­stutt og að það feli í sér yfir­grips­miklar breyt­ingar á skóla­starfi án þess að hægt sé að sjá neinn ágóða af því umfram þann sem nú þegar lagður er fram í núgild­andi aðal­námskrá.

For­­senda skiln­ings á vest­rænu sam­­fé­lagi

Mið­­flokks­­menn­irn­ir, og Sjálf­­stæð­is­­menn­irnir tveir, telja að áhersla á kristna trú umfram önnur trú­­ar­brögð sé nauð­­syn­­leg vegna þess að menn­ing Íslands teng­ist sögu henn­­ar.

[links]Í grein­­ar­­gerð­inni segir að eðli­­legt hljóti að telj­­ast að fjallað sé ítar­­leg­­ast um þau trú­­ar­brögð sem ríkj­andi séu í sam­­fé­lag­inu. „Þekk­ing á kristni og Bibl­í­unni er for­­senda skiln­ings á vest­rænni menn­ingu og sam­­fé­lagi. Þekk­ing á eigin trú er for­­senda til skiln­ings á trú ann­­arra og leið til umburð­­ar­­lynd­­is. Skól­­anum er ætlað að miðla grund­vall­­ar­­gildum þjóð­­fé­lags­ins, sem hér á landi eru byggð á kristnum rót­­um. Fræðsla í kristnum fræð­um, sið­fræði og trú­­ar­bragða­fræði miðlar nem­endum þekk­ingu á eigin rót­u­m.“

Þing­­menn­irnir telja að kennslan muni hjálpi nem­endum að setja krist­in­fræð­i­­námið í stærra þekk­ing­­ar­­legt sam­hengi. Þeir muni þannig öðl­­ast sið­fræð­i­­legan, sið­­ferð­i­­legan og félags­­­legan þroska. „Öðlist getu til að skilja við­horf trú­­ar­bragða gagn­vart ein­stak­l­ingi, sam­­fé­lagi og umhverfi. Læri að bera virð­ingu fyrir fólki af annarri menn­ingu og trú. Geti tekið upp­­lýstar ákvarð­­anir og rök­­stutt þær.“

Flutn­ings­menn­irnir segja að tengja þurfi kennsl­una við sam­­fé­lag­ið, menn­ing­una og nútím­ann. „Fræða þarf um góðar og slæmar afleið­ingar trú­­ar­bragða á víðum grund­velli. Nem­endur læri að bera virð­ingu fyrir trú og skoð­unum ann­­arra. Lögð verði áhersla á að hlut­verk kenn­­ara felist í fræðslu en ekki trú­­boði. Mik­il­vægt er að nem­endur fræð­ist um þá trú sem mótað hefur sam­­fé­lagið óháð kirkju­­sókn. Kirkju­­sókn eða sveiflur í henni frá einum tíma til ann­­ars haggar ekki menn­ing­­ar­­arfi þjóð­­ar­inn­­ar. Ver­ald­­ar­væð­ing og einka­­trú ætti ekki að hafa áhrif á það hvað við lærum um sögu okkar og sam­­fé­lag.“

Fækkað í þjóð­­kirkj­unni

Þeim lands­­mönnum sem eru í þjóð­­kirkj­unni hefur fækkað hratt síð­­ast­liðin mis­s­eri. Í byrjun árs 2009 náði fjöldi þeirra met­­­­tölu, en þá voru 253.069 lands­­­­menn í henni. Frá þeim tíma hefur þeim fækkað jafnt og þétt og eru nú 229.653. Hlut­­fall íbúa lands­ins sem er skráð í þjóð­­kirkj­una var 62,2 pró­­sent í byrjun febr­úar síð­ast­lið­ins­.

Það þýðir að fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­­­­kirkj­una hefur dreg­ist saman um 23.416 frá árs­­­­byrjun 2009. Það eru fleiri en allir núver­andi íbúar Garða­bæjar og Sel­tjarn­­ar­­ness sam­an­lagt.

Íbúar lands­ins voru 368.590 um síð­ustu ára­mót. Íbúum lands­ins hefur fjölgað um 49.222 frá byrjun árs 2009. Frá þeim tíma, á rúmum tólf árum, hafa því 72.638 íbúar lands­ins valið að ganga úr, eða ekki í, þjóð­kirkj­una.

Sam­kvæmt könnun sem Mask­ína gerði fyrir Sið­mennt í byrjun árs 2020 eru rúm­lega 54 pró­sent lands­manna hlynnt aðskiln­aði ríkis og kirkju og 25,7 pró­sent í með­al­lagi hlynnt hon­um. Rúm­lega 20 pró­sent eru and­víg aðskiln­að­i.

Í könn­un­inni var einnig spurt hvort að fólk teldi sig eiga sam­­leið með þjóð­­kirkj­unni. Alls sögð­ust 48,7 pró­­sent að þeir ættu litla eða enga sam­­leið með henni en 25,7 pró­­sent sögðu að þeir ættu nokkra sam­­leið. Alls sögðu 25,5 pró­­sent aðspurðra að sú sam­­leið væri fremur eða mjög mik­il.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár