Rúmur helmingur Íslendinga hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju

Þeir sem kysu Pírata eru lík­leg­astir til að vera hlynntir aðskiln­aði ríkis og kirkju, en þeir sem kysu Fram­sókn­ar­flokk­inn lík­leg­astir til að vera and­vígir.

Þingsetning í september 2019
Þing­setn­ing í sept­em­ber 2019 Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluti Íslend­inga er hlynntur aðskiln­aði ríkis og kirkju, eða rúm­lega 55 pró­sent, en það er svipað hlut­fall og und­an­farin ár. Ríflega fimmt­ungur er hvorki hlynntur né and­vígur aðskiln­aði ríkis og kirkju, og tæp­lega fjórð­ungur er and­vígur.

Þetta kemur fram í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Karlar eru hlynnt­ari aðskiln­aði ríkis og kirkju en konur, og fólk er hlynnt­ara aðskiln­aði eftir því sem það er yngra. Íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru hlynnt­ari aðskiln­aði ríkis og kirkju en íbúar lands­byggð­ar­innar, og fólk er hlynnt­ara aðskiln­aði eftir því sem það hefur meiri menntun að baki.

Munur er á við­horfi fólks eftir því hvað það kysi til Alþingis ef kosið yrði í dag. Þeir sem kysu Pírata eru lík­leg­astir til að vera hlynntir aðskiln­aði ríkis og kirkju, en þeir sem kysu Fram­sókn­ar­flokk­inn lík­leg­astir til að vera and­vígir. Á eftir þeim koma kjós­endur Mið­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Konur bera meira traust til kirkjunnar

Í nið­ur­stöð­unum kemur fram að um þriðj­ungur Íslend­inga beri mikið traust til þjóð­kirkj­unnar. Það er svipað hlut­fall og í fyrra en þá lækk­aði það frá fyrri mæl­ingum. Nær þriðj­ungur ber hvorki mikið né lítið traust til þjóð­kirkj­unnar og um þriðj­ungur ber lítið traust til hennar.

Konur bera aðeins meira traust til þjóð­kirkj­unnar en karlar, og eldra fólk ber að jafn­aði meira traust til hennar en yngra fólk. Íbúar lands­byggð­ar­innar bera einnig meira traust til þjóð­kirkj­unnar en íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Það er munur eftir því hvað fólk kysi til Alþingis ef kosið yrði í dag, en traustið er mest hjá þeim sem kysu Fram­sókn­ar­flokk­inn en minnst hjá þeim sem kysu Pírata.

Nær þriðjungur óánægður með störf biskups

Um 19 pró­sent eru ánægð með störf Agnesar M. Sig­urð­ar­dóttur, bisk­ups Íslands. Í fyrra minnk­aði ánægja með störf bisk­ups mikið og hafði ekki mælst lægri í rúm­lega tveggja ára­tuga sögu mæl­ing­anna. Ánægjan með störf bisk­ups eykst hins vegar um 5 pró­sentu­stig núna og er þetta í fyrsta skipti sem ánægja með störf sitj­andi bisk­ups eykst í mæl­ingum Gallup. Hátt í helm­ingur er hvorki ánægður né óánægður með störf bisk­ups en nær þriðj­ungur er óánægður með störf Agnesar.

Karlar eru lík­legri en konur til að vera ánægðir með störf bisk­ups. Það er líka munur eftir aldri og er fólk yngra en 30 ára ánægð­ast með störf bisk­ups. Íbúar lands­byggð­ar­innar eru ánægð­ari með störf bisk­ups en íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Loks er munur eftir því hvað fólk kysi til Alþingis ef kosið yrði í dag, en þeir sem kysu Fram­sókn­ar­flokk­inn eru ánægð­astir með störf bisk­ups og þeir sem kysu Pírata óánægð­astir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár