Þjóðkirkjunni tryggðir rúmir þrír milljarðar á ári

Ríkið og þjóð­kirkjan hafa und­ir­ritað nýjan samn­ing um fjár­hags­leg mál­efni kirkj­unnar. Með samn­ing­unum er fjár­hags­legt sjálf­stæði kirkj­unnar aukið umtals­vert en kirkjan nýtur þó enn stuðn­ings íslenska rík­is­ins.

Rík­is­stjórnin hefur skrifað undir nýjan samn­ing þess efnis að íslenska ríkið skuld­bindur sig til þess að greiða þjóð­kirkj­unni 3,45 millj­arða á ári hverju. Auk þess fær þjóð­kirkjan greidd sókn­ar­gjöld árlega. Rík­is­stjórnin segir að með þessu nýja sam­komu­lagi sé stigið stórt skref í átt­inni að því að þjóð­kirkjan verði trú­fé­lag sem beri sjálft ábyrgð á eigin rekstri og fjár­hag.

Aukið fjárhagslegt sjálfstæði þjóðkirkjunnar

Þann 6. sept­em­ber síð­ast­lið­inn und­ir­rit­uðu for­sæt­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra, fjár­mála­ráð­herra, og for­seti kirkju­þings, nýjan við­bót­ar­samn­ing um end­ur­skoðun á kirkju­jarð­ar­sam­komu­lag­inu frá 1997 og samn­ingi um rekstr­ar­kostnað kirkj­unnar frá 1998.

Þjóð­kirkjan fær árlega fram­lög frá rík­inu á grund­velli kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins sem og fram­lög sem renna til Kirkju­mála­sjóðs og Jöfn­un­ar­sjóðs sókna. Til við­bótar fær þjóð­kirkjan greidd sókn­ar­gjöld. 

Með nýja samn­ingnum er fyr­ir­komu­lag greiðslna til þjóð­kirkj­unnar ein­faldað mjög. Nú fær kirkjan fastar greiðslur á hverju ári sem taka aðeins breyt­ingum á sömu almennu launa- og verð­lags­for­sendum sem liggja til grund­vallar í fjár­lögum hvers árs. Greiðsl­unar miða því ekki lengur við fjölda starfs­manna kirkj­unn­ar.

Jafn­framt mun kirkjan frá og með 1. jan­úar á næsta ári sjálf ann­ast alla launa­vinnslu, bók­hald og launa­greiðslur til starfs­manna sinna. Auk þess verða felld úr gildi sér­stök lög um ákveðna sjóði sem starfað hafa hingað til á vegum kirkj­unn­ar.

„Með þessu nýja sam­komu­lagi er stigið mjög stórt skref í þá átt að þjóð­kirkjan verði fyrst og fremst trú­fé­lag sem beri sjálft ábyrgð á eigin rekstri og fjár­hag. Kirkjan nýtur enn stuðn­ings íslenska rík­is­ins líkt og kveðið er á um í stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins en fjar­lægist það mjög að vera rík­is­stofnun með þessum samn­ingi. Áfram munu lög um stöðu stjórn og starfs­hætti þjóð­kirkj­unnar gera ráð fyrir ákveðnum tengslum á milli þjóð­kirkj­unnar og rík­is­ins,“ segir í frétta­til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Endurskoðun kirkjujarðarsamkomulagsins

Þann 10. jan­úar 1997 samdi ríkið um að kirkjan léti af hendi kirkju­jarðir að frá­töldum prests­setrum og að and­virði seldra kirkju­jarða rynni í rík­is­sjóð. Á móti mundi rík­is­sjóður greiða laun bisk­ups Íslands, vígslu­bisk­upa, 138 starf­andi presta og pró­fasta kirkj­unnar og 18 starfs­manna Bisk­ups­stofu, annan rekstr­ar­kostnað prests­emb­ætta og Bisk­ups­stofu, náms­leyfi, fæð­ing­ar­or­lof, veik­indi og fleira.

Þetta sam­komu­lag er kallað kirkju­jarð­ar­sam­komu­lagið og á grunni þess er þjóð­­kirkjan á fjár­­lögum og fær umtals­verða fjár­­muni úr rík­­is­­sjóði. Frá árinu 1998 hafa greiðslur hins opin­bera vegna þessa verið á fimmta tug millj­arða króna.

Með nýja við­bót­ar­samn­ingnum hafa kirkjan og ríkið komið sér saman um nýja útfærslu á þessu sam­komu­lagi sem felur í sér veru­lega ein­földun á greiðslun vegna sam­komu­lag­ins. 

2,7 milljarðar ár ári vegna kirkjujarðarsamkomulagsins

Í nýja samn­ingum skuld­bindur íslenska ríkið sig til þess greiða árlega gagn­greiðslu til þjóð­kirkj­unnar að fjár­hæð 2.374.700.000, miðað við gagn­gjaldið 2018. Greiðslan er nú óháð fjölda bisk­upa, pró­fasta, presta og ann­arra starfs­manna þjóð­kirkj­unnar.

Auk þess skuld­bindur ríkið sig til að greiða til þjóð­kirkj­unnar 368.400.000, miðað við gagn­gjaldið 2018, vegna samn­ings rík­is­ins við þjóð­kirkj­una frá 1998 um rekst­ar­kostnað vegna prests­emb­ætta og pró­fasta, rekstr­ar­kostnað bisk­ups­stofu, fram­lag til Kristni­sjóðs og sér­fram­lög til þjóð­kirkj­unnar. Þessi fjárhæð verð­bæt­ist líkt og árlega gagn­greiðsla hér fyrir ofan.

Sóknargjöld þjóðkirkjunnar tæpir 1,7 milljarðar

Auk þess­ara tveggja greiðslna vegna kirkju­jarð­ar­sam­komu­lags­ins mun ríkið greiða þjóð­kirkj­unni 711.400.000 krónur á ári, miðað við verð­lag árs­ins 2018, í stað þeirra fram­laga sem runnið hafa til Kirkju­mála­sjóðs og Jöfn­un­ar­sjóðs sókna. Sú fjár­hæð mun taka breyt­ingum í sam­ræmi við almennar launa- og verð­lags­for­sendur sem liggja til grund­vallar í fjár­lögum hvers árs, með sama hætti og ofan­greindar greiðslur.

Til við­bótar við þessi fram­lög greiðir ríkið sókn­ar­gjöld til trú­fé­laga, en þar er þjóð­kirkjan lang fyr­ir­ferða­mest enda eru tæp­lega tveir af hverjum þremur lands­mönnum í henni. Sókn­ar­gjöld næsta árs eru áætluð 2.567 millj­ónir króna og því má áætla að tæp­lega 1,7 millj­arðar króna af þeirri upp­hæð renni til þjóð­kirkj­unn­ar.

Þriðj­ungur þjóðar utan þjóð­kirkju

Þeim sem eru skráðir í þjóð­kirkj­una hefur fækkað jafnt og þétt á und­an­förnum árum, þrátt fyrir að íbúum hafi fjölgað umtals­vert. Nú eru 232.040 ein­stak­l­ingar skráðir í þjóð­­kirkj­una en þeir voru 253.069 árið 2009 þegar fjöldin náði hæstu hæð­um. Alls eru 64 pró­sent þeirra rúm­lega 360 þús­und manna sem búa á Íslandi því skráðir í þjóð­kirkj­una. Það þýðir að rúm­lega þriðj­ungur lands­manna er ekki skráður í hana, eða 128.350 manns.

Þrátt fyrir að þeim sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una fækkar með hverju ári þá hefur kostn­að­ur­inn á hvern skráðan ein­tak­ling auk­ist á síð­ustu árum. Kostn­aður á hvern skráðan ein­stak­ling í þjóð­kirkj­una nam 8.885 krónum á ein­stak­ling árið 1998 en 12.886 krónum árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár