Ekki forgangsmál þjóðkirkjunnar að viðhalda tengslum við ríkisvaldið

Biskup Íslands segir að kirkj­unni hugn­ist að vera áfram þjóð­kirkja lands­ins en ef komi til fulls aðskiln­aðar ríkis og kirkju þá þurfi að hafa í huga að þjóð­kirkjan hafi ekki fjár­hags­legt bol­magn til að sinna hlut­verki sínu

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Að við­halda tengslum kirkj­unnar við rík­is­valdið er í sjálfu sér ekki for­gangs­mál kirkj­unnar. Skyldur kirkj­unnar liggja fyrst og fremst í því að rækta og við­halda tengsl­unum við þjóð­ina.“ Þetta segir Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, í umsögn um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um fullan aðskilnað ríkis og kirkju. Hún tekur þó fram að Bisk­ups­stofu hugn­ist að kirkjan verði áfram þjóð­kirkja lands­ins.

Þjóðkirkjunni hugnast að vera enn þjóðkirkja

[links] Þings­á­lykt­un­ar­til­laga þing­manna fjög­urra flokka um að fela rík­is­stjórn­inni að leggja fram frum­varp um full­an, laga­legan og fjár­hags­legan aðskilnað ríkis og kirkju var lagt fram í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Tillagan er nú til með­ferðar hjá alls­herjar- og mennta­mála­nefnd og hefur nefndin sent umsagna­beiðnir sendar á yfir fjöru­tíu trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög.

Bisk­ups­stofa er á meðal þeirra sem skilað hafa inn umsögn um þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni. Í umsögn­inni segir að með til­lög­unni sé í raun verið að leggja til að ríkið haldi sig ekki við opin­ber trú­ar­brögð og að mati bisk­ups kann það að telj­ast eðli­legt í því fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lagi sem orðið er hér á landi.

Þá segir í umsögn­inni að Bisk­ups­stofu hugn­ist að hér á landi verði engin opin­ber trú­ar­brögð en að þjóð­kirkjan verði enn þjóð­kirkja, líkt og fyr­ir­komu­lagið er í Noregi um þessar mundir. Enda skipi þjóð­kirkjan stóran sess í hugum meiri­hluta íslensku þjóð­ar­innar og kristin gildi í hávegum höfð í laga­setn­ingu og lífs­við­horfi sem birt­ist í stofn­unum þjóð­fé­lags­ins.

Kirkjan hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að sinna hlutverki sínu

Tekið er þó fram í umsögn­inni að ef fram komi frum­vörp um fullan, laga­legan og fjár­hags­legan aðskilnað ríkis og kirkju þá leggi biskup áherslu á að ákveðin atriði höfð að leið­ar­ljósi. Þar á meðal að kirkjan hafi ekki fjár­hags­legt bol­magn til að sinna hlut­verki sínu sem boð­beri krist­innar trúar af því að ríkið hafi fengið svo mikið af eigna­safni kirkj­unnar. Þær kirkju­jarðir sem þjóð­kirkjan afhenti rík­inu árið 1907 voru um fjórð­ungur allra jarða lands­ins á þeim tíma.

Biskup bendir því á að fjár­hags­leg sér­staða þjóð­kirkj­unnar gagn­vart öðrum trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum liggi í kirkju­jarð­ar­sam­komu­lag­inu frá 1997 um greiðslur fyrir kirkju­jarð­irnar.

Jafn­framt bendir biskup á að með kirkju­jarð­ar­sam­komu­lag­inu hafi orðið viss aðskiln­aður milli ríkis og kirkju. Auk þess hafi verið enn lengra gengið í átt að sjálf­stæði kirkj­unnar í sept­em­ber síð­ast­liðnum þegar stjórn­völd og full­trúum þjóð­kirkj­unnar und­ir­rit­uðu við­bót­ar­sam­komu­lag. Með sam­komu­lag­inu verða prestar kirkj­unnar ekki emb­ætt­is­menn rík­is­ins og þjóð­kirkj­unni tryggðir rúmir þrír millj­arðar úr rík­is­sjóði á hverju ári.

Menntun presta nýtist vel í almannaþágu

Auk þess er tekið fram í umsögn­inni að þjón­usta kirkj­unnar nái til alls lands­ins og að þjóð­kirkjan sinni lög­boðnum verk­efnum og skyldum sem önnur trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög gera ekki. Í grein­ar­gerð með til­lög­unni er gert ráð fyrir að skoðað verði hvort önnur trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög taki að sér sam­bæri­leg sam­fé­lags­leg verk­efni og þjóð­kirkjan sinnir nú. Í því sam­bandi minnir biskup á að menntun presta kirkj­unnar og reynsla nýt­ist einkar vel til þjón­ustu í almanna­þágu.

„Samfylgd kirkju og þjóðar hefur verið far­sæl um aldir og kirkj­unnar fólk, bæði leikið og lært er og verður ávallt til þjón­ustu reiðu­búið þjóð­inni til heilla. Að við­halda tengslum kirkj­unnar við rík­is­valdið er í sjálfu sér ekki for­gangs­mál kirkj­unnar. Skyldur kirkj­unnar liggja fyrst og fremst í því að rækta og við­halda tengsl­unum við þjóð­ina,“ segir að lokum í umsögn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár