Zúistar til rannsóknar hjá héraðssaksóknara

Fjár­reiður Zuism, trú­fé­lags sem ríkið telur að sé mála­mynda­fé­lags­skapur með þann til­gang að kom­ast yfir skattfé, eru til rann­sóknar hjá emb­ætti sem rann­sakar efna­hags­brot. Félags­menn eru nú um helm­ingi færri en þeir voru 2016.

Fjár­reiður trú­fé­lags­ins Zuism eru til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og rann­sóknin er vel á veg komin. Þetta kemur fram á Vísi.

Þar kemur enn fremur fram að minnst hafi verið á rann­sókn­ina í máli rík­is­lög­manns við aðal­með­ferð í máli Zuism gegn íslenska rík­inu sem fram fór í lið­inni viku. Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari stað­festi rann­sókn­ina við Vísi.

Meðlimum í Zuism fjölg­aði mikið á örfáum árum. Þeir voru tveir árið 2014 en fjöldi þeirra rauk upp í rúm­­lega þrjú þús­und í byrjun árs 2016, eftir að hópur manna taldi sig hafa tekið yfir félagið og ætl­­aði að end­­ur­greiða fólki þau sókn­­ar­­gjöld sem inn­­heimt yrði vegna þeirra.

[adspot]Í kjöl­farið tók við ára­löng bar­átta milli þess hóps og þeirra aðila sem áður höfðu farið með yfir­­ráð í félags­­­skapn­­um. Sú bar­átta end­aði með sigri hinna síð­­­ar­­nefndu. Lyk­il­menn í þeim hópi eru tveir bræður, Einar og Ágúst Arnar Ágústs­synir. Sá fyrr­nefndi hefur hlotið dóm vegna fjársvika.

Sagðir málamyndafélagsskapur

Zuism, undir for­ystu Ágústs Arnars, hefur staðið í mála­rekstri við ríkið vegna sókn­ar­gjalda sem hann telur félagið eiga að fá greidd. Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum var ríkið sýknað af kröfum Zuism um að fá drátt­ar­vexti af 50 millj­óna sókn­ar­gjöldum sem var haldið eftir. Íslenska ríkið var sýknað af þeim kröfum í nóv­em­ber.

Íslenska ríkið hefur reynt að koma í veg fyrir að Zuism fái greidd sókn­ar­gjöld þar sem óvissa sé uppi um að Zuism upp­fylli skil­yrði laga um trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög. For­svars­menn Zuism hafa stefnt rík­inu vegna þessa. Í vik­unni fór fram aðal­með­ferð í einum anga þess máls þar sem rík­is­lög­maður sagði að félagið væri mála­mynda­fé­lags­skapur og að til­gangur þess væri að kom­ast yfir fjár­muni skatt­greið­enda.

Félags­mönnum í Zuism hefur fækkað hratt á und­an­förnum árum, eftir að óvissa kom upp um hvort bræð­urnir ætl­uðu sér nokkru sinni að end­ur­greiða sókn­ar­gjöldið, eða halda þeim fyrir sig sjálfa. Í upp­hafi þessa árs voru þeir orðnir um 1.600 og hefur því fækkað um tæpan helm­ing frá árinu 2016.

Vildu fá lóð frá Reykjavík fyrir hof

Á vef Zúista segir í frétt frá því í fyrra, þar sem greint var frá því að trú­fé­lagið hefði lagt fram umsókn um lóð í Reykja­vík sem því var síðar synjað um, sagði að einn helsti guð sé Enlil og sé hann guð lofts og jarð­ar. Zigguratið muni heita í höfuð á hans helsta must­eri sem hét Ekur. Þýð­ing á nafn­inu þýði fjalla­hof og sé eitt af helg­ustu hofum Súmera þar sem Ekur tákni miðja jarðar þar sem helgi­staður guð­anna og jörð mæt­ist.

Sam­kvæmt teikn­ingum átti bygg­ingin sem Zúistar vildu byggja að vera á tveimur hæðum ásamt hofi ofan á annarri hæð. Stór stigi átti að vera alla leið­ina frá jörðu upp að hof­inu. Hofið yrði helgasti staður Zúista og þar geti farið fram athafnir svo sem gift­ing­ar, skírnir og til­biðj­anir. Einnig væri einn vin­sæl­asti við­burður Zúista bjór og bæn þar sem gyðjan Ninkasi er heiðruð með lestri á ljóði sem sé einnig elsta bjór­upp­skrift í heimi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár