Reykjavíkurborg styður brottfall laga um Kristnisjóð

Í umsögn sinni segir borgin það eðli­legt að sveit­ar­fé­lög hafi sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt yfir eigin land­svæði og að gætt sé að jafn­ræði milli trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga með brott­falli laga um Kristni­sjóð. Bisk­ups­stofa ekki jafn hrifin af brott­falli lag­anna.

Engin rök standa til þess að sveit­ar­fé­lögum sé skylt að láta af hendi lóðir án end­ur­gjalds til trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­laga að því er segir í umsögn frá Reykja­vík­ur­borg við frum­varp til laga um brott­fall laga um Kristni­sjóð. „Því er að mati Reykja­vík­ur­borgar rétt að fella brott ákvæði 5. gr. laga um Kristni­sjóð o.fl. til að gæta jafn­ræðis milli trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga,“ segir í umsögn borg­ar­innar.

Frum­varpið sem um ræðir miðar að því að fella úr gildi lög um Kristni­sjóð en fimmta grein þeirra laga stendur ein eftir. Í henni er kveðið á um að sveit­ar­fé­lögum kaup­staða og kaup­túna sé skylt að leggja til ókeypis lóðir undir kirkjur og und­an­skilja þær gatna­gerð­ar­gjaldi.

Reykja­vík­ur­borg hefur á und­an­förnum árum úthlutað fjórum lóðum til trú­fé­laga og ákveðið að ekki þurfi að greiða gatna­gerð­ar­gjald af bygg­ingum umræddra trú­fé­laga. Þessar ákvarð­anir voru teknar á grund­velli jafn­ræð­is­reglu stjórn­ar­skrár­innar en í henni er meðal ann­ars kveðið á um að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mann­rétt­inda án til­lits til trú­ar­bragða.

Í umsögn­inni er þessi rúma túlkun á lögum um Kristni­sjóð sögð umdeild og að mikið hafi verið rætt hvort að borg­inni hafi verið skylt að und­an­skilja lóðir allra skráðra trú­fé­laga með þeim hætti sem gert var. Þar er einnig sagt eðli­legt að sveit­ar­fé­lög hafi sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt yfir eigin land­svæði. Borgin tekur enn fremur undir þau sjón­ar­mið að engin rök standi til þess að sveit­ar­fé­lögum sé skylt að láta af hendi lóðir án end­ur­gjalds til trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­laga.

Einfaldasta lausnin sé að fella lögin brott

Lög um Kristni­sjóð byggj­ast á til­lögum presta­kalla­nefndar sem kirkju­mála­ráð­herra skip­aði árið 1965. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að þá hafi trú­ar­líf þjóð­ar­innar verið mun eins­leit­ara en nú og að þá hafi ríkt meiri sátt um þátt­töku opin­berra aðila í rekstri trú­fé­laga.

Færð eru rök fyrir því að hægt sé að túlka lög um kirkju­sjóð á fleiri en einn veg í grein­ar­gerð, líkt og dæmi eru um. Samkvæmt 62. grein stjórn­ar­skrár nýtur Hin evang­el­íska lút­erska kirkja stöðu þjóð­kirkju á Íslandi og skal ríkið að því leyti styðja hana og vernda. Í stjórn­ar­skránni er einnig kveðið á um að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mann­rétt­inda án til­lits til kyn­ferðis, trú­ar­bragða, skoð­ana, þjóð­ern­is­upp­runa, kyn­þáttar, lit­ar­háttar, efna­hags, ætt­ernis eða stöðu að öðru leyti.

Lögin nefna ekki sér­stak­lega kirkjur þjóð­kirkj­unnar, heldur kirkjur almennt. „Því verður ekki í fljótu bragði séð að 5. gr. lag­anna grund­vall­ist á 62. gr. stjórn­ar­skrár­innar sem veitir þjóð­kirkj­unni sér­staka vernd og stuðn­ing. Þetta atriði er þó umdeilt og er það eitt vanda­mál­anna við túlkun ákvæð­is­ins,“ segir í grein­ar­gerð.

Að mati flutn­ings­manna frum­varps­ins eru trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög í eðli sínu umdeild að því er fram kemur í loka­orðum grein­ar­gerð­ar­innar. Stutt geti verið í hat­urs­fulla orð­ræðu þegar mál þeirra eru til umræðu. Þar er það einnig sagt ótækt að íslensk lög séu þess vald­andi að mis­jafn skiln­ingur á mark­miði og túlkun laga geti valdið nún­ingi milli trú­ar­hópa. Ein­faldasta og skyn­sam­leg­asta lausnin á vand­anum sem fylgir þessum lögum sé því að fella þau á brott að mati flutn­ings­manna frum­varps­ins. Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Helgi Hrafn Gunn­ars­son þing­maður Pírata.

Biskupsstofa mótfallin frumvarpinu

„Óskað er eftir að Alþingi virði það, sem um hefur verið samið og unnið hefur verið eftir af hálfu bæði meiri hluta lög­gjaf­ar­valds og fram­kvæmda­valds ann­ars vegar og kirkj­unnar hins vegar, frá gerð við­bót­ar­samn­ings­ins. Því fái frum­varp þetta ekki fram­gang,“ segir í nið­ur­lagi umsagnar Bisk­ups­stofu um frum­varpið.

Við­bót­ar­samn­ing­ur­inn sem um ræðir er samn­ingur íslenska rík­is­ins og þjóð­kirkj­unnar sem und­ir­rit­aður var í sept­em­ber árið 2019. Samn­ing­ur­inn felur í sér end­ur­skoðun á sam­komu­lagi frá árinu 1997 um kirkju­jarðir og launa­greiðslur presta og starfs­manna þjóð­kirkj­unnar. Markmið samn­ings­ins var að ein­falda fram­kvæmd þessa sam­komu­lags og auka sjálf­stæði þjóð­kirkj­unnar í fjár­málum og starfs­manna­málum meðal ann­ars með því að ein­falda lög­gjöf um þjóð­kirkj­una. Í vilja­yf­ir­lýs­ingu samn­ings­að­ila sem fylgir samn­ingum var kveðið á um að annar kafli laga um Kristni­sjóð skyldi felldur úr gildi. Það var gert í júlí 2020 og vilja­yf­ir­lýs­ing­unni þar með fylgt eftir að mati Bisk­ups­stofu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár