„Þetta er mjög krítísk staða“

„Þetta er mjög krítísk staða,“ segir Frey­steinn Sig­munds­son deild­ar­for­seti jarð­vís­inda­deildar Háskóla Íslands um gos­óró­ann á Reykja­nesi sem sýni að kvika sé að brjóta jarð­skorpuna „en óvíst hvert hún leitar og hvert þetta ferli fer“.

„Þetta er mjög krítísk staða – órói sem sýnir að kvika sé að brjóta skorpuna en óvíst hvert hún leitar og hvert þetta ferli fer.“
„Þetta er mjög krítísk staða – órói sem sýnir að kvika sé að brjóta skorpuna en óvíst hvert hún leitar og hvert þetta ferli fer.“ Mynd: Almannavarnir

„Það eru ekki miklar líkur á að þetta verði hættu­legt en það verður kannski óþægi­legt í nokkra daga,“ sagði Kristín Jóns­dóttir, hóp­stjóri nátt­úru­vá­r­eft­ir­lits hjá Veð­ur­stofu Íslands, á blaða­manna­fundi vegna mögu­legs eld­goss á Reykja­nesi.

Um 20 mín­útur yfir klukkan 14 í dag fór jarð­skjálfta­virkni að áger­ast á svæð­inu og kom það fram í fjölda lít­illa skjálfta sem hafa verið mjög þéttir. „Þetta verður sam­felld hrina sem lítur út eins og óró­apúls,“ sagði Kristín um stöð­una. „Það sem ger­ist í fram­hald­inu er að það fer þyrla í loftið til að kanna málin og við höfum fengið þær fréttir frá þeim að þau sjái ekki neitt.“

[adspot]

Gos­óró­inn, óró­apúls­inn, getur verið til marks um ýmis­legt sagði Kristín. „Það eru greini­lega umbrot í gangi.“ Skjálft­arnir eiga upp­tök sín á svæði milli Litla Hrúts og Keilis. Enn á eftir að rýna betur í þau gögn sem liggja fyrir til að kom­ast að því hvað er í gangi, sagði Kristín.

Á svæð­inu hefur mynd­ast „ein­hvers konar sig­dæld á yfir­borði“ og hugs­an­lega hefur orðið „meiri tognun en við höfum séð hingað til“.

[links]Frey­steinn Sig­munds­son, deild­ar­for­seti jarð­vís­inda­deildar Háskóla Íslands, var einnig á fund­inum. Rifjaði hann upp að í byrjun vik­unnar hafi sést með grein­ingu gagna að jarð­skorpu­hreyf­ingar mætti rekja til kviku­gangs „sem væri á ferð­inni“. Þá þegar hafi verið ljóst að ástandið væri „krítískt“. Og núna kemur „þessi órói“. Gosórói getur verið af mis­mun­andi gerð, sagði Frey­steinn. „Það er kvika að brjóta sér leið og við þurfum að sjá hvert að þetta leiðir,“ sagði hann. „Þetta er mjög krítísk staða – órói sem sýnir að kvika sé að brjóta skorpuna en óvíst hvert hún leitar og hvert þetta ferli fer.“

Hann benti á að kvika finni sér alltaf auð­veld­ustu leið upp á yfir­borð. Tímara­mm­inn gæti verið allt frá nokkrum klukku­stundum upp í nokkra daga. „Við gætum verið að horfa á næstu klukku­stundir, þetta getur gerst hratt, en getur líka teygst á lang­inn,“ sagði hann og benti á að það hafi orðið raunin í Holu­hrauns­gos­inu – um tvær vikur liðu frá fyrstu merkjum um gos­óróa og þar til kvikan braut sér leið upp á yfir­borð. „En núna er hún nálægt yfir­borði. Ég myndi halda að það þurfi að fylgj­ast mjög náið með næstu klukku­tím­ana en þetta gæti dreg­ist umfram það.“

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­vörnum, sagði að staðan smellpass­aði inn í þær sviðs­myndir sem teikn­aðar hefðu verið upp und­an­farið. „Stóra málið er að þetta eru engar stórar ham­farir sem eru að fara að ger­ast. Núna erum við að virkja allt almanna­varna­kerfið til að vera algjör­lega á tánum ef þörf krefur.“

Vís­inda­menn Veð­ur­stofu Íslands hafa stað­sett gos­óró­ann suður af Keili við fjallið Litla Hrút. Ef gos hefst á þessum slóðum er talið að engin hætta steðji að byggð. Hraun á þessum slóðum er um 7.000 ára gam­alt.

Vika er síðan að jarð­skjálfta­hrina hófst á Reykja­nesskaga með 5,7 stiga skjálfta við Fagra­dals­fjall. Hundruð skjálfta hafa orðið síðan og margir þeirra yfir 4 að stærð.

Frá land­námi hefur þrisvar sinnum gosið á Reykja­nesi, síð­ast á árunum 1211-1240 og eru þeir atburðir kall­aðir Reykja­nes­eldar. Á því tíma­bili gaus nokkrum sinnum, þar af urðu þrjú gos í eld­stöðvakerfi sem kennt er við Svarts­engi. Eldgosin voru hraun­gos á 1-10 kíló­metra löngum gossprungum. Gos­virkni á Reykja­nesi-Svarts­engi ein­kenn­ist af goslotum eða eldum sem geta varað í ára­tugi og má búast við goslotu á um 1100 ára fresti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðhræringar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár