Þörf fyrir kristinfræðikennslu í skólum meðal annars rökstudd með fjölgun innflytjenda

Þing­flokkur Mið­flokks­ins, ásamt tveimur þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks, vilja að krist­in­fræði verði aftur kennd í skólum. Þeir telja að þekk­ing á kristni sé „for­senda skiln­ings á vest­rænni menn­ingu og sam­fé­lagi“.

Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, er fyrsti flutningsmaður málsins.
Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, er fyrsti flutn­ings­maður máls­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Allir þing­menn Mið­flokks­ins hafa, ásamt Sjálf­stæð­is­mönn­unum Brynjari Níels­syni og Ásmundi Frið­riks­syni, lagt fram frum­varp um að auka veg krist­in­fræði­kennslu í grunn­skólum lands­ins.

Verði frum­varpið að lögum yrði kennslan eins og var fyrir gild­is­töku grunn­skóla­laga frá árinu 2008, sem felldu hana niður. Þing­menn­irnir vilja að heiti náms­grein­ar­innar trú­ar­bragða­fræði verði breytt í krist­in­fræði og trú­ar­bragða­fræði og telja að nám á því sviði sé mik­il­vægt til skiln­ings, umburð­ar­lyndis og víð­sýni. „Nemendur verða að vera búnir undir að lifa í fjöl­breyttu lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi og takast á við marg­vís­leg úrlausn­ar­efni sem þeirra bíða í breyttum heimi,“ segir í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­inu.

Á meðal þeirra raka sem þing­menn­irnir nota til að rök­styðja þörf­ina fyrir aukna áherslu á krist­in­fræði­kennslu í skólum er að hér á landi fari inn­flytj­endum sem komi frá ólíkum menn­ing­ar­heimum fjölg­andi. Það auki að mati þing­mann­anna kröfur um umburð­ar­lyndi og gagn­kvæma virð­ingu. „Með vax­andi fjölgun íslenskra rík­is­borg­ara sem eru af erlendu bergi brotnir eykst nauð­syn þess að brjóta niður múra á milli menn­ing­ar­heilda og trú­ar­hópa og auka þar með umburð­ar­lyndi. Slíkt er best gert með sér­stakri fræðslu um ríkj­andi trú lands­ins, kristni, og almennri fræðslu um trú­ar­brögð heims­ins og þar með menn­ingu og siði þjóða og þjóð­ar­brota. Til að slík fræðsla verði að gagni og nái að stuðla að alhliða þroska nem­enda og virkri þátt­töku þeirra í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi þarf hún að ná til allra.”

Telja að kristinfræði fái minna vægi en önnur trúarbrögð

Krist­in­fræði hefur ekki verið til sem sér­stakt fag í grunn­skólum lands­ins frá árinu 2008. Tölu­verðar breyt­ingar voru svo gerðar á almenna hluta aðal­námskrár grunn­skóla 2011. Þá var Katrín Jak­obs­dóttir mennta­mála­ráð­herra en hún er í dag for­sæt­is­ráð­herra.

[adspot]Í breyt­ing­unum fólst meðal ann­ars að trú­ar­bragða­fræði er ein af níu náms­greinum sem falla undir það sem er skil­greint sem sam­fé­lags­greinar. Kennarar frá frelsi til þess að skipta þeim tíma sem gefin er á milli þeirra greina.

Flutn­ings­menn frum­varps­ins segj­ast hafa rætt við fólk við vinnslu þess sem segi að sá tími sé og naumt skammt­aður. „ Ekkert opin­bert sam­ræmi er milli skóla lands­ins um hversu mik­inn tíma þeir nýta í hvert fag innan sam­fé­lags­fræð­innar. Kom það fram af hálfu við­mæl­enda að dæmi eru þess að krist­in­fræði fái minna vægi í trú­ar­bragða­fræði heldur en önnur trú­ar­brögð.“

Forsenda skilnings á vestrænu samfélagi

Mið­flokks­menn­irnir, og Sjálf­stæð­is­menn­irnir tveir, telja að áhersla á kristna trú umfram önnur trú­ar­brögð sé nauð­syn­leg vegna þess að menn­ing Íslands teng­ist sögu hennar.

Í grein­ar­gerð­inni segir að eðli­legt hljóti að telj­ast að fjallað sé ítar­leg­ast um þau trú­ar­brögð sem ríkj­andi séu í sam­fé­lag­inu. „Þekking á kristni og Bibl­í­unni er for­senda skiln­ings á vest­rænni menn­ingu og sam­fé­lagi. Þekking á eigin trú er for­senda til skiln­ings á trú ann­arra og leið til umburð­ar­lyndis. Skólanum er ætlað að miðla grund­vall­ar­gildum þjóð­fé­lags­ins, sem hér á landi eru byggð á kristnum rótum. Fræðsla í kristnum fræðum, sið­fræði og trú­ar­bragða­fræði miðlar nem­endum þekk­ingu á eigin rótum.“

Þing­menn­irnir telja að kennslan muni hjálpi nem­endum að setja krist­in­fræði­námið í stærra þekk­ing­ar­legt sam­hengi. Þeir muni þannig öðl­ast sið­fræði­legan, sið­ferði­legan og félags­legan þroska. „Öðlist getu til að skilja við­horf trú­ar­bragða gagn­vart ein­stak­lingi, sam­fé­lagi og umhverfi. Læri að bera virð­ingu fyrir fólki af annarri menn­ingu og trú. Geti tekið upp­lýstar ákvarð­anir og rök­stutt þær.“

Flutn­ings­menn­irnir segja að tengja þurfi kennsl­una við sam­fé­lagið, menn­ing­una og nútím­ann. „Fræða þarf um góðar og slæmar afleið­ingar trú­ar­bragða á víðum grund­velli. Nemendur læri að bera virð­ingu fyrir trú og skoð­unum ann­arra. Lögð verði áhersla á að hlut­verk kenn­ara felist í fræðslu en ekki trú­boði. Mik­il­vægt er að nem­endur fræð­ist um þá trú sem mótað hefur sam­fé­lagið óháð kirkju­sókn. Kirkju­sókn eða sveiflur í henni frá einum tíma til ann­ars haggar ekki menn­ing­ar­arfi þjóð­ar­innar. Ver­ald­ar­væð­ing og einka­trú ætti ekki að hafa áhrif á það hvað við lærum um sögu okkar og sam­fé­lag.“

Fækkað í þjóðkirkjunni

Þeim lands­mönnum sem eru í þjóð­kirkj­unni hefur fækkað hratt síð­ast­liðin miss­eri. Í byrjun árs 2009 náði fjöldi þeirra met­­tölu, en þá voru 253.069 lands­­menn í henni. Frá þeim tíma hefur þeim fækkað jafnt og þétt og eru nú 230.146. Hlutfall íbúa lands­ins sem er skráð í þjóð­kirkj­una var 62,5 pró­sent um síð­ast­lið­inn mán­aða­mót.

[links]Það þýðir að fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­­kirkj­una hefur dreg­ist saman um 22.923 frá árs­­byrjun 2009. Það eru fleiri en allir núver­andi íbúar Garða­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness sam­an­lagt.

368.382 manns sem búa hér­lendis nú um stundir. Íbúum lands­ins hefur fjölgað um 49.014 frá byrjun árs 2009. Frá þeim tíma, á tæpum tólf árum, hafa því 71.937 íbúar lands­ins valið að ganga úr, eða ekki í, þjóð­kirkj­una.

Sam­­kvæmt Þjóð­­ar­púlsi Gallup sem var birtur fyrir í byrjun nóv­em­ber í fyrra er meiri­hluti Íslend­inga hlynntur aðskiln­aði ríkis og kirkju, eða rúm­­­lega 55 pró­­­sent, en það er svipað hlut­­­fall og und­an­farin ár. Ríf­­­lega fimmt­ungur er hvorki hlynntur né and­vígur aðskiln­aði ríkis og kirkju, og tæp­­­lega fjórð­ungur er and­víg­­­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár