Tækifæriskirkjur

Hvað á að gera við gamla kirkju sem ekk­ert er notuð vegna þess að íbú­arnir á svæð­inu eru fluttir burt? Í Danmörku eru tugir slíkra guðs­húsa, flest mjög gömul. Nú eru uppi hug­myndir um að breyta sumum slíkum kirkjum í svo­kall­aðar tæki­fær­is­kirkjur.

Kirkja í Holte í Danmörku.
Kirkja í Holte í Danmörku. Mynd: Wikipedia

Í Danmörku eru 2354 kirkjur, sem til­heyra þjóð­kirkj­unni, Fol­ke­kirken. Tæp 70 pró­sent Dana eru í þjóð­kirkj­unni en sóknir í land­inu eru 2123.

Fyrstu kirkjur í Danmörku voru byggðar á 9. öld, önnur í Slésvík en hin í Ribe. Þær voru timb­ur­kirkjur, reistar með kon­ungs­leyfi. Þrjár af hverjum fjórum kirkjum lands­ins voru byggðar á tíma­bil­inu 1000 – 1500, stærstur hluti þeirra á 11. og 12. öld.

Mið­alda­kirkj­urnar, eins og Danir kalla þær, eru margar hverjar keim­líkar, án þess þó að vera nákvæm­lega eins: hvít­kalk­aðar með turni í sama lit, og bröttu brún­rauðu þaki. Þessar kirkjur blasa hvar­vetna við þegar farið er um danskar sveitir. Meiri fjöl­breytni gætir í nýrri guðs­húsum, sem oft­ast eru í nýjum hverfum og bæj­ar­hlutum.

Úr sveit í bæ

Á und­an­förnum ára­tugum hefur íbúum í dreif­býli fækkað mjög í Danmörku eins og víðar. Sífellt fleiri velja að flytj­ast í þétt­býlið, einkum í stærri bæi og borgir. Þótt mikið sé talað um að „stöðva flótt­ann úr dreif­býl­inu“ virð­ist það hæg­ara sagt en gert.

Fólks­fækkun á lands­byggð­inni hefur marg­hátt­aðar breyt­ingar í för með sér, versl­anir, verk­stæði, bankar og bens­ín­stöðvar hverfa, skólum er lokað o.s.frv. Fólks­fækk­unin hefur líka mikil áhrif á kirkju­starfið. Kirkj­urnar eru lítið not­aðar. Fáir mæta í messur, brúð­kaup, skírnir og jarð­ar­farir eru örfáar á hverju ári.

Sóknarnefndir

Í Danmörku eru eins og áður var nefnt 2123 sóknir. Í hverri sókn er sókn­ar­nefnd (menig­heds­råd) sem ber ábyrgð á rekstri og umsjón kirkj­unnar. Lög um sókn­ar­nefndir voru sett árið 1903, þar var gert ráð fyrir að í hverri sókn væri sókn­ar­nefnd. Þeim lögum var síðar breytt þannig að sama sókn­ar­nefndin getur nú tekið til nokk­urra sókna. Sókn­ar­nefndir í Danmörku eru nú um 1700 tals­ins.

Í sókn­ar­nefnd situr prestur við­kom­andi sóknar og síðan minnst fimm en mest fimmtán full­trúar íbúa í sókn­inni. Þeir eru valdir með íbúa­kosn­ingu, sem fer fram á fjög­urra ára fresti. Hlutverk sókn­ar­nefnda er að halda utan um starfið í við­kom­andi sókn og verk­sviðið er nákvæm­lega útli­stað í lögum, þeim var síð­ast breytt árið 2013. Meðal þess sem heyrir undir sókn­ar­nefnd­ina er rekstur við­kom­andi kirkju, þar með talið við­hald húss­ins.

Reksturinn mörgum sóknum ofviða

Rekstur danskra kirkna er fjár­magn­aður með sér­stökum skatti, kirkeskat, sem um gilda sér­stakar reglur. Hann er hlut­fall af tekjum við­kom­andi ein­stak­lings og það hlut­fall er mis­mun­andi eftir sveit­ar­fé­lögum. Fækkun íbúa í mörgum sveit­ar­fé­lögum hefur leitt til þess að tekj­urnar hafa skroppið saman og rekstur flestra sveit­ar­fé­laga þungur. Þetta bitnar á allri starf­semi, kirkj­unum þar með­töldum. Samkvæmt lögum ber sókn­ar­nefndum að halda kirkj­unum í „við­un­andi ástandi” eins og það heitir í lög­unum. Það þýðir að sjá til þess kirkjan sé upp­hituð og húsið liggi ekki undir skemmdum vegna veð­urs og vinda. Eins og fyrr var nefnt er stór hluti danskra kirkna gam­all og eru því hluti dansks menn­ing­ar­arfs, sam­kvæmt lögum.

Bygg­ingar sem falla undir þessa skil­grein­ingu má ekki rífa eða taka til ann­arra nota, nema með sér­stöku leyfi, þetta gildir reyndar um allar kirkjur. Innan kirkj­unnar hafa farið fram miklar umræður um hvað sé til ráða varð­andi rekstur guðs­hús­anna.

Dag­blaðið Jót­land­s­póst­ur­inn hefur að und­an­förnu fjallað tals­vert um þessi mál. Fyrir skömmu birt­ist í blað­inu við­tal við Kirsten Sanders for­mann sókn­ar­nefndar kirkj­unnar í Blidstrup á Mors á Norð­vestur- Jótlandi. Sóknin er mjög fámenn, sókn­ar­börnin aðeins 122. Nú standa yfir umfangs­miklar við­gerðir á kirkj­unni, sem var vígð árið 1140. Kostn­aður við við­gerð­irnar er áætl­aður um 6 millj­ónir danskra króna (110 millj­ónir íslenskar).

Í við­tal­inu varp­aði sókn­ar­nefnd­ar­for­mað­ur­inn fram þeirri spurn­ingu hvort rétt­læt­an­legt væri að verja svo miklu fé til við­gerða á kirkju sem er lítið notuð og fáir sækja. „Þetta er ekki auð­velt, okkur ber að halda kirkj­unni við og nú var komið að við­gerðum og end­ur­bótum sem hafa setið á hak­anum árum saman.” Jót­land­s­póst­ur­inn ræddi líka við Ullu Kjær, sér­fræð­ing á Þjóð­minja­safn­inu, sem sagði að „ekki mætti gleyma því að í Danmörku eru kirkj­urnar nán­ast einu bygg­ing­arnar sem til eru frá mið­öldum, og þær eru menn­ing­ar­verð­mæti”.

Tækifæriskirkjur

Innan dönsku þjóð­kirkj­unnar hefur að und­an­förnu mikið verið rætt um fram­tíð guðs­hús­anna í land­inu. Margir mega ekki til þess hugsa að gömlum kirkjum verði lokað og þær teknar úr notkun. Ein þeirra leiða sem rætt hefur verið um er að kirkjum í fámennum sóknum, einkum þar sem stutt er í næstu kirkju, verði breytt í svo­nefndar tæki­fær­is­kirkjur (lejlig­heds­kirker). Þá yrði við­kom­andi kirkju lokað nema um stór­há­tíðar og við sér­stök tæki­færi.

Með þessu móti væri hægt að halda rekstr­ar­kostn­aði í lág­marki, til dæmis væri ekki þörf á sér­stökum kirkju­verði, kynd­ing mið­að­ist við að halda hús­inu frá skemmdum o.s.frv. Pró­fastur sem Jót­land­s­póst­ur­inn ræddi við taldi þetta góða hug­mynd, með þessu móti héldi við­kom­andi guðs­hús reisn sinni, eins og hann komst að orði, en kostn­að­ur­inn yrði mun minni. Þetta mál er á byrj­un­ar­stigi, áður­nefndur pró­fastur sagði að ákvarð­anir af þessu tagi yrðu ekki teknar í einum grænum en mik­il­vægt væri að umræðan væri komin í gang.

Kirkjugarðarnir

Víða í Danmörku eru stórir kirkju­garðar. Þetta á ekki hvað síst við í dreif­býl­inu þar sem land­rými er meira en í borgum og bæjum. Í mörgum görðum í smáum sóknum eru dæmi um allt niður í eina jarð­setn­ingu á ári. Lík­brennslur verða sífellt algeng­ari og á síð­asta ári voru ein­ungis 16 pró­sent þeirra Dana sem lét­ust jarð­sett í kistu, 84 pró­sent voru brennd.

Duftker taka mun minna pláss en hefð­bundin kista og þess vegna hafa sókn­ar­nefndir víða um land viðrað hug­myndir um breyt­ingar á kirkju­görð­unum. Til dæmis að þeir verði að hluta til gerðir að eins konar skrúð­görðum. Nokkrum kirkju­görðum hefur reyndar þegar verið breytt í þessa átt, þar á meðal Vester Hassing kirkju­garð­inum skammt frá Álaborg á Jótlandi. Umsjón­ar­maður garðs­ins sagði í blaða­við­tali að fólk kynni vel að meta þessa breyt­ingu og kvaðst þess full­viss að á næstu ára­tugum yrðu miklar breyt­ingar á dönskum kirkju­görðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár