Ráðherra segir óhjákvæmilegt að stefna að fullum aðskilnaði ríkis og kirkju

Ráðherra kirkju­mála, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, segir að sjálf­stæð kirkja, óháð rík­is­vald­inu, sam­rým­ist betur trú- og skoð­ana­frelsi en sér­staðan sem þjóð­kirkjan njóti í íslenskri stjórn­skipan. Rúmur þriðj­ungur þjóðar er ekki í þjóð­kirkj­unni.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra segir óhjá­kvæmi­legt að stefna í átt að fullum aðskiln­aði ríkis og þjóð­kirkju. Þetta kemur fram í grein sem hún skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

Þar segir Áslaug Arna að nýtt sam­komu­lag, sem und­ir­ritað var í sept­em­ber síð­ast­liðnum, milli ríkis og þjóð­kirkj­unnar feli í sér að hún verði ekki lengur eins og hver önnur rík­is­stofnun. „Hún mun fremur líkj­ast frjálsu trú­fé­lagi sem ber ábyrgð á eigin rekstri og fjár­hag. Þessar breyt­ingar eru til mik­illa bóta og óhjá­kvæmi­legt að stefna áfram á sömu braut í átt að fullum aðskiln­aði. Þangað til og þrátt fyrir sam­komu­lagið mun þjóð­kirkjan áfram njóta stuðn­ings og verndar íslenska rík­is­ins á grund­velli ákvæðis stjórn­ar­skrár­innar.“

Áslaug Arna segir í grein­inni að sjálf­stæð kirkja óháð rík­is­vald­inu sam­rým­ist betur trú­frelsi og skoð­ana­frelsi en sér­staðan sem þjóð­kirkjan hefur notið í íslenskri stjórn­skipan. „Í mínum huga er ekki spurn­ing um það að kirkjan getur vel sinnt öllum verk­efnum sínum og þar á meðal sálu­hjálp og marg­vís­legri félags­legri þjón­ustu óháð rík­inu. Ég er einnig þeirrar skoð­unar að margir muni fylgja kirkj­unni að málum þótt full­kom­inn aðskiln­aður verði á end­anum á milli hennar og rík­is­valds­ins.“

Lengi verið meirihluti fyrir aðskilnaði

Samkvæmt Þjóð­ar­púlsi Gallup sem var birtur fyrir viku síðan er meiri­hluti Íslend­inga hlynntur aðskiln­aði ríkis og kirkju, eða rúm­lega 55 pró­sent, en það er svipað hlut­fall og und­an­farin ár. Ríf­lega fimmt­ungur er hvorki hlynntur né and­vígur aðskiln­aði ríkis og kirkju, og tæp­lega fjórð­ungur er and­víg­ur.

[adspot]Karlar eru hlynnt­ari aðskiln­aði ríkis og kirkju en kon­ur, og fólk er hlynnt­ara aðskiln­aði eftir því sem það er yngra. Íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru hlynnt­ari aðskiln­aði ríkis og kirkju en íbúar lands­byggð­ar­inn­ar, og fólk er hlynnt­ara aðskiln­aði eftir því sem það hefur meiri menntun að baki.

Munur er á við­horfi fólks eftir því hvað það kysi til Alþingis ef kosið yrði í dag. Þeir sem kysu Pírata eru lík­leg­astir til að vera hlynntir aðskiln­aði ríkis og kirkju, en þeir sem kysu Fram­sókn­ar­flokk­inn lík­leg­astir til að vera and­víg­ir. Á eftir þeim koma kjós­endur Mið­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Í nið­ur­stöð­unum kemur fram að um þriðj­ungur Íslend­inga beri mikið traust til þjóð­kirkj­unn­ar. Það er svipað hlut­fall og í fyrra en þá lækk­aði það frá fyrri mæl­ing­um. Nær þriðj­ungur ber hvorki mikið né lítið traust til þjóð­kirkj­unnar og um þriðj­ungur ber lítið traust til henn­ar.

Um 19 pró­sent eru ánægð með störf Agn­esar M. Sig­urð­ar­dótt­ur, bisk­ups Íslands.

Rúmur þriðjungur ekki í þjóðkirkjunni

Þeim sem eru skráðir í þjóð­­kirkj­una hefur fækkað jafnt og þétt á und­an­­förnum árum, þrátt fyrir að íbúum hafi fjölgað umtals­vert. Nú eru 231.684 ein­stak­l­ingar skráðir í þjóð­­­kirkj­una en þeir voru 253.069 árið 2009 þegar fjöldin náði hæstu hæð­­um. Alls eru um 64 pró­­sent þeirra rúm­­lega 360 þús­und manna sem búa á Íslandi því skráðir í þjóð­­kirkj­una. Það þýðir að rúm­­lega þriðj­ungur lands­­manna er ekki skráður í hana, eða tæp­lega 129 þús­und manns.

[adspot]Þrátt fyrir að þeim sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una fækki með hverju ári þá hefur kostn­að­ur­inn á hvern skráðan ein­stak­ling auk­ist á síð­ustu árum. ­Kostn­aður á hvern skráðan ein­stak­ling í þjóð­kirkj­una nam 8.885 krónum á ein­stak­ling árið 1998 en 12.886 krónum árið 2017.

Nýtt samkomulag undirritað

Þann 6. sept­em­ber síð­ast­lið­inn und­ir­rit­uðu for­sæt­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra, fjár­mála­ráð­herra, og for­seti kirkju­þings, nýjan við­bót­ar­samn­ing um end­ur­skoðun á kirkju­jarð­ar­sam­komu­lag­inu frá 1997 og samn­ingi um rekstr­ar­kostnað kirkj­unnar frá 1998.

Þjóð­kirkjan fær árlega fram­lög frá rík­inu á grund­velli kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins sem og fram­lög sem renna til Kirkju­mála­sjóðs og Jöfn­un­ar­sjóðs sókna. Til við­bótar fær þjóð­kirkjan greidd sókn­ar­gjöld.

Með nýja samn­ingnum er fyr­ir­komu­lag greiðslna til þjóð­kirkj­unnar ein­faldað mjög. Nú fær ­kirkjan fastar greiðslur á hverju ári sem taka aðeins breyt­ingum á sömu almennu launa- og verð­lags­for­sendum sem liggja til­ grund­vall­ar í fjár­lögum hvers árs. Greiðsl­urnar miða því ekki lengur við fjölda starfs­­manna kirkj­unn­­ar.

[links]Jafn­­framt mun kirkjan frá og með 1. jan­úar á næsta ári sjálf ann­­ast alla launa­vinnslu, bók­hald og launa­greiðslur til starfs­­manna sinna. Auk þess verða felld úr gildi sér­­­stök lög um ákveðna sjóði sem starfað hafa hingað til á vegum kirkj­unn­­ar.

„Með þessu nýja sam­komu­lagi er stigið mjög stórt skref í þá átt að þjóð­kirkjan verði fyrst og fremst trú­fé­lag sem beri sjálft ábyrgð á eigin rekstri og fjár­hag. Kirkjan nýtur enn stuðn­ings íslenska rík­is­ins líkt og kveðið er á um í stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins en fjar­lægist það mjög að vera rík­is­stofnun með þessum samn­ingi. Áfram munu lög um stöðu stjórn og starfs­hætti þjóð­kirkj­unnar gera ráð fyrir ákveðnum tengslum á milli þjóð­kirkj­unnar og rík­is­ins,“ sagði í frétta­til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins vegna gerð samn­ings­ins.

End­ur­skoðun kirkju­jarð­ar­sam­komu­lags­ins

Þann 10. jan­úar 1997 samdi ríkið um að kirkjan léti af hendi kirkju­jarðir að frá­­­töldum prests­­setrum og að and­virði seldra kirkju­jarða rynni í rík­­is­­sjóð. Á móti mundi rík­­is­­sjóður greiða laun bisk­­ups Íslands, vígslu­bisk­­upa, 138 starf­andi presta og pró­fasta kirkj­unnar og 18 starfs­­manna Bisk­­ups­­stofu, annan rekstr­­ar­­kostnað prests­emb­ætta og Bisk­­ups­­stofu, náms­­leyfi, fæð­ing­­ar­or­lof, veik­indi og fleira.

[adspot]Þetta sam­komu­lag er kallað kirkju­jarð­ar­sam­komu­lag­ið og á grunni þess er þjóð­­­kirkjan á fjár­­­lögum og fær umtals­verða fjár­­­muni úr rík­­­is­­­sjóði. Frá árinu 1998 hafa greiðslur hins opin­bera vegna þessa verið á fimmta tug millj­­arða króna.

Með nýja við­bót­ar­samn­ingnum hafa kirkjan og ríkið komið sér saman um nýja útfærslu á þessu sam­komu­lagi sem felur í sér veru­lega ein­földun á greiðslum vegna sam­komu­lags­ins.

2,7 millj­arðar ár ári vegna kirkju­jarð­ar­sam­komu­lags­ins

Í nýja samn­ingum skuld­bindur íslenska ríkið sig til þess greiða árlega gagn­greiðslu til þjóð­kirkj­unnar að fjár­hæð 2.374.700.000, miðað við gagn­gjaldið 2018. Greiðslan er nú óháð fjölda bisk­upa, pró­fasta, presta og ann­arra starfs­manna þjóð­kirkj­unn­ar.

Auk þess skuld­bindur ríkið sig til að greiða til þjóð­kirkj­unnar 368.400.000, miðað við gagn­gjaldið 2018, vegna samn­ings rík­is­ins við þjóð­kirkj­una frá 1998 um rekstr­ar­kostnað vegna prests­emb­ætta og pró­fasta, rekstr­ar­kostnað bisk­ups­stofu, fram­lag til Kristni­sjóðs og sér­fram­lög til þjóð­kirkj­unn­ar. Þessi fjár­hæð verð­bæt­ist líkt og árlega gagn­greiðsla hér fyrir ofan.

Auk þess­ara tveggja greiðslna vegna kirkju­jarð­ar­sam­komu­lags­ins mun ríkið greiða þjóð­kirkj­unn­i 711.400.000 krónur á ári, miðað við verð­lag árs­ins 2018, í stað þeirra fram­laga sem runnið hafa til Kirkju­mála­sjóðs og Jöfn­un­ar­sjóðs ­sókna. Sú fjár­hæð mun taka breyt­ingum í sam­ræmi við almennar launa- og verð­lags­for­sendur sem liggja til grund­vallar í fjár­lögum hvers árs, með sama hætti og ofan­greindar greiðsl­ur.

Til við­­bótar við þessi fram­lög greiðir ríkið sókn­­ar­­gjöld til trú­­fé­laga, en þar er þjóð­­kirkjan lang fyr­ir­­ferða­­mest enda eru tæp­­lega tveir af hverjum þremur lands­­mönnum í henni. Sókn­­ar­­gjöld næsta árs eru áætluð 2.567 millj­­ónir króna og því má áætla að tæp­lega 1,7 millj­­arðar króna af þeirri upp­­hæð renni til þjóð­­kirkj­unn­­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár