Meirihluti hlynntur aðskilnaði og fjórðungur segist eiga mikla samleið með þjóðkirkjunni

Könnun sem fram­kvæmd var fyrr á þessu ári sýnir að yfir 54 pró­sent lands­manna er hlynnt aðskiln­aði ríkis og kirkju en um fimmt­ungur þeirra er and­vígur honum. Tæpur helm­ingur er á móti kristi­legum trú­arat­höfnum, bænum eða guðs­orði í leik- og grunn­skólum.

Í stjórn­­­ar­­skrá Íslands segir að hin evang­el­íska lút­­erska kirkja skuli vera þjóð­­kirkja á Íslandi og að rík­­is­­valdið eigi bæði að styðja hana og vernda.
Í stjórn­­­ar­­skrá Íslands segir að hin evang­el­íska lút­­erska kirkja skuli vera þjóð­­kirkja á Íslandi og að rík­­is­­valdið eigi bæði að styðja hana og vernda. Mynd: Bára Huld Beck

Rúmlega 54 pró­sent lands­manna eru fremur eða mjög hlynnt aðskiln­aði ríkis og kirkju og 25,7 pró­sent þeirra segj­ast vera í með­al­lagi hlynnt honum. Rúmlega 20 pró­sent segj­ast vera fremur eða mjög and­víg aðskiln­aði.

Þetta eru nið­ur­stöður í könnun sem Maskína gerði fyrir Siðmennt í byrjun árs. Þær hafa ekki verið birtar fyrr en nú.

Í könn­un­inni var einnig spurt hvort að fólk teldi sig eiga sam­leið með þjóð­kirkj­unni. Alls sögð­ust 48,7 pró­sent að þeir ættu litla eða enga sam­leið með henni en 25,7 pró­sent sögðu að þeir ættu nokkra sam­leið. Alls sögðu 25,5 pró­sent aðspurðra að sú sam­leið væri fremur eða mjög mikil.

Könnunin fór fram dag­anna 16. til 22. jan­úar 2020. Svar­endur voru alls staðar að á land­inu, 18 ára og eldri. Alls svör­uðu 954 könn­un­inni.

Þeim lands­mönnum sem eru í þjóð­kirkj­unni hefur fækkað hratt síð­ast­liðin miss­eri. Í byrjun árs 2009 náði fjöldi þeirra met­­­tölu, en þá voru 253.069 lands­­­menn í henni. Frá þeim tíma hefur þeim fækkað jafnt og þétt og eru nú 230.146. Hlut­fall íbúa lands­ins sem er skráð í þjóð­kirkj­una var 62,5 pró­sent um ­síð­ast­lið­inn ­mán­aða­mót.

Það þýðir að fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­­­kirkj­una hefur dreg­ist saman um 22.923 frá árs­­­byrjun 2009. Það eru fleiri en allir núver­andi íbúar Garða­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness sam­an­lagt.

[adspot]368.382 manns sem búa hér­lendis nú um stund­ir. Íbúum lands­ins hefur fjölgað um 49.014 frá byrjun árs 2009. Frá þeim tíma, á tæpum tólf árum, hafa því 71.937 íbúar lands­ins valið að ganga úr, eða ekki í, þjóð­kirkj­una.

Breytt orðræða á síðasta ári

Aðskiln­aður ríkis og kirkju hafi kom­ist ræki­lega á dag­skrá á síð­asta ári. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra sagði í byrjun nóv­em­ber 2019 að óhjá­kvæmi­legt væri að stefna í átt að fullum aðskiln­aði ríkis og kirkju.

Í grein sem hún skrif­aði í Morg­un­blaðið sagði hún að nýtt sam­komu­lag, sem und­ir­­ritað var í sept­­em­ber í fyrra, milli ríkis og þjóð­­kirkj­unnar feli í sér að hún verði ekki lengur eins og hver önnur rík­­is­­stofn­un. „Hún mun fremur líkj­­ast frjálsu trú­­fé­lagi sem ber ábyrgð á eigin rekstri og fjár­­hag. Þessar breyt­ingar eru til mik­illa bóta og óhjá­­kvæmi­­legt að stefna áfram á sömu braut í átt að fullum aðskiln­aði. Þangað til og þrátt fyrir sam­komu­lagið mun þjóð­­kirkjan áfram njóta stuðn­­ings og verndar íslenska rík­­is­ins á grund­velli ákvæðis stjórn­­­ar­­skrár­inn­­ar.“

Áslaug Arna sagði í grein­inni að sjálf­­stæð kirkja óháð rík­­is­­vald­inu sam­­rým­ist betur trú­frelsi og skoð­ana­frelsi en sér­­­staðan sem þjóð­­kirkjan hefur notið í íslenskri stjórn­­­skip­­an. „Í mínum huga er ekki spurn­ing um það að kirkjan getur vel sinnt öllum verk­efnum sínum og þar á meðal sálu­hjálp og marg­vís­­legri félags­­­legri þjón­­ustu óháð rík­­inu. Ég er einnig þeirrar skoð­unar að margir muni fylgja kirkj­unni að málum þótt full­kom­inn aðskiln­aður verði á end­­anum á milli hennar og rík­­is­­valds­ins.“

Þremur dögum síðar sagði hún í við­tali við RÚV að aukið ákall væri um það í sam­­fé­lag­inu, að sjálf­­stæði trú­­fé­laga og líf­­skoð­un­­ar­­fé­laga sé algjört. Hún sagði vinnu til að svara þessu ákalli væri þegar komin af stað. Mark­mið þeirrar vinnu væri að skilja að ríki og kirkju.

Til stendur að leggja fram nýtt frum­varp til laga um stöðu, stjórn og starfs­hætti þjóð­kirkj­unnar í des­em­ber á þessu ári, sam­kvæmt þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar. Frum­varpið felur í sér heild­ar­end­ur­skoðun laga um stöðu, stjórn og starfs­hætti þjóð­kirkj­unnar en með því er stefnt að því að setja ný þjóð­kirkju­lög. Það er liður í því að upp­fylla við­bót­ar­samn­ing­inn milli íslenska rík­is­ins og þjóð­kirkj­unnar frá 6. sept­em­ber 2019 en þar var meðal ann­ars stefnt að ein­földun reglu­­verks um þjóð­kirkj­una.

Þingmenn víða að leggja fram frumvarp um aðskilnað 2034

Meiri­hluti hefur virst vera fyrir því á Alþingi að setja aðskilnað kyrfi­lega á dag­skrá. Fyrir síð­asta þing­i lá þings­á­­lykt­un­­ar­til­laga þing­­manna stjórn­­­ar­and­­stöðu­flokk­anna Við­reisn­ar, Sam­fylk­ingar og Pírata auk þing­­manns Vinstri grænna og eins utan flokka, þar sem lagður var til fullur, laga­legur og fjár­hags­legur aðskiln­aður ríkis og kirkju með fram­lagn­ingu nokk­urra frum­varpa.

Hún komst ekki á dag­skrá en var lögð fram að nýju á mánu­dag, 12. októ­ber. Nú er þó eng­inn úr þing­flokki Vinstri grænna á henni.

[adspot]Sam­kvæmt til­­lög­unni á að leggja frum­vörpin fram í síð­­asta lagi á vor­­þingi 2022. Þau eiga að kveða á um að fullur aðskiln­aður verði milli ríkis og kirkju í síð­­asta lagi í árs­­lok 2034.

Í umsögn um málið, eftir að það var fyrst lagt fram, hefur Biskup Íslands, Agnes Sig­­urð­­ar­dótt­ir, sagt að það sé ekk­ert for­­gangs­­mál að kirkjan sé hluti af rík­­is­­vald­inu. „Að við­halda tengslum kirkj­unnar við rík­­­is­­­valdið er í sjálfu sér ekki for­­­gangs­­­mál kirkj­unn­­­ar. Skyldur kirkj­unnar liggja fyrst og fremst í því að rækta og við­halda tengsl­unum við þjóð­ina.“

Fleiri ósammála því að kristilegt efni eigi erindi við skóla

Í könnun Maskínu voru þátt­tak­endur einnig spurðir hvort þeir væru sam­mála eða ósam­mála því að kristi­legar trú­arat­hafnir, bænir eða guðs­orð ættu að vera liður í starfi opin­berra leik­skóla eða grunn­skóla. Alls sögð­ust 41,6 pró­sent aðspurðra að þeir væru ósam­mála, tæp­lega 23 pró­sent sögð­ust ekki hafa sterka skoðun á því og 35,7 pró­sent sögð­ust vera sam­mála erindi kristi­legra trú­arat­hafna, bæna og guðs­orða í leik­skólum eða grunn­skólum.

Allir þing­menn Mið­flokks­ins, ásamt Sjálf­stæð­is­mönn­unum Brynjari Níels­syni og Ásmundi Frið­riks­syni, lögðu fyrr í þessum mán­uði fram frum­varp um að auka veg krist­in­fræði­kennslu í grunn­skólum lands­ins.

[links]Verði frum­varpið að lögum yrði kennslan eins og var fyrir gild­is­töku grunn­skóla­laga frá árinu 2008, sem felldu hana nið­ur. Þing­menn­irnir vilja að heiti náms­grein­ar­innar trú­ar­bragða­fræði verði breytt í krist­in­fræði og trú­ar­bragða­fræði og telja að nám á því sviði sé mik­il­vægt til skiln­ings, umburð­ar­lyndis og víð­sýni. „Nem­endur verða að vera búnir undir að lifa í fjöl­breyttu lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi og takast á við marg­vís­leg úrlausn­ar­efni sem þeirra bíða í breyttum heim­i,“ segir í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­in­u.

Á meðal þeirra raka sem þing­menn­irnir nota til að rök­styðja þörf­ina fyrir aukna áherslu á krist­in­fræði­kennslu í skólum er að hér á landi fari inn­flytj­endum sem komi frá ólíkum menn­ing­ar­heimum fjölg­andi.

Í grein­ar­gerð­inni segir að eðli­legt hljóti að telj­ast að fjallað sé ítar­leg­ast um þau trú­ar­brögð sem ríkj­andi séu í sam­fé­lag­inu. „Þekk­ing á kristni og Bibl­í­unni er for­senda skiln­ings á vest­rænni menn­ingu og sam­fé­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár